Glöggt gests augað?

Það er ekki furða þótt útlendingum finnist þeir ekki sjá mörg merki um kreppu á Íslandi. Ekki þarf annað en að horfa á alla stóru bílana í umferðinni þar sem á ferð er eyðslufrekasti og mest mengandi bílafloti í Evrópu.

Þetta segir þó ekki alla söguna því að vegna fjarlægðar landsins frá öðrum löndum sitjum við uppi með allt of dýran og stóran bílaflota, sem skilur eftir sig slóð vanskila eða greiðsluerfiðleika upp á tugi milljarða vegna allra bílalánanna sem voru tekin fyrir bílunum á sínum tíma. 

Útlendingarnir hafa heldur ekki samanburð við ástandið fyrir hrunið. 

Hins vegar er ljóst af ýmsum dæmum, sem komið hafa upp á yfirborðið, að fjöldi fólks notaði sér aðstöðu sína til að færa til fjármuni þannig að eftir hrun geti þeir haft það jafn gott og fyrir hrun og veitt sér mikinn munað sem fyrr. 

Það er gömul saga og ný að sumir veriðast geta grætt á hverju sem er, hvort sem það er uppgangur, umsvif, hrun eða vandræðum annarra. 

Ein þekktasta fjármálalega "hýena" Bretlands flýtti sér til Íslands þegar hrunið dundi yfir til þess að koma ár sinni fyrir borð og fjárfesta í brunaútsölum. 


mbl.is Lítil ummerki um erfiðleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón Jónsson

Ómar minn

Ég ek um á Dodge Ram með 38" dekkjum á sumrin og 44" á vertum.

Þetta er mjög hagkvæmur bill bensin eyðslan er reyndar 18 ti 22 á hundraðið 

Ég gæti svo sem fengið mér bíl sem eyddi 10 l en það væri bara miklu dýrara fyrir mig.

Raminn er 14 ára gamall í fínu lagi.

Ef ég kaupi nýjan bíl sem eyðir 10l kostar það mig miklu meira en að eiga raminn áfram.

Það verður að skoða alla myndina.

Sigurjón Jónsson, 8.3.2010 kl. 21:16

2 Smámynd: Hjalti Tómasson

Sem betur fer voru það margir sem gerðu það gott á uppgangstímunum nýliðnu og ekki er þeim það of gott.

Fólki sem vann fyrir laununum sínum á heiðarlegan hátt og fjárfesti viturlega óska ég alls hins besta og megi það ávaxta sitt pund enn frekar.

Það eru þeir sem gengu um rænandi og ruplandi sem ég læt fara í taugarnar á mér. Að þessir menn skuli að fá að eiga húsin sín, snekkjurnar, aflandsfyrirtækin og sjóðina sína í erlendu fjármálaskjólunum meða meðaljónar og jónur þessa lands eiga á hættu að missa allt sitt er grátlegra en tárum taki.

Hvort þú rænir heimili fólks með kúbeini eða gegnum bankann þinn finnst mér vera aukaatriði. Það eiga einfaldlega sömu lög að gilda fyrir alla hvar sem þeir í flokki standa.

Vonandi verður það hérna megin grafar að við sjáum einhverja af þessum prelátum dregna í járnum fyrir dómara til að standa fyrir máli sínu.

Lallar Jones þessa lands þurfa þess með reglulegu millibili, af hverju ekki hinir ?

Kv.

Hjalti Tómasson, 8.3.2010 kl. 21:58

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þú getur líka gert eins og ég að nota 14 ára bíl sem eyðir 5 lítrum á hundraðið. Geta síðan gripið í minnsta og ódýrasta jöklajeppa landsins, 24 ára gamlan ef þig langar til að þeysa um Vatnajökul.

Ómar Ragnarsson, 9.3.2010 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband