Einum of vinsæl helgi ?

Stundum hrúgast áhugaverðir viðburðir upp á sömu dagana þannig að auglýsingahvatningin "ekki missa af..." verður að vandamáli. 

Ég er áhugamaður um flug og bíla, en því miður fyrir mig eru aðalhátíðirnar á báðum sviðunum sömu helgina í júlí. 

Það var því í fyrsta sinn í fyrra sem ég gat komið austur á Selfoss hluta úr degi með einn af fornbílum mínum til að njóta góðrar stundar í hópi þeirra sem þar eru á miklu árlegu fornbílamóti. 

Öll ár fram að því hafði annað haft forgang, og var flugdagurinn á Akureyri árum og áratugum saman orsök þess þegar við Helga fórum norður, ég lýsti atburðum dagsins þar og við nutum samvista 

En síðustu ár kom fram á sjónarsviðið þriðji og sterkasti keppinauturinn um þessa helgi, útskriftir barnabarna okkar Helgu. 

Þetta sáum við ekki fyrir fyrir 50 árum þegar við hlóðum niður börnum ! 

Að sjálfsögðu hafa jafn mikilvægir atburðir í lífi afkomendanna og útskriftir úr háskólum forgang og nú útskrifast að minnsta kosti eitt á ári, svo að eina ferðina enn dettur flugdagurinn á Akureyri út. BISA úr sv. 19.6.2015 

Aðgerðir við opnun Sauðárflugvallar detta oft inn á þessa helgi, og höfum við Helga farið nokkrum sinnum beint eftir flugdaginn á Akureyri austur á flugvöllinn.

Nú eru snjóalög einstaklega mikil á Brúaröræfum eins og í fyrra, en það hefur samt verið hægt að fylgjast furðu vel með ástandinu á Sauðárflugvelli vegna þess að veðurstöðin "Brúaröræfi" er aðeins 3 kílómetra frá vellinum og hitinn þar yfirleitt einu stigi lægri en á flugvellinum.BISA, flughlað 19.6.2015

Ég flaug því, eftir að hafa fylgst náið með veðri þarna í allan vetur, á TF-ROS til vallarins síðdegis í gær, lenti þar og valtaði allar brautirnar fimm fram eftir nóttu. Flaug síðan til Reykjavíkur í morgun til að geta verið við útskrift Auðar Óskarsdóttur ( og Ninnu ) sem þjóðfræðings frá Háskóla Íslands.

Eins og loftmynd ber með sér, blasti Sauðárflugvöllur við alauður og þurr þegar komið var að honum í gær, þótt kolófært sé á vegarslóðum á þessu svæði vegna skafla, kraps og aurbleytu.BISA, miðnætursól 19.6.2015

Þarna var 12 stiga hiti, heiðskírt og hnjúkaþeyr í gær. Í fjarska má sjá Kárahnjúk og Snæfell hægra megin fjær. 

 

Snjó er óvenjulega mikið misskipt á hálendinu, mikill austan við Kreppu, enginn þar fyrir vestan en síðan kafsnjór frá Dyngjuhálsi og vestur úr.

En Sauðárflugvöllur, þaðan sem aðeins er fimm mínútna flug að Holuhrauni, er hér með auglýstur opinn og yfirfarinn.

Set inn í lokin næturmynd af sólarlituðum skýjum um miðnæturskeið í öræfablíðunni.  


mbl.is Einn af hápunktum flugsumarsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur verið vitað allan tímann.

Það hefur verið vitað í mörg ár hvaða áhætta er tekin með því að reisa rándýrar verksmiðjur á Bakka en menn hafa einfaldlega ákveðið taka eins mikla áhættu á jarðskjálftum og hægt er og alls ekki tekið í mál að færa verksmiðjustæðið neitt til. 

Það var líka vitað allan tímann við gerð Kárahnúkavirkjunar að á 6-7 kílómetra löngum kafla í miðjum göngunum frá Kárahnjúkastíflu til stöðvarhúss í Fljótsdal var svo mikið misgengi, að það sást greinilega úr lofti. 

En menn voru staðráðnir í að taka þessa áhættu og leyna henni með því að bora könnunarholur alls staðar á gangaleiðinni nema á þessu misgengissvæði. 

Töldu sig hafa verið afar heppna að misgengið var það síðasta sem bora átti í gegnum, því að þá voru framkvæmdirnar komnar svo langt, að ekki varð aftur snúið og af því að framkvæmdin var ríkistryggð skipti engu máli hver kostnaðurinn eða töfin yrði, jafnvel heldur ekki hvort virkjunin gæti yfirleitt risið.  

"Við ætluðum í gegn þarna hvort eð var" sagði fjölmiðlafulltrúi Landsvirkjunar þegar hann var spurður að því á meðan hvorki gekk né rak á þessum erfiða kafla, hvers vegna þessi mikla áhætta væri tekin.

Landsbankinn var aðal lánardrottinn framkvæmdarinnar og innan úr honum fengust þau svör, að fráleitt væri að hafa áhyggjur af þessu. "Því verr sem verkið gengur, því meira græðum við" var meðal annars sagt.  

 


mbl.is Versti staður kísilvers
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. júní 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband