Sýnd veiði en ekki gefin.

Ef niðurstöður borgarstjórnarkosninga yrðu svipaðar og í skoðanakönnun Viðskiptablaðsins gætu Píratar knúið fram það stefnumál sitt að kosið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu eða atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Þeir urði að kyngja þessu grundvallarstefnumáli sínu við myndun núverandi borgarstjórnarmeirihluta þótt það hafi ekki farið hátt.

Einn mjög stór óvissuþáttur er fólginn í skoðanakönnunum varðandi fylgi Pírata í kosningum, sem hefur komið skýrt í ljós í undanförnum kosningum.

Grunnnfylgi þeirra er meðal fólks sem aðhyllist sem mesta notkun netsins, ekki hvað síst í stjórnmálum.

Þetta fólk hefur verið það tregt til að fara á kjörstað, að minnstu munaði að Píratar fengju engan þeirra þriggja þingmanna, sem þeir rétt mörðu að fá í Alþingiskosningunum 2013, vegna hins ósanngjarna ákvæðis í kosningalögum um 5% atkvæðaþröskuld.

28% fylgi í borginni samkvæmt skoðanakönnun er því sýnd veiði en ekki gefin.

En jafnvel þótt Píratar fengju "aðeins" um 20% atkvæða í borgarstjórnarkosningum, yrði staða þeirra mun sterkari til að fara ekki í borgarstjórnarsamstarf nema grundvallaratriði stefnu þeirra varðandi beint lýðræði fáist fram.


mbl.is Píratar stærstir í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Þeir urði að kyngja þessu grundvallarstefnumáli sínu við myndun núverandi borgarstjórnarmeirihluta þótt það hafi ekki farið hátt."  

Þeir sviku kjósendur um þetta grundvallarstefnumál sitt strax í upphafi og hafa ekki viljað tala mikið um það síðan.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 13:50

2 identicon

Það er ömurlegt að fylgjast með eineltispakkinu í Samfylkingunni þessa dagana.  Nú á að kenna Árna Páli um stjórnarskrármálið.  Vilja þau ekki kenna honum um flugvallarmálið líka?  

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 13:54

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Kosning um Reykjavíkurflugvöll fór fram og spurt var hvort flugvöllurinn ætti að fara af Vatnsmýrarsvæðinu eftir árið 2016 og eftir því hefur verið unnið og samningar gerðir á milli Reykjavíkurborgar og ríkisins.

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 15:24

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

20.3.2001:

kosningunni, sem var rafræn, var hægt að kjósa á milli þriggja kosta.

Í fyrsta lagi að flugvöllur yrði áfram í Vatnsmýri eftir 2016.

Í öðru lagi að flugvöllur færi úr Vatnsmýri eftir árið 2016 og í þriðja lagi var hægt að skila auðu."

Meirihlutinn vill flugvöllinn burt í kosningum um framtíð Vatnsmýrarsvæðisins og staðsetningu flugvallarins

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 15:25

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Undirskriftir árið 2013 um Reykjavíkurflugvöll voru um 29% af þeim sem voru á kjörskrá í síðustu alþingiskosningum.

20.9.2013:

"Rétt rúmlega 20 þúsund Reykvíkingar skrifuðu undir á síðuna lending.is.

Að sögn Njáls Trausta Friðbertssonar, formanns undirskriftarsöfnunarinnar höfðu 20.626 Reykvíkingar skrifað undir en um tvö prósent þeirra eru yngri en 18 ára og hafa því ekki náð löglegum kosningaaldri.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands voru tæplega 88 þúsund manns á kjörskrá í Reykjavík árið 2009, engar nýrri tölur er að finna á síðunni.

En ef miðað er við þær tölur má ætla að tæplega 23 prósent kosningabærra Reykvíkinga hafi skrifað undir til þess að mótmæla flutningi flugvallarins."

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 15:27

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Dagur B. Eggertsson 4.9.2015:

"Við fengum kynningu á öryggisúttekt Isavia um lokun þriðju brautar Reykjavíkurflugvallar en í niðurstöðum segir að óhætt sé að loka henni þegar horft er til viðmiða Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO).

Fleira fróðlegt kom fram, meðal annars það að brautin hefur verið lokuð á löngum köflum í sumar því hún hefur verið notuð sem flugvélastæði fyrir einkaþotur.

Notkunarstuðull á vellinum án þriðju brautar reiknast 97% en alþjóðlegt viðmið er að hann eigi ekki að fara niður fyrir 95%.

Þegar metnar eru raunverulegar aðstæður, byggt á nákvæmum vindmælingum, ástandi flugbrautar, skyggni og skýjahæð og raunverulegri notkun í innanlandsflugi og sjúkraflugi er nýting vallarins miðað við að þriðju brautinni sé lokað enn betri, eða vel yfir 98%.

Lækkun nýtingar vegna lokunar þriðju brautarinnar reiknast um 0,6%.

Öryggisúttektin sýnir þannig að með mildunarráðstöfunum er ásættanlegt að loka þriðju brautinni.

Mikilvægt er að það gangi eftir, í samræmi við samninga ríkis og borgar þar um á undanförnum árum, nú síðast samning Reykjavíkurborgar og ríkisins sem samþykktur var einróma í borgarráði þann 31. október 2013."

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 15:31

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Samkomulagið sem hin svokallaða Rögnunefnd byggist á:

25.10.2013:

"Í framhaldi af undirritun meðfylgjandi samkomulags milli ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group munu ríki og Reykjavíkurborg vinna í samræmi við áður undirritaða samninga.

Undirbúningur eftirfarandi verkefna mun þegar hefjast:"

"... ii) Aðilar ljúki vinnu við endurskoðun á deiliskipulagi fyrir flugvallarsvæðið og tilkynnt verði um lokun NA/SV-brautarinnar samhliða auglýsingu þess, síðar á þessu ári [2013]. ..."

"iii) ... Óháð öðrum verkþáttum sem í samkomulaginu felast munu innanríkisráðuneytið og Isavia hafa forgöngu um að kennslu- og einkaflugi verði fundinn nýr staður í nágrenni borgarinnar í samræmi við áður gefin fyrirheit vegna endurbyggingar vallarins um síðustu aldamót og skal stefnt að því að framkvæmdir verði hafnar eins fljótt og verða má."

Samkomulag ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group um sameiginlega athugun á flugvallarkostum (svokölluð Rögnunefnd)

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 15:34

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

"SKULDBINDINGARGILDI SAMNINGA

Frá fornu fari hefur það verið viðurkennd meginregla í rétti flestra þjóða,samninga eða aðra löggerninga skuli halda eða efna.

Þessi regla, sem allt traust og tiltrú í viðskiptalífinu byggist á, var m.a. orðuð skýrlega í hinum forna Rómarrétti: "Pacta sunt servanda".

Ekki er fjarri lagi að fullyrða, að kenningin um skuldbindingargildi samninga sé hinn raunverulegi kjarni samningaréttarins, sem allar aðrar reglur hans séu byggðar á, beint eða óbeint ..."

Páll Sigurðsson lagaprófessor, Samningaréttur - Yfirlit um meginreglur íslensks samningaréttar, útg. 2004, bls. 23-24.

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 16:18

9 identicon

"vegna hins ósanngjarna ákvæðis í kosningalögum um 5% atkvæðaþröskuld." já þetta er ósanngjarnt gagnvart fólkinu sem vill almennilega styrka stjórn til að stýra landinu - mörkin ættu að vera aminnst 10%

Grímur (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 18:51

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og flug­vall­ar­vin­ir fengju 4,4% at­kvæða sam­kvæmt könn­un­inni sem unn­in er af Gallup fyr­ir Viðskipta­blaðið en fengu 10,7% í kosn­ing­un­um í fyrra."

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 18:55

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fylgi flokka á landsvísu - Skoðanakönnun Gallup 2.10.2015:

Píratar 35%,

Samfylking 10%,

Björt framtíð 6%,

Vinstri grænir 11%.

Samtals 62% og þessir flokkar mynda nú meirihluta borgarstjórnar.

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur 34% og þar af Framsóknarflokkur 10%.

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 19:23

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fylgi flokka í Reykjavík - Skoðanakönnun Gallup 8.10.2015:

Píratar 28%,

Samfylking 25%,

Björt framtíð 8%,

Vinstri grænir 11%.

Samtals 72% og þessir flokkar mynda nú meirihluta borgarstjórnar.

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur 27% og þar af Framsóknarflokkur 4%.

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 19:26

13 identicon

Fylgi flokka á landsvísu - Skoðanakönnun Gallup 2.10.2015:

Miað við 10%  múrinn

Píratar 44%,,

Vinstri grænir 14%.

Sjálfstæðisflokkur 43%

Grímur (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 20:52

14 identicon

Afsakið las þetta rangt hjá SB

Fylgi flokka á landsvísu - Skoðanakönnun Gallup 2.10.2015:

Miað við 10%  múrinn

Píratar 50%,,

Vinstri grænir 16%.

Sjálfstæðisflokkur 34%

Grímur (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 20:55

15 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Um R.Víkurflugvöll gildir það sama og um vesturlandsveginn.Þótt mosfellingar samþyktu í atkvæðagreiðslu að loka vesturlandsveginum 2018 hefði það ekkert gildi.Það er íslenska ríkið sem hefur umráð yfir veginum.En R.Víkurborg getur bannað hald breimakatta í Sörlaskjóli.Dagur B. hefur vald til þess.Og þótt einhver ráðherra myndi skrifa undir við mosfellinga að loka vesturlandsveginum þá hefur slík undirskrift ekkert gildi heldur.Ráðherra hefur ekki veld til að gefa eigur ríkisins samkvæmt stjórnarskrá.Slíkt verður að fara fyrir Alþingi.

Sigurgeir Jónsson, 8.10.2015 kl. 20:56

16 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Vonast er eftir að ljóðabók st.bre.komi út fyrirjólin.

Sigurgeir Jónsson, 8.10.2015 kl. 20:58

17 identicon

Miðað við 10% lágmar

Fylgi flokka í Reykjavík - Skoðanakönnun Gallup 8.10.2015:

Píratar 32%,

Samfylking 29%,

Vinstri grænir 13%.

Sjálfstæðisflokkur 26%

Grímur (IP-tala skráð) 8.10.2015 kl. 21:02

18 Smámynd: Þorsteinn Briem

Samfylkingin, Björt framtíð og Vinstri grænir fengu meirihluta borgarfulltrúa í síðustu borgarstjórnarkosningum.

Samfylkingin bætti við sig tveimur mönnum og minna en 1% munaði á sjötta manni Samfylkingarinnar og öðrum manni Framsóknar og flugvallarvina.

Og næstu borgarstjórnarkosningar verða árið 2018.

Haldi einhverjir því fram að borgarfulltrúi Pírata hafi svikið einhverja hefur fylgi Pírata samt sem áður aukist mikið í borginni.

Og haldi þeir því einnig fram að fylgi Pírata hafi aukist vegna flugvallarmálsins eiga þeir að sjálfsögðu að sanna það.

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 21:34

19 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sumir vilja greinilega flytja Landspítalann frá flugvellinum á Vatnsmýrarsvæðinu en vilja hins vegar ekki flytja flugvöllinn þar frá Landspítalanum.

Ómar Ragnarsson 2.4.2015:

"
Á sínum tíma hefði verið skárra að reisa sjúkrahúsið í Fossvogi meðan enn var þar nægt landrými og aðeins einn spítali kominn í stað allra húsanna, sem komin eru á Landsspítalalóðinni.

En nú er orðið of seint að reyna að gera þetta í Fossvoginum.

Við innanverðan Grafarvog er stórt autt svæði við Keldur. Sömuleiðis hjá Vífilsstaðaspítala."

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 21:54

20 Smámynd: Þorsteinn Briem

Meirihluti Vatnsmýrarsvæðisins, 58%, er í eigu Reykjavíkurborgar og einkaaðila.

Eignarrétturinn er friðhelgur samkvæmt stjórnarskránni og Reykjavíkurborg getur því krafist þess að ríkið afhendi henni það land sem borgin á núna á Vatnsmýrarsvæðinu.

Og ein flugbraut hefur ekki verið talin nægjanleg á Vatnsmýrarsvæðinu.

Reykjavíkurborg ræður því einnig hvort fyrirferðarmikil aðflugsljós á stálbitum fyrir austur-vestur braut Reykjavíkurflugvallar yrðu reist á útivistarsvæði Reykvíkinga vestan Suðurgötu.

Einnig hvort skógur yrði felldur vegna flugbrautarinnar við austurenda hennar í Öskjuhlíð, sem einnig er útivistarsvæði Reykvíkinga.

Þar að auki er svæðið við suðurenda norður-suður brautar flugvallarins einnig útivistarsvæði Reykvíkinga.

Reykjavíkurborg og einkaaðilar eiga meirihlutann af Vatnsmýrarsvæðinu, merkt hér með gulum strikum:

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 21:58

21 Smámynd: Þorsteinn Briem

Reykjavíkurborg og einkaaðilar eiga meirihlutann af Vatnsmýrarsvæðinu - Stjórnarskrárvarinn eignarréttur

"Eignarréttur er réttur einstaklings, fyrirtækis eða annars lögaðila til að nota hlut, selja eða ráðstafa á annan hátt og að meina öðrum að nota hann."

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 22:00

22 Smámynd: Þorsteinn Briem

Meirihluti Vatnsmýrarsvæðisins, 58%, er í eigu Reykjavíkurborgar og einkaaðila.

Í ársbyrjun 2006 var markaðsvirði byggingaréttar á 123 hekturum á Vatnsmýrarsvæðinu 74,5 milljarðar króna án gatnagerðargjalda, rúmlega 600 milljónir króna á hektara, og um 37 þúsund krónum hærra á fermetra en í útjaðri borgarinnar.

Og frá þeim tíma hefur verið 70% verðbólga hér á Íslandi.

Úttekt á framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar, bls. 64-65

"78. gr. ... Tekjustofnar sveitarfélaga skulu ákveðnir með lögum, svo og réttur þeirra til að ákveða hvort og hvernig þeir eru nýttir."

Stjórnarskrá Íslands

Það kemur undirrituðum hins vegar ekki á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn virði hvorki samninga sem ríkið hefur gert né stjórnarskrána.

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 22:14

23 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Um flugvelli gildir það sama og um þjóðvegi. Þeir eru eign ríkisins,nema ef um einkafugvelli sé að ræða.

Sigurgeir Jónsson, 8.10.2015 kl. 22:22

24 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ljóðabók st.br.gæti orðið söluhæsta ljóðabókin 2015.

Sigurgeir Jónsson, 8.10.2015 kl. 22:24

25 Smámynd: Þorsteinn Briem

Landið er í eigu Reykjavikurborgar og mannvirki á landinu verða að víkja ef borgin krefst þess.

Þorsteinn Briem, 8.10.2015 kl. 22:32

26 identicon

Mér finnst það alveg fáránlegt þegar Dagur er að vitna í kosninguna 2001 um framtíð Reykjavíkurflugvallar sem vilja meirihluta Reykvíkinga.

Borgarstjórn Reykjavíkur undir forystu Ingibjargar Sólrúnar samþykkti, að niðurstaða kosningarinnar skyldi vera bindandi tækju að minnsta kosti þrír fjórðu hlutar atkvæðisbærra manna þátt ( það er um 60.000 manns) í kosningunni eða ef einsýnt væri, að helmingur atkvæðisbærra manna (rúmlega 40.000 manns) greiddu öðrum hvorum kostinum, sem um yrði kosið, atkvæði sitt.

Aðeins 30219 af 81258 á kjörskrá kusu eða 37,2%., þar af vildu 14.529 eða 48,1% áfram flugvöllinn en 14.913 eða 49,3% að flugvöllurinn færi, það munaði aðeins 384 atkvæðum.
Ég var á leiðini á kjörstað þegar það var sagt í fréttum að kjörsókn væri það dræm að kosningin yrði ekki marktæk þannig að mér fannst ekki taka því að eyða tíma í þetta, enda var ISG búin að gefa út sýnar forsendur.

En viti menn ISG gekk á bak orða sinna af því að útkoman var að hennar skapi og síðan er þetta  orðin einhver heilagur sanleikur um vilja meirihluta Reykvíkinga. How low can you get.

Tómas Stefánsson (IP-tala skráð) 9.10.2015 kl. 00:21

28 Smámynd: Þorsteinn Briem

Kosningarnar um frumvarp Stjórnlagaráðs 20. október 2012 voru heldur ekki bindandi.

Samt sem áður vilja Píratar og Ómar Ragnarsson að eftir þeim verði farið.

Enda eru þær kosningar enn í fullu gildi.

Rétt eins og kosningarnar um Reykjavíkurflugvöll árið 2001.

Undirskriftasafnanir og skoðanakannanir eru hins vegar ekki kosningar.

Kosning um Reykjavíkurflugvöll fór fram og spurt var hvort flugvöllurinn ætti að fara af Vatnsmýrarsvæðinu eftir árið 2016 og eftir því hefur verið unnið og samningar gerðir á milli Reykjavíkurborgar og ríkisins.

"
Frá fornu fari hefur það verið viðurkennd meginregla í rétti flestra þjóða,samninga eða aðra löggerninga skuli halda eða efna.

Þessi regla, sem allt traust og tiltrú í viðskiptalífinu byggist á, var m.a. orðuð skýrlega í hinum forna Rómarrétti: "Pacta sunt servanda"."

Þorsteinn Briem, 9.10.2015 kl. 01:37

29 Smámynd: Þorsteinn Briem

Harla einkennilegt að vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um hvað eigi að vera á landi Reykjavíkurborgar.

Þorsteinn Briem, 9.10.2015 kl. 01:44

30 identicon

Kosningarnar um frumvarp Stjórnlagaráðs 20. október 2012 eru ekki til umræðu.

Hver var að tala um þjóðaratkvæðargreiðslu? Hvernig væri að núverandi íbúar Reykjavíkur fengju að kjósa um það hvort að þeir vilji að Reykjavíkurflugöllur verði þar sem hann er eða eyða ??milljörðum í að færa hann eitthvert.

Það er alltaf verið að tala um hversu mikils virði þetta land í Vatnsmýri er en hvað hefur Borgin fengið mikið úr þessum seldu lóðum hingað til, alltaf verið að gefa þær. Samanber S8 og Valsmenn?

Tómas Stefánsson (IP-tala skráð) 9.10.2015 kl. 03:02

31 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ómar Ragnarsson í þessari bloggfærslu:

"... kosið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu eða atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa um framtíð Reykjavíkurflugvallar."

Valsmenn eiga landið á Hlíðarendasvæðinu.

"Hlíðarendi er erfðafestuland sem Knattspyrnufélagið Valur hefur átt frá árinu 1939."

Sagan - Hlíðarendi byggist

Og meirihluti Vatnsmýrarsvæðisins er í eigu Reykjavíkurborgar og einkaaðila, sem er stjórnarskrárvarinn eignarréttur.

Kosningar hafa farið fram um Reykjavíkurflugvöll sem eru enn í gildi, borgarstjórnir hafa framfylgt þeim kosningum og ríkið og Reykjavíkurborg hafa gert samninga á grundvelli þessara kosninga.

Þorsteinn Briem, 9.10.2015 kl. 03:49

32 Smámynd: Þorsteinn Briem

Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024 var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur 18. apríl 2002, afgreitt af Skipulagsstofnun til staðfestingar umhverfisráðherra 19. desember 2002 og staðfest af umhverfisráðherra 20. desember 2002.

Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024

Þorsteinn Briem, 9.10.2015 kl. 03:56

33 Smámynd: Þorsteinn Briem

Nýbyggingar Landspítalans verða allar norðan við Hringbrautina.

13.12.2012:


Deiliskipulag fyrir Landspítala við Hringbraut samþykkt

Þorsteinn Briem, 9.10.2015 kl. 04:00

34 Smámynd: Þorsteinn Briem

5.5.2009:

"Kauptilboð vegna lóða sunnan Sléttuvegar í Fossvogi voru í gær opnuð eftir að tilboðsfrestur rann út að viðstöddum áhugasömum bjóðendum.

Samtals bárust 1.609 tilboð frá 167 bjóðendum.

Hæsta tilboð í byggingarétt á lóð fyrir fjölbýlishús með 28 íbúðum var 369,6 milljónir króna.


Hæsta tilboð í byggingarétt tvíbýlishúss var 42,3 milljónir króna og hæsta tilboð í byggingarétt keðjuhúss (pr. íbúð) var 34,070 milljónir króna."

Reykjavíkurborg - Hæsta tilboð í byggingarétt á lóð fyrir fjölbýlishús með 28 íbúðum í Fossvogi um 370 milljónir króna

Þorsteinn Briem, 9.10.2015 kl. 04:05

35 identicon

Vegir liggja til allara átta....enginn þó að Lansanum...tralalalacool

Villi vegalausi (IP-tala skráð) 9.10.2015 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband