Hagvaxtartrúin tröllríður öllu.

Helstu trúarbrögð mannkyns eru ekki hin gömlu hefðbundnu trúarbrögð heldur trúin á hinn endalausa og alltumlykjandi hagvöxt, hvað sem á dynur.

Engu virðist skipta þótt sýnt sé fram á með óyggjandi staðreyndum að rányrkja á helstu auðlindum jarðar, endalaus fjölgun mannkyns og elstu aldursflokkum þess og afleiðingar hitnunar lofthjúpsins muni fyrr eða síðar þýða skipbrot hagvaxtartrúarinnar.

Ékki aðeins krafan um hagvöxtinn óbifanleg, heldur líka trúin á þá slembilukku að hann haldi áfram og áfram út í eitt. 

Skyld hagvaxtartrúnni er hrifningarglýjan í augunum við það að þensla eyskst svo að farið er að minna óþyrmilega á 2007 og síbyljan um nauðsyn þess að keyra áfram ekki minni virkjana- og stóriðjustefnu og þá ríkti.  


mbl.is Hagsmunir kröfuhafa en ekki heimila?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandi pírata: Kynging helsta stefnumálsins.

Píratar eru sá flokkur sem hefur mest beitt sér fyrir beinu lýðræði og gerð nýrrar stjórnarskrár.

Margir kusu Píratanna aðallega í í borgarstjórnarkosningunum vegna þessarar stefnu þeirra, til dæmis þeir flugcallarinir sem vonuðustt til þess að Piratar myndu halda myndu halda þesau aðalmáli sínu til streitu í borgarstjórn.

En þannig fór það ekki. Píratar urðu eini flokkurinn í núverandi meirihluta, sem voru með þessa stefnu, og töldu sig þurfa að bakka með hana.

Þetta er vandi Pírata sem getur vaxið eftir því sem þeir komast oftar í þá aðstöðu að ynda meirihluta hér og þar í landsmálum og sveitarstjórnqarmálum.

 

 

 

 

 

 


mbl.is Viðvarandi halli í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar "aðeins einu sinni á ævinni" verða áhrínsorð.

Eftirsókn útlendinga eftir Íslandsferðum byggist meðal annars á því að upplifa eitthvað sem maður upplifir aðeins einu sinni á ævinni (once in a lifetime).

Þetta er mannleg fyrirbrigði og marg af hættulegum uppátækjum unglinga byggist á því að þeir eru máta sig við lífið og allar þess margvíslegu uppátæki, - stundum kallað fikt.

Dæmi um svona fyrirbrigði hér á landi var þegar hægt var að vaða upp eftir ánni Volgu inn í íshelli sem hún rennur úr undir Kverkjökli, fara inn í hellinn á stað þar sem lóðrétt gat var upp í gegnum jökulinn og baða sig þar.

Þar féll ísköld buna niður í gegnumm gatið og hægt var að liggja fyrst í baðinu, en fara síðan í kalda sturtu.

Þetta íshellisferðalag var ekki hættulaust, því að stundum hrundu klakastykki úr lofti eða munna íshellisins.

Eitt þúund tonna ísstál hrundi eitt sinn niður á stað, þar sem myndatökumaðurinn hafði staðið tveimur mínútum fyrr.

Líkurnar á að ná því myndskeiði voru 1 á móti 20 milljónum, - þetta gerðist aðeins einu sinni í svona stórum mæli á sumri.

Ég álpaðist í stuttmyndasamkeppni til þess í hitteðfyrra að fara í rólegheitum á galopnum örbil í sundbol gegnum bílaþvottastöð í fimm stiga frosti og norðan garra úti á Granda.

Ég mæli ekki með slíku fyrir nokkurn mann og myndi ekki gera það aftur fyrir nokkurn pening.

En þetta var eitthvað sem maður gerir "einu sinni á ævinni", svipað eins og þiggja kaffibollann forðum hjá Gísla á Uppsölum.

Uppátæki Justins Bieber er vafalaust mun hættulegra og gæti leitt til þess hjá einhverjum, sem slíkt reynir, að orðin "einu sinni á ævinni" (once in a lifetime) verða að áhrínsorðum, það gefst ekki annað tækifæri á ævinni til að reyna þetta.


mbl.is Óttast að fólk elti Bieber
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 4. nóvember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband