VANRÆKTAR AXLIR.

Fór austur fyrir fjall á 35 ára gömlum örbíl á sunnudag. Hann getur haldið nærri 100 kílómetra hraða á láréttum vegi en eins og margir fornbílar og þunglamalegir flutningabílar getur hann ekki haldið 90 kílómetra hraða upp allar brekkur á móti vindi. Við slíkar aðstæður reyndi ég eins og ég gat að víkja bílnum út á öxl vegarins í brekkum til að hleypa umferðinni fram úr mér.

En tvennt er það sem hamlar því að axlirnar á vegunum út frá höfuðborginni geti gegnt því hlutverki að liðka fyrir umferð.

Annars vegar er allt of algengt að bílstjórar sem fara hægt geri ekkert til að liðka fyrir umferðinni fyrir aftan sig með því að fara út á axlirnar, heldur haldi sig inni við miðlínu og gerist "lestarstjórar" með langar bílalestir fyrir aftan sig. 

Þetta er allt of algengt t. d. á Reykjanesbrautinni þar sem axlirnar eru breiðar og sléttar.

Raunar virðast margir þessara bílstjóra vera nánast meðvitundarlausir við aksturinn og hvorki skeyta um né fylgjast með annarri umferð en lötrinu í sjálfum sér.

Hins vegar hamlar það því að menn leggi í að fara út á axlirnar hve illa Vegagerðin sinnir þeim á öðrum vegum en Reykjanesbrautinni út frá borginni, svo sem Suðurlandsvegi.

Það þarf mikla útsjónarsemi og að sjá langt fram fyrir sig til þess að leggja út í að aka á öxlinni ef bílröðin er samfelld sem fer fram úr.

Sums staðar eru axlirnar breiðar og sléttar en hvenær sem er getur malbiksræman mjókkað stórlega eða breyst í ferlegar holur, og stundum lendir maður í mikilli möl á þeim.

Það er vont að lenda í mölinni, ekki aðeins vegna þess að á fornbíl er það bannorð að aka hratt á möl og skemma lakkið neðan á bílnum, heldur ekki síður vegna þess að það er vont að róta möl á bílana sem á eftir koma.

Þetta ástand er bagalegt og óþarft þegar um er að ræða bíl eins og Fiatinn minn sem er aðeins 1,32 metrar á breidd og því auðvelt að nota malbikaða öxlina þótt hún sé mjó.

Ef bílaröðin er samfelld sem fer fram úr geta hlotist vandræði þegar skyndilega birtist skarð í malbiknu eða stór hola því að bílstjórarnir sem fara fram úr hugsa yfirleitt ekkert um aðstæður þess sem víkur fyrir þeim.  

Mjóstu bílarnir sem nú eru seldir eru rúmlega 1,60 metra breiðir og gætu auðveldlega ekið úti á öxl vegarins og hleypt umferð fram úr sér þótt einhverjir sentimetrar bílsins séu fyrir innan útlínu sjálfrar meginakbrautarinnar.

Í þessari umferð, sem var áberandi prúðmannlegri og skynsamlegri en venja hefur verið, kom í ljós hvað stórir pallbílar og jeppar, 2,10 - 2,40 m á breidd, geta verið fyrirferðarmiklir og erfiðir í umferðinni.

Þar sem ástand axlarinnar var lélegast og ég neyddist til að færa mig að hluta til inn fyrir ytri línu akbrautarinnar urðu bístjórar slíkra dreka að hætta við að fara fram úr mér þótt aðrir ættu auðvelt með það.  

Ég beini því til ágætra manna hjá Vegagerðinni, að á meðan Suðurlandsvegurinn og fleiri slíkir fjölfarnir vegir hafa ekki verið breikkaðir, hugi þeir að því hvernig megi lagfæra axlirnar þannig að þær geti nýst betur en nú er.

Þetta getur varla verið dýrt en auðvitað þarf síðan að halda þeim í góðu ástandi þar til nýja vegabótin kemur.

 


Bloggfærslur 3. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband