Hvernig getur mál fyrir Héraðsdómi verið "dómstóll götunnar"?

Nú sést það útmálað sem siðleysi að að tveir lögmenn ætli að höfða mál fyrir Héraðsdómi. 

Stimplar Páll Vilhjálmsson það sem "dómstól götunnar", að með þessari málshöfðun sé verið að virkja almenningsálit, sem er afgreitt með þessu heiti. 

Hingað til hefur það verið talið sem hluti af réttarríki að einstaklingar geti látið dómstóla skera úr um mál, sem þeir eru lögformlegir aðilar að. 

En í bloggpistli um þetta efni er fullyrt: "Lögmennirnir velja götudómstól frekar en lögformlega leið réttarríkisins."  

Halló, bíddu nú aðeins, þeir eru einmitt að höfða mál fyrir dómstóli. Síðan hvenær er það ekki "lögformleg leið réttarríksins"? 

Hvernig í ósköpunum sé hægt að kalla slíkt "dómstól götunnar" þarfnast frekari skýringar, því að til lítils er að hafa hér dómstóla og réttarfar, ef vinsa á úr ákveðin mál, sem ekki megi vísa til dómstóla, af því að almenningur kunni að hafa skoðanir á því. 

Ef enginn má höfða mál fyrir dómstóli af því að með því sé verið að "vekja hávaða í fjölmiðlum" eins og segir í bloggpistlinum er það undarlegt réttarrík. 


mbl.is Held að fólki misbjóði vinnubrögðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú getur sparað þér mikil skrif ef þú sleppir því að skrifa um pistla Páls nema hann segi eitthvað af viti.

Hábeinn (IP-tala skráð) 15.6.2017 kl. 08:46

2 identicon

Páll hefur sjaldan eða aldrei sagt neitt af viti, hann er bara svona úrillur gamall vælukjói sem ætti að vera í gamalli svarthvítri sovéskri þunglyndismynd.

DoctorE (IP-tala skráð) 15.6.2017 kl. 08:50

3 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Það komu gáfulegri ummæli frá Páli Vilhjálmssyni tuskubrúðu sem gerði garðinn frægan í Stundinni okkar hér á árum áður. Hann er í geymslu hjá RUV og í honum heyrist ekki múkk.Nafni hans blaðamaður ætti að taka upp sömu iðju. foot-in-mouthcool

Ragna Birgisdóttir, 15.6.2017 kl. 09:49

4 identicon

Páll Vilhjálmsson er álíka marktækur og mávagarg. Algjör óþarfi að vera að bergmála bullið í honum á öðrum betri bloggsíðum.

Karvel (IP-tala skráð) 15.6.2017 kl. 09:54

5 identicon

Páll Vilhjálmsson kemur aldrei á óvart !

Jón (IP-tala skráð) 15.6.2017 kl. 10:58

6 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Ástráður Haraldsson getur varla hafa haft tíma til að taka saman málsskjöl sín þegar hann var mættur í Í Vikulokin hjá Helga Seljan þar sem hann fékk 20 mín. til að reifa mál sitt. Hann treysti RÚV til að leggja mál sitt fyrir dómstól götunnar og það gefur Páli tilefni til að mynda sér skoðun aá málinu. 

Hvort RÚV hefur veitt Jóhannesi sömu þjónustu veit ég ekki en eflaust stendur ekki á RÚVurum hvað það varðar.

Ragnhildur Kolka, 15.6.2017 kl. 14:19

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Páll Vilhjálmsson og Ragnhildur Kolka tilheyra sem sagt ekki dómstól götunnar en virðast þó hlusta á RÚV.

Og nú eru héraðsdómstólar orðnir að dómstól götunnar og þar með væntanlega sonur Davíðs Oddssonar ritstjóra Morgunblaðsins, sem er auðvitað ekki dómstóll götunnar.

Þorsteinn Briem, 15.6.2017 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband