Hvað voru margir skotnir í Svíþjóð og í Bandaríkjunum í gær?

Ætli það séu ekki um 50 manns skotnir á hverjum degi að jafnaði í Bandaríkjunum án þess að það þyki nokkur frétt. Enda eru 250 milljónir skotvopna í landinu.  Hvað eru margir skotnir í Svíþjóð? Hverjir voru þeir, sem Trump Bandaríkjaforseti segir að hafi verið skotnir þar í gær?

Á hvaða mælikvarða sem er,  er tíðni drápa með skotvopnum í Bandaríkjunum og skotvopnaeign sú langhæsta á Vesturlöndum, drápa á hverja þúsund íbúa eða drápa í heild. 

Það kannast enginn við að neinn hafi verið skotinn í Svíþjóð í fyrrakvöld á sama tíma sem forseti Bandaríkjanna heldur því fram að það hafi verið gert í þeim mæli að hann hrópi upp á stórum útifundi:  "Sjáið þið hvað gerðist í Svíþjóð í gærkvöldi!" 

Og heldur því fram að hann sé að gera Bandaríkin miklu öruggari. Hann hefur fundið upp nýjan veruleika, sem er hinn eini rétti. Allt annað eru "falsfréttir" og "falsveruleiki."


mbl.is „Sjáið hvað gerðist í Svíþjóð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Trump er stórhættulegur maður og þeir sem styðja hann virðast algjörlega lausir við allt sem kallast gagnrýnin hugsun. Trump heldur því t.d. stöðugt fram að miðlar eins og CBS, CNN, NBC, N.Y. Times, Washington Post og fleiri flytji falskar/upplognar fréttir af honum og stjórn hans. Samt getur hann ekki nefnt eitt einasta dæmi um þess konar fréttaflutning, ekki eitt. Svo éta stuðningsmenn hans þetta upp ... þessa algjöru þvælu ... og dreifa henni út um allt. Heimskan er alger. Er nokkuð skrítið þótt maður sé farinn að óttast um framtíðina?

Ketill B. (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 10:41

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

America is so great,
so much love and no hate,
Trump so hot,
will be shot,
by the Devil on a date.

Þorsteinn Briem, 19.2.2017 kl. 12:34

3 identicon

Ég er ekki Trump stuðningsmaður en þénaði samt hellings pening a því að veðja að hann myndi vinna forseta kosningar.aðal ástæðan firrir því var að ég trúi að flest sem kemur i fréttum er hauga lygi og i flestum tilfellum þver öfugt,i það minnsta með það sem skiptir einhverju mali.Ketill ég nenni ekki að telja upp dæmi en það er samt af nógu að taka .Ég sá myndbönd af kosningar fundum fra Hitlery þar sem það var svo fatt fólk að það myndi varla fylla bilskúr þetta voru myndir sem einhver hafði tekið a símann sinn,svo sina fréttir fotosjopaðar myndir af svaka manfjölda og halda því fram að hún hafi um 90%sjens a að vinna kosningar

https://www.youtube.com/watch?v=xMX4NmCJGm0

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 12:37

4 identicon

Helgi Ármannsson ... þú getur ekki frekar en Trump sjálfur nefnt eitt einasta dæmi um lygar þessara fréttamiðla þótt þú fullyrðir út í loftið hér að af nægu sé að taka. Þú ert sem sagt gott dæmi um hitt sem ég nefndi, þ.e. stuðningsmann sem étur upp þvæluna úr Trump og dreifir henni. Heimskan er alger og gagnrýnin hugsun engin.

Ketill B. (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 13:54

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Það eru engin "no go zone" í USA, en allmörg í Síþjóð.  Fleiri en 50 er mér sagt.

Ásgrímur Hartmannsson, 19.2.2017 kl. 14:23

6 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Sá í moggafrétt og meðfylgjandi tvítti að svíar gantast með IKEA í þessu samhengi.  Líklega búnir að gleyma því að saklaus viðskiptavinur og sonur hennar voru afhöfðuð í sænskri IKEA verslun af afvísuðum "flóttamanni", bara af því þau voru stödd þar!  Eflaust getum við ekki beðið eftir að fá slíka alþjóðlega menningu hingað til lands.

Kolbrún Hilmars, 19.2.2017 kl. 14:55

7 identicon

Hér eru staðreyndir um 'Svenska kalifatet' Svíþjóð og hvernig heiladauðum dhimmis í röðum stjórnmála- og embættismanna þar hafa leyft taumlausum innflutningi af múslímum að eyðileggja landið.

https://www.gatestoneinstitute.org/9901/sweden-migrants-costs

Pétur D. (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 15:09

8 identicon

Svo er nú Guði fyrir þakkandi að í BNA þarf ekki að ´ðottast að innfluttir múslimir drepi mann. Innfæddir þar sjá alfarið um þau mál sjálfir með góðum árangri. Í BNA voru drepnir 12253 árið 2013 en í Svíþjóð 87 árið 2014. BNA fólkið féll nánast allt fyrir hendi nágranna eða annarra innfæddra og Svíarnir líka, þrátt fyrir alla innflytjendurna þar. Til samanburðar má taka Brasilíu þar sem yfir 50000 voru myrtir árið 2014. Þar munu múslimir vera 35000 ca. og mættu vera ansi herskáir ef allt þetta fólk hefur fallið fyrir þeirra hendi. Enda er það ekki svo; langsamlega flestir vígamennirnir eru velkristnir heiðursmenn sem varla gera flugu mein.

Þorvaldur Sigurdsson (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 15:12

9 identicon

Hér er vegvísir:

https://www.facebook.com/photo.php?fbid=215967682210044&set=gm.10154087788366268&type=3&theater

Pétur D. (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 15:13

10 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Eftir stendur trúverðugleiki fullyrðingar handhafa hins nýja sannleika um hryðjuverkið í Svíþjóð í fyrrakvöld. 

Ómar Ragnarsson, 19.2.2017 kl. 15:55

11 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ómar, hvað vitum við svosem; hugsanlega var framið hryðjuverk í Svíþjóð í fyrrakvöld, sem lýtur þöggun þar til annað verður ákveðið? 
Meginmálið er að almenningur er hættur að trúa ríkisfjölmiðlum.  Bæði þar, jafnvel hér, og vestra líka.

Kolbrún Hilmars, 19.2.2017 kl. 16:25

12 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Nei, Kolbrún. Það var örugglega ekkert hyðjuverk framið í Svíþjóð í fyrrakvöld. Trump hefur bara verið að lesa bloggið hans Valdimars.

Jósef Smári Ásmundsson, 19.2.2017 kl. 17:42

13 identicon

Ärligt talat!
Vad är det med media!!
Nu har Trump attackerat Sverige!
Han säger bara sanningen, precis som Peter!

https://www.facebook.com/groups/279528999133185/?ref=nf_target&fref=nf

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 20:34

14 identicon

Er þetta þá allt lygi...?

http://gustafskulason.blog.is/blog/gustafskulason/entry/2190813/

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 20:36

15 identicon

Það eru allskonar misvitrir snillingar að bera saman tölur mirtra í annarsvegar USA og hinnsvegar Svíþjóð og hallar frekar á USA ,,En menn gleyma ansi oft að taka með í reikninginn íbuafjölda þessara landa,,,USA 321 MILLJÓN og Svíþjóð 9,8 MILLJÓNIR,,,,

Alfreð (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 21:26

16 identicon

Ketill B ég var ekki að verja Ttump ég var að tala um lygar fjölmiðla svona yfir höfuð.Ef þú kannast ekki við lygar fjölmiðla þá er þér ekki viðbjargandi.hvað með gereyðingarvopnin i irak svo let ég fylgja með link um nokkrar lygar aðallega frá Hitlery.Eg tók líka skýrt fram að ég væri ekki stuðningsmaður Trump. Heimskan i þér alger

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 19.2.2017 kl. 23:09

17 identicon

Sæll Ómar.

Trump nefndi ekki orðið 'hryðjuverk'.

Hver er þá handhafi 'hins nýja sannleika' ?

Húsari. (IP-tala skráð) 20.2.2017 kl. 11:16

18 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ómar hann gæti hafa verið að tala um þetta hér:

https://www.nytimes.com/2017/02/16/world/europe/syrian-rebel-haisam-omar-sakhanh-sentenced.html?_r=0

Illmenni sem var loks dæmt af Stokkhólmsdómstólnum í tíu ára fangelsi og útvísunar úr landi, að afplánun lokinni, fyrir að hafa verið í hópi hryðjuverkamanna sem skutu varnarlausa fanga í hnakkann með vélbyssum.

Eða þennan þátt um upplausnina í Svíþjóð:

https://www.youtube.com/watch?v=CrSIKDpHmq4

Sem er líklegra því orðalagið what's happening vísar til atburðarásar enn í gangi, ekki eins atburðar. Skiptir ekki máli, af nógu er að taka. Á hverjum degi er einhver myrtur, konu nauðgað, eða saklaust fólk rænt á götu úti af hælisleitendum og innflytjendum í Svíþjóð, flestum frá Norður-Afríku eða Miðausturlöndum.

Theódór Norðkvist, 20.2.2017 kl. 13:02

19 identicon

 http://www.friatider.se/merkel-islam-orsakar-inte-terrorism

Þarna sjáipð þið hugsunarhátt og undirgefni krata fíflsinns.
Jú, það er framið morð í Svíþjóð á hverjum degi.
Gústaf Adolf hefur fullkomlega rétt fyrir sér, enda er hann aðeins að vísa á staðreyndir. Ég var þarna sjálfur í 19 ár og fylgist mjög grant með því sem þar gerist hvern einasta dag. Fyrsta hverfið sem ég bjó í er í dag "no go zoon" og morð framið þar í hverri viku. Á sínum tíma, þegar heilinn var skotunn úr einum í íbúðinni fyrir neðan, þá tókum við ákvörðun og fluttum.
Það er gígantískur munur á Svíþjóð í dag, eða þegar við fluttum þangað 1990.
99,9% fjölmiðla í Svíþjóð er vinstri og þöggun og lýgi gagnvart innflytjendum er algjör.
Það má ekki hræða fólkið, enda veit það ekkert í sinn haus.
Íþróttir, íþróttir og ekkert nema íþróttir, það er svíans líf.

valdimar jóhannsson (IP-tala skráð) 20.2.2017 kl. 17:16

20 identicon

Sæll Ómar.

Það þurfti forseta Bandaríkjanna
til að öll Svíþjóð vaknaði af
sýndarörlætisfylleríinu og menn litu
hver á annan og sáu að þeir höfðu verið
sviknir og gabbaðir af þeim körlum
sem bilt varð við þau almennu tíðindi þó
þeir sjálfir hefðu stjórnað atburðarásinni.

Verður þetta eins á Íslandi?

Húsari. (IP-tala skráð) 20.2.2017 kl. 22:35

21 Smámynd: Gunnlaugur I.

Ómar þú ættir að hlusta á hvað systir þín Sigurlaug Ragnarsdóttir sagði um ástandið í Svíþjóð. En hún var á Útvarp Sögu s.l. haust og lýsti hörmulegu ástandi í Rinkenby innflytjendahverfinu í Svíþjóð og ömurlegri þróun til hinns verra en hún hefur búið í Svíþjóð í áratugi. Hún lýsti líka vel þögguninni og lyginni sem er um vandamálin samfara rangri innflytjendastefnu, sama rétttrúnaðar öskrið og heyrist nú þegar forseti Bandaríkjanna kemur fram með ískaldan sannleikann beint framan í Svía. Sænskur almenningur fagnar þessu framtaki forsetans en stjórnmálaelítan og rétttrúnaðar fjölmiðlarnir fara af límingunum !

Gunnlaugur I., 21.2.2017 kl. 03:21

22 identicon

Hér er dæmi um það hvað Svíþjóð er orðið helsjúkt og hvað sænsk yfirvöld eru orðin handónýtt sorp. Svíi sem stöðvar bílþjóf, sem síðan ræðst á hann og meiðist við það að Svíinn ver sjálfan sig, er dæmdur í 5 ára fangelsi. Sýrlenzkur barnanauðgari, sem nauðgaði tveimur stúlkum, 13 og 14 ára fær 2ja mánaða fangelsi. Svona verður þetta hérna líka eftir nokkur ár. 

https://gatestone.eu/swede-sentence/

Pétur D. (IP-tala skráð) 21.2.2017 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband