"Túrbínutrixið" í endurnýjun lífdaga á upprunaslóðum.

"Túrbínutrixið" frá dögum Laxárdeilunnar í kringum 1970 byggðist á því að ákveða einhliða einhver hrikalegustu umhverfisspjöll Íslandssögunnar og keyra málið svo langt, að menn stæðu frammi fyrir gerðum hlut, jafnvel þótt framkvæmdir væru ekki hafnar við að sökkva Laxárdal og leiða Skjálfandafljót norðaustur í Kráká þaðan sem það myndi flæða um suðurenda Mývatns niður í Laxá. 

Kjarninn var að kaupa strax svo risavaxnar túrbínur í hina nýju stóru Laxárvirkjun að ekki yrði aftur snúið.  Þótt eftir væri að semja við landeigendur og ganga frá flestum hnútum vegna virkjanaáformanna, myndu jarðir verða teknar eignarnámi eftir geðþótta virkjanafrömuðanna. 

Þeim, sem þetta gerðu var viss vorkunn miðað við hina skefjalausu stóriðjustefnu nútímans. Raforka Laxárvirkjunar nægði vart lengur fyrir vaxandi orkuþörf á Akureyri fyrir heimili og fyrirtæki þar, og vegna ístruflana á veturna var oft rafmagnslaust dögum saman. 

Andófsmenn gegn hinum hrikalegu fyrirætlunum sneru hins vegar dæminu við, þegar saka átti þá um að hafa valdi stórtjóni ef menn sætu uppi með gagnslausar túrbínur. 

Sigurðr Gizurarson verjandi þeirra sýndi fram á að það væru túrbínukaupendurnir sjálfir, sem hefðu með óbilgirni sinni og siðleysi skapað það ástand sem ríkti. 

Nú hefur túrbínutrixið verið notað rækilega við smíði nýs stórs hótel skammt frá bökkum Mývatns. 

Vegna klúðurs við það að meta áhrif þessara framkvæmda var drifið í að reisa hótelið, þannig að menn stæðu frammi fyrir gerðum hlut. 

Framkvæmastjóri Íslandshótela hælist um sigurreifur sem von er, því að hann stefnir að því að láta nýja túrbínutrixið svínvirka. 

Og það á réttum stað, við vatnið og vatnasviðið sem menn vildu verja og vernda 1970, en þurfti dínamit til. 

Eftir þrjú ár verður hálf öld síðan umhverfis- og náttúruverndarfólk á þessum slóðum vann frækilegan sigur. 

Þess vegna er það dapurlegt hvernig öllum brögðum er beitt á mörgum stöðum við hið dýrmæta stöðuvatn til að fara eins greypilega á svig við allar varúðarreglur og hugsanlegt er.   


mbl.is Reksturinn ekki í uppnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skúmurinn er enn harðsnúnari.

Þegar dýr eða fuglar venda afkvæmi sín eða ból, greni eða hreiður, geta þau sýnd harðfylgni og grimmd sem er langt fram yfir það sem þau sýna að öðrum kosti. 

Skúmurinn er frægur fyrir hörku í þessum efnum og er fylginn sér á veiðum. 

Eitt sinn þegar ég var að fljúga lágt til myndatöku rétt upp af sandströndinni fyrir vestan Jökulsárlón gerðist það tvisvar að skúmar flugu upp og réðust á flygildið, sem er aðeins 120 kíló. 

Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum. Annar þeirra gerði tvívegis árásir á mig og mér varð ekki um sel, því að í þessu flygildi situr maður alveg óvarinn og berskjaldaður líkt og á trjátrumbi. 

Ég geri ráð fyrir að þeir hafi verið að verja hreiður sín frekar en veiðilönd, þótt svona létt flygildi sé ekki mikið þyngra en stærstu fuglar. 

Ég var því fljótur til að víkja út yfir fjöruna og hækka flugið svo að fleiri skúmar yrðu ekki truflaðir. 


mbl.is Svanur ræðst á kind (myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérkennilegt að miða við aðrar flugvélar en þær, sem mest notuðu brautina.

Meðan neyðarbrautin var opin, voru það mest tiltölulega litlar sjúkraflugvélar, sem þurftu að nota hana þótt vélar á stærð við Fokker F50 og Dash 8 gerðu það líka. 

Þess vegna var það með miklum ólíkindum þegar ekki var gert ráð fyrir notkun smærri vélanna í úttekt á notagildi brautarinnar og að verkfræðistofa, þar sem einn eigenda var jafnframt eigandi í byggingarfélaginu sem naut góðs af því að brautinni yrði lokað, væri látin gera þessa úttekt. 

Þetta er aðeins eitt af mörgum atriðum í atburðarásinni varðandi þessa braut, sem þarfnast skoðunar. 

Enn er ekki of seint að halda brautinni opinni með því einfaldlega að lækka þá byggingu, sem á að standa næst henni á Valsreitnum. 


mbl.is Rannsaki flugvallarmálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. júlí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband