"Less is more". "KISS!"

Ofangreind erlend kjörorð um að oft sé minna meira og að gáfulegt sé að hafa hluti einfalda (Keep It Simple, Stupid! koma oft í hugann þegar staðið er frammi fyrir viðfangsefnum, sem verða óleysanleg vegna flækjustigs eða þegar fyrirbæri eru ofhlaðin af flóknum atriðum. 

Þegar ný gerð af BMW 7 var sett á markaðinn fyrir tæpum áratug urðu þau tímamót í bíladómum hjá nokkrum erlendum bílablöðum, að blaðamenn við þau gáfu bílnum aðeins þrjár til fjórar stjörnur í stað fimm, eins og tíðkast hafði fram að því varðandi þennan lúxusbíl og telja hefði mátt eðilegt um bíl, sem keppir um hylli kaupenda við þá allra bestu á markaðnum. 

Ástæðan var sú að tölvunördar fengu því ráðið að í bílnum var svo flókinn tölvubúnaður, sem öllu stýrði, allt frá útvarpstækjum og sæta- og stjórntækjastillingum til miðstöðvarkerfis, að margir kaupendur lentu í stanslausum vandræðum frá þeim degi sem þeir fyrst settust inn í bílinn og komust jafnvel ekki af stað eða urðu að stöðva för. 

Svo flókinn var þessi búnaður, að fyrir óvana þurfti helst að fara á sérstakt námskeið til að framkvæma hina einföldustu hluti, svo sem stillingu miðstöðvar. 

Bílablaðamennirnir ofangreindu töldu þetta svo stóran galla á bíl, sem fólk borgaði stórfé til þess að eignast og njóta þæginda í, að hann verðskuldaði ekki lengur fimm stjörnurnar sem hann hafði haft árum saman. 

Um daginn reynsluók ég tiltölulega ódýrum bíl sem var með þykkustu og stærstu leiðbeiningabók sem ég hef lengi séð og var með ólíkindum flókin og illskiljanleg.

Það kemur ekki á óvart þótt einhver eigi eftir að drepa sig á því að lokast inni í völundarhúsunum sem orðin "hlaðinn aukabúnaði" geta búið til, orðin sem lokka svo marga til þess að kaupa eitthvað margfalt dýrara verði en þörf er á.

Ég á til eina mergjaða sögu í stíl við þá sögu, sem þessi bloggpistil er tengd við, en hún er bara of löng fyrir bloggpistil.  

Þrátt fyrir stærð bókarinnar var engin leið að átta sig á því hvernig skipta skyldi um hjól á bílnum og setja varahjól undir. Ég gafst upp og notaði frekar eigin smátjakk, sem ég hafði meðferðis fyrir einskæra tilviljun. 

Í öðrum bíl var ekki með nokkru móti hægt að finna í leiðbeiningabæklingi hvernig ætti að opna bensínáfyllinguna. 


mbl.is Ekkert spaug að gleyma lykilfjarstýringu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stundum þarf hreinlega að taka við nýjungum með opnum hug og kynna sér málið. Ég hef umgengist svona lykillausan aðgangsbúnað lítillega á nýjum bíl móður minnar og þetta er mikil framför. Nú nægir að hafa lykilinn alltaf í vasanum og hægt að aflæsa bílnum með  því að þrýsta á hnapp á hurðarhúni. Engin þörf lengur á að kafa eftir lyklinum með hluti í fanginu. Búnaðurinn sem þarf í þetta er auk þess ekkert dýrari en sá búnaður sem var þegar í bílunum, hafi þeir verið með fjarstýringu og þjófavarnarflögu í lyklinum.

Kristinn Magnússon (IP-tala skráð) 23.12.2014 kl. 18:03

2 identicon

Alskyns þjófavarnir sem gera ekkert nema skaprauna bíleigandanum

þar með talið "sérlykill" á eina felgurónna

Grímur (IP-tala skráð) 23.12.2014 kl. 18:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband