18.7.2010 | 05:03
Slæða blíðunnar á Suðurlandi.
Veðurblíða hefur á sér ýmsar sérstakar hliðar í hverjum landshluta. Suðurlandslundirlendið er stærsta láglendissvæði landsins, en þó er lítill munur á stærð þess undirlendis og þess sérstæða undirlendis sanda sem er á Suðausturlandi.
Vegna stærðar Suðurlandsundirlendisins getur veðufar þar oft ráðist af staðbundnum aðstæðum þegar það hitnar upp á sólardlögum eða kólnar við það að sól sest.
Getur skapast þar sérstakt veðurkerfi þegar það hitnar upp og hitalægð yfir því stýrt vindum í hringi á móti ríkjandi vindátt yfir landinu.
Upphitun Suðurlandsundirlendisins getur líka valdið því að kalt loft frá hafinu norðanlands dragist suður yfir heiðarnar mllli Húnaflóa og Borgarfjarðar svo að það ríkir köld norðaustanátt í Borgarfirði og suður um Hvalfjörð eins og gerðist í gær
Þessi sólfarsvindur getur orðið sterkur þótt í loflögunum yfir landinu ríki suðaustanátt.
Með þessum pistli fylgja myndir af dalalæðunni sem oftl leggst lágt yfir Suðurlandsundirlendið eða hluta þess þegar sólin sest, landið kólnar hratt og raki frá yfirborðinu þéttist í svo þunnri lágþoku að þök sumar bændabýlanna standa upp úr.
Á myndunum er hort til norðurs yfir miðjar Landeyjarnar með Rangárþing eystra og vestasta hluta Fljótshlíðar í baksýn og eins og jafnan er hægt að sjá betur smáatriði í myndunum með því að smella tvisvar á þær.
|
Bongóblíða í borginni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)







