1.2.2016 | 01:23
Spyrja skal að leikslokum en ekki vopnaviðskiptum.
Ofangreind setning úr fornbókmenntumm okkar á við um vináttulandsleikinn við Bandaríkin þegar hann er skoðaður í samhengi við það sem framundan er hjá landsliðinu.
Það er auk þess engin skömm að tapa með einu marki fyrir bandaríska landsliðinu, sem keppti á HM síðast.
Staðan á stigalista FIFA er og verður aukaatriði fram yfir EM í Frakklandi.
Aðalatriðið eru samhengið í undirbúningnum og mótunin á liðinu og leikaðferð þess í leikjunum fyrir keppnina stóru, þar sem verður spurt að leikslokum í prófrauninni sem þar bíður liðsins.
Fimm leikmenn léku sinn fyrsta leik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 01:25 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.