Mörg góð lög komast ekki að.

Lagið Blái máninn er aðeins eitt af fjölmörgum góðum lögum sem ekki komast að í söngvakeppni.

Fyrir nokkrum árum var sigurlag í söngvakeppni á Sauðárkróki með slíka fortíð, hafði ekki komist að áður.

Lag Gretu Salóme komst ekki að í Evróvision í fyrra. Mörg þau lög sem fá líf hrepptu ekki efsta sæti í söngvakeppni, svo sem Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, þótt þau yrðu þau einu sem lifðu áfram, svo sem ítalska lagið sem þekktast er undir heitinu Volare, en heitir reyndar Nel blu dipinto de blu.

Það lenti í þriðja sæti en flaug efst upp á vinsældalista um allan heim, meira að segja sungið af sjálfum Dean Martin. Er eitt allra frægasta Evróvisionlag allra tíma.

Smekkurinn er misjafn. Þannig fannst mér og finnst enn að lagið sem Óðinn Valdimarsson söng á sínum tíma í lagakeppni sem Svavar Gests stóð fyrir útvarpinu hafi verið einna best flutt.

Mig minnir að það hafi verið eftir Oliver Guðmundsson en oft er það þannig að höfunda lags og texta er í engu getið þegar lög eiga í hlut.

Þannig segja allir: "Lagið hans Magna" um lagið sem hann söng í söngvakeppninni núna.

 


mbl.is Lagið komst ekki í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Máttur blekkingar og ímyndar.

Máttur blekkingarinnar er mikill, allt frá því að "fótósjoppa" útlit helstu ljósmyndafyrirsæta heims til þeirrar stóru blekkingar að mannkynið geti haldið rólegt áfram á sömu braut rányrkju auðlinda jarðar af því að allt sé í raun í lagi og tækniframfarir komandi kynslóða muni bjarga öllu.

Orðalag eins og "eftir hundrað ár verður komin tækni sem leysir þetta mál" sést með reglulegu millibili í athugasemdum við ýmis atriði sem velt er upp á þessari bloggsíðu.

Stórfellt blekkingakerfi skóp það ástand sem endað hér á landi með Hruninu.

Leyniþjónustur lifa og nærast á blekkingum og lygi njósna og gagnnjósna sem oft verða svo flóknar að menn vita ekki sitt rjúkandi ráð um það hvenær blekkt er og hvenær ekki.

Fyrirtæki um allan heim, sem velta milljörðum króna, hafa af því tekjur að búa til ímyndir, og virðist oft ekki skipta máli hvort slíkar ímyndir eru falskar eða réttar.

Í íþróttum eru gabbhreyfingar eitt mikilvægasta atriðið, sem þeir bestu beita, og getur á stundum verið um flókið kerfi gabbhreyfinga að ræða, svo sem að gabba andstæðinginn til þess að halda að um gabbhreyfingu sé að ræða, sem reynist síðan ekki vera gabbhreyfing.

Leifturstríðsaðferð Þjóðverja og margs kyns blekkingar skóp árangur þeirra fyrstu ár Heimsstyrjaldarinnar síðari og síðar í stríðinu notuðu Bandamenn gabbárásir iðulega til þess að Þjóðverjar dreifðu kröftum sínum svo að sem mest tjón yrði unnið í aðal loftárásinni.

Í vopnahallæri sínu settu Bretar upp tréfallbyssur eða ónýtar fallbyssur til þess að blekkja Þjóðverja svo að þeir teldu viðbúnaðinn meiri en hann var í raun og veru, meira að segja hér á landi.

Á olíugeyma BP við Skúlagötu voru málaði gluggar til þess að láta líta svo út, að þeir væru venjulegar byggingar.  Það voru raunar hlægilega lélegar blekkingar en það mátti reyna.

Bandamenn völdu gaumgæfilega stað og stund þar sem Patton sæist nálægt suðvesturhorni Bretlandseyja og njósnarar Þjóðverja gætu upplýst sín yfirvöld um það.

Með því og hæfilega miklum, en þó ekki of miklum vísbendingum um viðbúnað nálægt Dover, var hægt að fá Þjóðverja til að halda að innrás Bandamanna yrði gerð þaðann yfir til Calais í Frakklandi, þar sem Ermasundið var mjóst.

Þegar innrásin í Normandy hófst stóðu Hitler og herforingjar hans í þeirri trú alveg fram á næsta dag að það væri blekkingarárás (diversion) til að dylja þann veruleika að aðal árásin yrði á við Calais.

Nú, fjórum árum eftir Hrun, eru enn að hellast yfir okkur upplýsingar um stórfelldar blekkingar sem beitt var í aðdraganda Hrunsins til að dulbúa það að í raun var bankakerfi okkar dauðadæmt meira en ári fyrr.

Oft er svo erfitt að greina hvað sé satt og hvað logið, að menn vita ekki sitt rjúkandi ráð, samanber vísu Kristjáns Hreinssonar:

 

Lygin oft hið sanna sér

á sínu efsta stigi

því sannleikurinn sjálfur er

sennilega lygi.  


mbl.is Gjörbreytt eftir fótósjoppið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stormasamt út yfir gröf og dauða.

Samband sumra virðist vera þannig að jafnvel þótt dauðinn hafi aðskilið deilendur, nær misklíðin út yfir gröf og dauða.

Þegar bók kom út um Hannes Hafstein hér um árið olli hún miklu deilum, svo miklum, að haldinn var mikill opinber hitafundur um hana í Sigtúni við Austurvöll þar sem nú er Nasa.

Þar hitnaði svo í kolunum að undir lokin flugu illskeyttar ásakanir og ávirðingar úr ræðustóli um löngu látna menn.

Mikið þarf til að upp úr sjóði við jarðarfarir en við eina jarðarför fyrir margt löngu gerðist það að þegar nokkuð var liðið á jarðarförina ætlaði dóttir þess sem verið var að jarða að standa upp og rjúka út í fússi á viðkvæmu augnabliki.  

Með harðfylgni og lagni tókst að halda viðkomandi niðri pikkfastri og urðu ekki nema örfáir nærstaddir kirkjugestir varir við þetta, sem betur fór, því að afar leiðinlegt hefði verið hugsanlega uppnám, ef hin snöggreiða manneskja hefði gert uppistand við athöfnina.

Þeir sem héldu henni niðri vissu að hún hafði mikið skap og gat rokið upp eins og stormsveipur ef því var að skipta vissu einnig að hún myndi sjá að sér, sem hún og gerði.

En að baki þessu lá að vísu langvarandi ósætti og undir niðri mikil langrækni, sem braust skyndilega út.

Merkilegt er að stundum er svona langrækni miklu heiftarlegri þegar heilar þjóðir eiga í hlut eins og sást vel í Balkanófriðnum undir lok síðustu aldar þegar verið var að hefna misgjörða allt að sex aldir aftur í tímann.

Og til eru dæmi um það að hefndarhugur í garð Gyðinga er réttlætur með því að Gyðingar hafi látið lífláta Krist.

Í öðrum tilfellum er hálfkæringur á ferð.

Þegar karlakór einn íslenskur varð fyrstur íslenskra kóra til að fara í söngferðalag til Tyrklands höfðu gárungar það á orði að nú væri Tyrkjaránsins hefnt.

Sem var reyndar tómt bull, því það voru ekki Tyrkir sem stóðu fyrir Tyrkjaráninu heldur sjóræningar frá Alsír.

En nafnið á Tyrkjaráninu var kannski til komið af langvarandi hatri á þeim þegar þeir réðu yfir stórum hluta Balkanskaga.  

Og   


mbl.is Brown stormaði út úr kirkjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. febrúar 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband