Hvers vegna endalaust þetta langa og leiðinlega orð, "áhafnarmeðlimir"?

Íslenska á gott heiti yfir hermenn á herskipi. Þeir eru sjóliðar. Sams konar heiti yfir þá, sem starfa um borð í flugvélum, er flugliðar. 

Um borð í bátum og skipum starfa skipverjar.

Öll þessi orð eru stutt og hnitmiðuð, aðeins þrjú atkvæði.

Nei, það virðist í gangi herferð til að útrýma þeim og troða inn í staðinn hinu langa, leiðinlega og ónákvæma orði áhafnarmeðlimir, sem er sex atkvæða orð, tvofalt lengra en ofangreindu heitin.

Og orðið áhafnarmeðlimur segir út af fyrir sig ekkert um það á hvers konar samgöngutæki þessir áhafnarmeðlimir vinna.

Hve oft skyldi ekki hafa verið reynt að hamla gegn þessari hrörnun og geldingu málsins?

Á að trúa því að orðskrípið áhafnarmeðlimir muni drepa af sér góðu, stuttu heitin, sem bæði eru helmingi styttri og hnitmiðuð að öllu leyti? 


mbl.is 99 ölvaðir flugmenn stöðvaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Einhver er í áhöfn og engin þörf á að segja þar að auki að hann sé þar "meðlimur".

Og hús er á ákveðnum stað og heldur engin þörf á að greina sérstaklega frá því að hús sé "staðsett" á einhverjum stað.

Menn eru í vörninni eða sókninni í til að mynda knattspyrnu og eru þar ekki allir jafn góðir en íþróttafréttamenn gapa nú sífellt um "sóknarlega" og "varnarlega".

Þorsteinn Briem, 22.7.2014 kl. 20:48

2 Smámynd: Kristján Þorgeir Magnússon

Ekki alveg rétt Ómar.  Þeir sem starfa um borð í loftfari eru flugverjar.  Það hugtak tekur til flugliða og þjónustuliða.  Flugliðar eru yfirmenn um borð s.s. flugmenn, vélstjórar og,- þar sem við á,- loftsiglingafræðingar sem og aðrir sem þurfa skírteini til að vinna sín störf í loftfari.

Kristján Þorgeir Magnússon, 22.7.2014 kl. 21:21

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Er fólk sem er í áhöfn skips eða loftfars meðlimir. Fólkið er í áhöfn.Ómar veit þetta.

Sigurgeir Jónsson, 23.7.2014 kl. 03:13

4 identicon

Mæl þú manna heilastur. Satt og rétt.

Eiður (IP-tala skráð) 23.7.2014 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband