Svipað að gerast og 2003-2008.

Vöxtur "gráa" bílamarkaðarins núna er hliðstæður svipuðum vexti á árunum 2003-2008. 

Nokkru eftir að sá markaður bólgnaði upp hitti ég Íslending sem hafði brjálað að gera við að flytja inn bíla, einkum stóra ameríska pallbíla, sem nutu sérstakra tollfríðinda sem "vinnubílar" þótt þá væru sumir orðnir af gerðinni Cadillac og í raun stórir lúxusbílar. 

Af þessu samtali mátti sjá hina mjög svo íslensku hegðun að gera út á væntingar, því að jafnskjótt og skrifað hafði verið undir viljayfirlýsingu við Alcoa í júlí 2002 hófst mikil þensla, þótt þá væru enn tvð ár þar til að framkvæmdir eystre hæfust að einhverju marki. 

Hagfræðingur í Seðlabankanum fann út að 80 prósent þenslunnar fælust í auknum yfirdrætti á kreditkortum landsmanna. 

Kunningi minn sagði að menn væru nánast óðir í sem stærsta pallbíla, vegna þess að hækkun gengis krónunnar gerði þá mun ódýrari en áður hefði verið. 

Já, gamla sólarlandaferðaheilkennið, að drekka eins mikið af áfengi í ferðinni og unnt væri af því að það væri svo ódýrt, og að þess vegna græddu þeir því meira sem þeir drykkju meira. 


mbl.is „Grái“ bílamarkaðurinn vex hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Sam­kvæmt heim­ild­um ViðskiptaMogg­ans fær­ist í auk­ana að nýir og ný­leg­ir bíl­ar séu flutt­ir inn af ein­stak­ling­um og fyr­ir­tækj­um með þess­um hætti og sérstak­lega virðist vera vin­sælt að flytja inn ný­lega raf­- og ten­gilt­vinn­bíla."

Þorsteinn Briem, 18.5.2017 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband