Hugmyndafátæklegt ofhlaðið krómgrill.

Sé, núna undir svefninn, mynd af "stjörnu fyrstu stórsýningar haustsins hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni" svo nefndan Land Cruiser Black.Toyota Land Cruiser

Land Cruiser jeppar hafa lengi verið í hæsta gæðaflokki og hönnuðir Toyota hafa síðari árin verið djarfari en áður í hönnun en áður var þegar höfðað var til venjulegra útlits.

Þess vegna kemur hönnun framgrillsins á þessari Black útgáfu Toyota á óvart vegna hugmyndafátæktar, því að hún er svo sláandi lík útliti Jeep Renegade, sem er eldri hönnun, að það jaðrar við eftiröpun.

Grillið með afrúnnuðu sjö lóðréttu opunum á Willys herjeppunum fyrir 75 árum hefur allan tímann síðan verið vörumerki framleiðenda Jeep bíla.Jeep Renegade

Að vísu eru krómuðu opin á ofhlöðnum framenda Krúsersins sex en ekki sjö, en útlitslega breytir talan engu um það að það hefði verið hægt að finna aðra og frumlegri lausn á útlitsbreytingu en þessa, enda telja þeir sem sjá þessa bíla ekki opin, nema kannski algerir dellukarlar fæddir í meyjarmerkinu.  


mbl.is Land Cruiser Black stjarnan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband