Erfiðasta veðurspásvæði heims fyrir veðurfræðinga?

Ár hvert erum við Íslendingar minntir harkalega á, að í janúar og febrúar er dýpsta lágþrýstisvæði jarðarinnar rétt suðvestan við Íslands að meðaltali á sama tíma og næst hæsta háþrýstisvæði heims, næst á eftir Síberíu, er yfir Grænlandi. 

Afleiðingunum er vel lýst á Hungurdiskum, bloggsíðu Trausta Jónssonar, þar sem hann lýsir "Stóra bola", kuldapollinum stóra fyrir norðvestan Ísland og þeim fjölbreytilegu og miklu sviptingum og átökum, sem framundan séu á milli krappra lægða, sem þrífist á harkalegum átökum hita og kulda á skilunum á milli hinna tveggja veðurkerfa hita og kulda sem sveiflast og breytast hratt. 

Þegar svona lægðir geysast yfir landið geta aðeins nokkur hundruð kílómetra skekkjur í því hvernig þar fara yfir gjörbreytt spám veðurfræðinga.   

"Veðurfræðingar ljúga" söng Bogomil Font hér um árið, þegar hann var að segja frá því fyrirbæri, sem kannski væri réttara og sanngjarnara að orða þannig að syngja "veðurfræðingum skjátlast."  

Segja má að þeir geti ekki komist hjá því að skjátlast þegar ef til vill er hér um að ræða erfiðasta veðurspávæði heims á þessum árstíma. 

Þegar litið er á veðurspákort yfir norðurálfu er sláandi að sjá, að á stórum svæðum utan átakasvæðanna er greinilega auðvelt að nota spá um sama veðrið jafnvel vikum saman. 


mbl.is Lægðir á leiðinni og mjög viðkvæm staða í spám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reykjavík er oft meira en eitt veðursvæði.

Hið stóra og fyrirferðarmikla fjall Esjan er þannig í sveit sett, að hún klýfur byggðina í Reykjavík oft í sundur í tvennt í hvassri norðanátt, þegar er bálhvasst í vesturhlutanum en á sama tíma jafnvel logn í austurhlutanum. 

Í bálhvassri austanátt getur verið magnað að vera staddur á Borgarholti og horfa sitt á hvað til austurs og vesturs á hina stórkostlegu blindhríð í austri, sem fyllir bæði loft og jörð af snjóblindu og áfærð á sama tíma og aðeins skárra er að sjá í vesturátt. 

Það munar um hamslausan skafrenninginn úr austurátt, sem bætist við ofankomuna austst í Grafarvogsbyggðinni.    

Meðan veðurathugunarstðð var í Elliaðaárstöð var þar hlýjasti ágústmánuður að meðaltali á landinu í skjóli Esjunnar á sama tíma og allt að tveimur stigum svalara var við Veðurstofuna vestur af Efstaleiti. 


mbl.is Ófærðin mest í efri byggðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæpin fullyrðing hjá Pútín.

Vladimir Pútín heldur enn fast við að þrástagast á því að nýnasistar séu við völd í Úkraínu og að við þá væru Rússar að berjast. 

Í ljósi margra staðreynda er þetta afar hæpin síbylja hjá Pútín, þótt það kunni að vera einhver sannleiksfótur fyrir fasiskum áhrifum, samanber það sem rakið var í grein í Morgunblaðinu um daginn. 

Fylgi nýnasista í kosningum hefur verið innan við tvö prósent og þeir hafa ekki fengið kosinn neinn þingmann, að því er best verður séð. 

Að vísu hafa nokkrar sveitir nýfasista barist gegn Rússum en alls ekki í þeim mæli að hægt sé að alhæfa um úkraínska herinn.  

Pútín lifir í fortíðinni þegar margir Úkraínumenn fögnuðu komu þýskra innrásarsveita 1941, minnugir margra styrjalda í landinu á árunum kringum 1920 og ekki síst milljóna manna hungursneyð af völdum Stalíns í kringum 1930.  

En viðhorf Úkraínumanna voru fljót að breytast 1941 þegar SS-sveitir Himmlers fylgdu þýska meginhernum og hófu víðtæk fjöldamorð á Gyðingum., svo að Úkraínumenn snerust almennt gegn þýska innrásarhernum.   


mbl.is Minnist helfararinnar og segir nasista í Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biðin eftir alvöru úrvali af alvöru rafjeppum á enda?

Rafbílavæðingin hefur verið örust í millistærð þar sem er gjöfulasti markhópur bíla, fólk með góðar tekjur, sem vill góða bíla "með ðllu." Audi jeppi.

Bílaframleiðendur hafa gert minna í framleiðslu ódýrustu og minnstu rafbílanna annars vegar, og hins vegar alvöru jeppa með alvöru veghæð og drífbúnaði. 

NÚ viröist hylla undir síðar nefnda flokkinn, ef marka má ýmsar hugmyndr um slíka jeppa, svo sem rafknúinn lengdan Jimny með fernum dyrum. 

Og sérstaka ánægju jeppaunnenda vekja hugmyndir líkar þeim hjá Audi, sem hafa sýnt alveg einstaklega flottann jeppa, sem hugsanlega á að velgja G-Wagen hjá Benz. 

Lagið á yfirbyggingunni er þess eðlis, að þessi bíll gæti borið enska heitið SUV með meiri rentu en flestir allir: Sport-Utility-Vehicle. 


mbl.is Kynna nýjan alrafmagnaðan lúxusjeppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft stafa rangar ákvarðanir af vanþekkingu eða reynsluleysi.

Nógu margar óhrekjandi staðreyndir blasa við um óþarfa hömlur, sem lagðar hafa verið á ljósmyndara og kvikmyndatökumenn á hamfarasvæðum til þess að sjá, að þar þarf að verða breyting á. 

Ljósmyndararnir í viðtalinu i Morgunblaðinu nefna mörg alkunn og sláandi dæmi, svo sem bannið í Súðavík.  

Þegar snjóflóð féll síðan á Flateyri seinna sama ár, sá sýslumaður að sér og fundin var sú lausn, að tveir reyndustu myndatökumennirnir á svæðinu, Friðþjófur Helgason og Ragnar Axelsson, fengju að vera í för með björgunarsveitamönnum, og tæki Friðþjófur kvikmyndir en Ragnar ljósmyndir, sem væru aðgengilegar öllum fulltrúum blaðanna á svæðinu. 

Eftir snjóflóðin vestra, var herbergi síðuhafa með allar 50 kvikmyndaspólurnar, sem teknar höfðu verið og engri hent. 

Af hverju? Af því að enginn veit fyrirfram um allt það myndefni, sem kann að aukast stórlega að verðmæti í framtíðinni. 

Dæmi. Á fimmta áratug síðustu aldar var tekin mynd af ungum dreng, sem stóð fyrir framan þáverandi forsetabíl vestur á fjörðum. 

Enginn vissi þá, að síðar yrði þessi drengur forseti Íslands og þessi mynd því ómetanleg. 

Annað dæmi: Finnbogi Rútur Valdimarsson ritstjóri Alþýðublaðsins fór vestur í Straumfjörð á Mýrum og tók þar mynd, þar sem líkum skipverjanna á Pourqois pas? hafði verið raðað í fjöruna með lík Charcots fremst. 

Þessi einfalda mynd Finnboga segir meira en þúsund orð og er hugsanlega ljósmynd 20. aldarinnar á Íslandi. 

Síðuhafi á að baki tugir ferða á hamfarasvæði síðustu aldar, Sú fyrsta var til Norðfjarðar þegar tólf fórust í snjóflóði þar. 

Eitt augnablik leið ekki úr minni, myndefni, sem var svo sterkt, að manni féllust hendur. 

En meginatriði málsins var það, að ef þarna hefði verið tekin mynd og hún varðveitt án birtingar, hefði hún geta orðið ómetanleg eftir öld sem hluti af þjóðarsögu. 

Niðurstaðan varð sú, að öflun heimilda í þjóðarsöguna krefst þess að allra gagna um merka atburði skuli aflað, en hins vegar þess vandlega gætt, hvenær og hvernig þau verði birt. 

Eftir myndatöku á einum hörmulegum slysstað ákvað ég að taka myndir í mismunandi mikilli fjarlægð frá hinu lemstraða farartæki og velja síðan ekki þá til birtingar myndina sem tekin væri í mestri nálægð, heldur eina af þeim myndum sem voru teknar fjær. 

Ákvörðunin var tekin í samvinnu við þáverandi fréttastjóra, sem var Sigurveig Jónsdóttir, móðir Jóns Þórs Víglundssonar núverandi upplýsingafulltrúa Landsbjargar. 

Engin eftirmál urðu um þessa mynd því að þeir sem áttu um sárt að binda sáu að beitt hafði verið mikilli tillitssemi við valið á henni. 

Oft sýna ákvarðanir vanþekkingu. 

Dæmi um það var rakið hér á síðunni fyrir nokkrum árum, þegar stórum landshluta norðaustan Vatnajökuls var skellt í lás í Holuhraunsgosinu og sagt að það væri vegna flóðahættu.

En á stærsta hluta bannsvæðisins var útilokað af landfræðilegum ástæðum að Jökulsá á Fjöllum gæti klifrað yfir hálsa og fjöll!


mbl.is Björgunarsveitir fylgi ákvörðunum lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Koma þarf böndum á ökugleðina, sem ýtir undir kappakstur í umferðinni.

Helstu átrúnaðargoð rokkkynslóðarinnar upp úr 1955 voru James Dean, Elvis Presley og Marilyn Monroe. Öll urðu þau skammlíf og lutu í lægra haldi fyrir fíknum þessa tíma. 

James Dean heillaðist af kappakstri og keppti í honum, en fórst síðan í hörmulegu bílslysi á  Porsche sportbíl sínum.  

Þessi upphafsár rokksins voru þau fyrstu, þar sem unglingar gátu eignast bíla í stórum stíl, og um þessa bíla gilti, að ef gæðingar koma til sögunnar, verður þeim hleypt.  

Þetta var eitt af þeim atriðum sem lýst var í kvikmyndinni American Graffiti þar sem götukappakstur í umferðarumhverfi kom við sögu.  

Hér á landi þekktist kappakstur á umferðargötum líka, en við blasti, að þörf var á viðbrögðum við þessu hættulega fyrirbrigði. 

Það ðrlaði á viðbrögðum með tilkomu svonefnds góðaksturs á vegum Bindindisfélags ökumanna á sjöunda áratugnum, en keppni í ralli og rallýkross og kvartmílu ruddi sér ekki til rúms fyrr en um 1975.   

Í gegnum árin hefur myndast hér aðstaða, sem þarf að bæta til þess að koma betri böndum á ökugleðina, sem ýtir undir kappakstur í umferðinni. 

Þetta er í raun öryggismál, því að meðan gæðingar eru til, verður þeim hleypt. 

Þetta skildi hinn þekkti lögreglumaður Siggi Palestína, sem stofnaði ásamt ungum eigendum skellinaðra vélhjólaklúbbinn Eldingu í kringum 1960 og var langt á undan sinni samtíð í þessu nytsama framtaki sínu.   


mbl.is Annar ökumaðurinn ekki allsgáður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jay Leno núna, Simon Cowell hér um árið.

Þáttastjórnendur virðast vera hrasgjarnir, Jay Leno marg beinbrotinn; Simon Cowell á rafhjóli fyrir nokkrum misserum, og í gærkvöldi sagði Gísli Einarsson frá atvikum þar sem hann hefði misst fótanna.   

Leno var á gömlu amerísku Indian vélhjóli, en Indian er næsti bær við Harley Davidson í vélhjólaflórunni og þessi hjól oft um 400 kíló á þyngd eða meira. 

Leno braut á sér báðar hnéskeljarnar og virðist samkvæmt því ekki hafa verið með hnéhlífar. 

Síðuhafi notar alltaf hnéhlífar á sínum þremur léttbifhjólum, en hið léttasta þessara hjóla er rafreiðhjól sem er aðeins um 30 kíló. 

Í árekstri við bíl 2016 brotnaði ökkli og hnén lemstruðust án þess að brotna. Ef þá hefðu verið bæði vélhjólastígvél með ökklavörn og líka hnéhlífar hefðu meiðslin orðið miklu minni.  

Leno er moldríkur og hnéhlífar eru bæði léttar, meðfærilegar og ódýrar. 


mbl.is Jay Leno aftur slasaður með mörg beinbrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiri sveigjanleika við starfslok?

Þörfin á meiri sveigjanleika varðandi starfslok virðist hafa aukist síðustu ár, og það í báðar áttir. 

Fyrir nokkrum árum hafði orðið kulnun varla heyrst varðandi fólk með útbrunnið starfsþrek af ýmsum ástæðum. Það bendir til að huga þurfi að þeim möguleika að hægt sé að hætta störfum fyrr en við 67 eða 70 ára aldur. 

Á hinn bóginn fjölgar þeim, sem vegna framfara í heilbrigðismálum, lengri meðalaldurs eða annarra atriða eru enn með gott starfþrek um sjötugt og vildu gjarnan fá að halda áfram. 

Það sýnist því þörf á að skoða möguleika á sveigjanlegri starfslokum en verið hafa


mbl.is Hækkun á eftirlaunaaldri möguleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

21. öldin: öfugþróun, "pitsu- og cocoa puffs-kynslóðin" tekur yfir?

Rangt mataræði er rétt lýsing á upplýsingaöld á skyndibitamat og snarli sem tölur sýna að búa yfir  heilsufarslegri´óhollustu af verstu gerð.

Stærstur hluti af þessu fæði er gegnsósa í viðbættum sykri, en samt er neysla þessa matar í örum vexti og er undirstaðan undir sívaxandi útbreiðslu sykursýki og offitu. 

Tjónið af útbreiðslu þessar sjúkdóma nemur hundruðum milljarða króna árlega þegar allt er tínt til. 

Langmest af því súkkulaðikexi, sem á boðstólum er, er með meira en 30 grömm af hvítasykri í hverjum 100 grömmum, og þetta má lesa á umbúðum þessa fæðis. 

 

Erfitt er að finna hollara fæði en fisk, en þrátt fyrir að Íslendingar veiði margfalt meiri fisk, miðað við fólksfjölda en nokkur önnur sjálfstæð þjóð eru fiskneysla og fiskverslun innanlands á undanhaldi á undanhaldi, enda fer verðið síhækkandi í tímum kvótakerfisins. 

Til að skekkja myndina enn frekar er framleiðslu á kjöti og fiski stórlega mismunað; um sjö milljarða króna á ári samkvæmt viðtengdri frétt. 

,


mbl.is Tárvotur Fiskikóngur lokar á Höfðabakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæpið að Íslendingar hefðu náð í verðlaunasæti.

Viðureign Spánverja og Norðmanna var eina jafna viðureignin í átta liða úrslitunum. 

En Frakkar, Svíar og Danir virðast hafa sýnt það að hæpið er að Íslendingar hefðu komist á verðlaunapall á þessu móti, jafnvel þótt við hefðum ekki tapað fyrir Ungverjum, sem voru gjörsigraðir í síðasta leik sínum í milliriðli.   


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband