Eðlileg afleiðing af skotvopnadýrkun Bandaríkjamanna.

Hvíti maðurinn ruddi sér braut og valtaði yfir rauða menn í tveimur heimsálfum og þetta vald spratt fram úr byssuhlaupunum sem bogar og örvar indíánanna máttu sín litils gegn. 

Sé kýrin heilagt dýr á Indlandi og sauðkindin jafnvel enn hér á landi er byssan dýrkuð sem aldrei fyrr vestra. Bandaríkjamenn bera fyrir sig að í "frontier"landi, landnámssvæði, sé almenn byssueign eðlileg. 

Það eru falsrök, því að hvorki Kanadamenn né Ástralíumenn búa við neitt viðlíka böl af völdum mannvíga með skotvopnum og Bandaríkjamenn. 

Ungi drengurinn sem tók upp leikfangabyssuna gæti hafa orðið fórnarlamb þeirrar takamarkalausu dýrkunar á byssunni sem er innrætt strax í frumbernsku. Það leit kannski út í hans augum eins og skemmtilegur byssuleikur þegar lögreglumaður skipaði honum að setja hendur upp fyrir höfuð.

Lögreglumaðurinn tilheyrði stétt manna þar sem ítrasta tortryggni var nauðsynleg til að vera ekki skotinn af einhverjum sem beitti lymskulegu bragði.

Báðir voru fórnarlömb óeðlilegs ástand í þjóðfélagi þeirra, ef marka má fréttir af því að lögreglumaðurinn sé niðurbrotinn maður.  

Á mörgum sviðum nútímalífs bæði í Bandaríkjunum og annars staðar virðist sem ákveðin valdaöfl hafi kverkatak á þjóðfélögum með því að nýta sér yfirburði fjármagns og aðstöðu. 

Þeir sem hagnast á vopnasölunni og eigendur vopnanna vestra koma ævinlega í veg fyrir breytingar og á öðrum sviðum má víða sjá víða um lönd hvernig yfirburðir fjármagns, valda og aðstöðu standa í vegi fyrir umbótum á ýmsum sviðum. 


mbl.is Varði framgöngu lögreglumannsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hvar eru hríðskotabyssur Sjálfstæðisflokksins og "Kristilega" flokksins?

Ég er viss um að þær voru hér í gær.

Þorsteinn Briem, 25.11.2014 kl. 09:08

2 Smámynd: Vilhjálmur Eyþórsson

Svartir eru alls tæp 13% Bandaríkjamanna, að konum, börnum og gamalmennum meðtöldum. Ungir svartir karlmenn, sem varla eru meira en 3-4% þjóðarinnar fremja þó um 55% morða í landinu og mikið af því sem eftir er er framið af ungum mönnum af rómönskum uppruna. Morðtíðni meðal hvítra Bandaríkjamanna er svipuð og í Vestur- Evrópu, um tvö morð á hundrað þúsund íbúa.

Þetta er sá veruleiki sem þarna er um að ræða og menn ættu að hafa í huga þegar rætt er um þessi mál.

Vilhjálmur Eyþórsson, 25.11.2014 kl. 15:32

3 Smámynd: Már Elíson

Það breytir því ekki, Vilhjálmur, að framferði lögreglu í USA er staðfest sem alger hrottaskapur og algerlega að óþörfu í garð litaðra, sem er ekkert annað en rasismi, rasismi sem lifir góðu lífi í USA í skjóli undarlegra laga tilbúinna og studda af hvítum. - Þarf t.d. að skjóta 12 dauðaskotum að ungum manni til að stöðva hann ?http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/11/25/thu_ert_of_mikil_skraefa_til_ad_skjota/

Már Elíson, 25.11.2014 kl. 16:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband