Íslenska innrásin færist í aukana. Mikill heiður.

Innrás Íslendinga í þýskan handbolta hófst fyrir nokkrum áratugum þegar Geir Hallsteinsson varð fyrstur Íslendinga til þess að gerast atvinnumaður þar í landi. 

Geir heillaði Þjóðverja upp úr skónum sem leiknasti handknattleiksmaður og snillingur, er sést hafði handleika boltann.

Síðan liðu árin og smám saman fór Íslendingum að fjölga og í kjölfarið íslenskum þjálfurum, þar sem þremenningarnir Alfreð Gíslason, Guðmundur Guðmundsson og Dagur Sigurðsson hafa heldur betur slegið í gegn. 

Það þarf ekki lítið til að útlendingur sé fenginn til þess að leiða sjálft þjóðarstoltið, landsliðið, í Þýskalandi.

Pað er fágætur heiður sem Degi Sigurðssyni og íslenskum handbolta og þjóð hefur hlotnast með ráðningu hans sem landsliðsþjálfara. 

Til hamingju, Dagur! Til hamingju, íslenskir íþróttamenn! 


mbl.is Dagur ráðinn þjálfari þýska landsliðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varnarleikurinn reynist lykillinn sem oftar.

Markatölur Framliðsins í sumar hafa verið athyglisverðar. Liðið skoraði lengi vel álíka mörg mörk og efstu liðin, en fékk hins vegar svo mörg mörk á sig, að þessi góða markaskorun nýttist ekki. 

Stundum er sagt að það sé mikill munur á áferð íþróttakeppni eftir því hvort hún snýst um að forðast ósigur eða stefna að sigri.

Hið fyrrnefnda sást löngum á HM enda reyndust góðar og stabilar varnir happadrýgstar á lokasprettinum  og markatölurnar í samræmi við það. Best er þegar hvort tveggja fer saman, sóknargeta og varnargeta. 

Ungur þjálfari og konrnungt Framlið þarf að fá frið og tíma til þess að safna reynslu og stöðugleika. Það væri ósanngjarnt að heimta að liðið springi út á einu sumri.

Þrjú sumur gæti þurft og þá þarf að sýna skilning og þolinmæði og fara ekki á taugum heldur leyfa liðinu að þroskast og eflast.  


mbl.is Bjarni: Allt liðið að spila mjög fínan varnarleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. ágúst 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband