30.1.2016 | 15:18
Barnalán og umboðsmaður ófæddra.
Lánið stóra, sem tekið var 1981 og 83 vakti umræður um siðferðilega réttlætningu slíkra lána með aðeins einn gjalddaga langt fram í tímann.
Nafnið barnalán vísaði til þess að þálifandi fólk, sem var komið um og yfir fertugt og stóð að því að lánið var tekið, myndi alveg sleppa við að borga það en vísaði þeirri ábyrgð af sér á hendur þeirra, sem þá yrðu uppi, en stór hluti þeirra var ófæddur.
Á morgun er barnalánið úr sögunni og það varð þrátt fyrir allt afturkræft úr því að það er nú úr sögunni.
Á sínum tíma var lánið réttlætt með því að okkur vantaði fé til að hraða hitaveituvæðingu landsins, sem bæði myndi spara okkur mikið fé í erlendum gjaldeyri og minnka mengun þegar heitt vatn kæmi í staðinn fyrir jarðefnaeldsneyti.
Þessi rök voru með dálítið holan hljóm, enda má rökstyðja hvaða kúlulán sem er með því að taka út úr einhvern valinn kostnað, sem borga ætti með því.
Sé siðferðilegur grundvöllur kúlulána langt fram í tímann vafasamur, er hann þó enn veikari þegar um rányrkju og óafturkræfa eyðileggingu verðmæta er að ræða vegna stundarhagsmuna, sem stundum reynast verða engir eða svo litlir, að jafnvel með því að horfa skammt fram í tímann reyndist rányrkjuhugsunin óréttlætanleg.
Enn kemur upp í hugann að í slíkum tilfellum bitnar þessi skammtímahugsun á öllum komandi kynslóðum milljóna Íslendinga og að þessar kynslóðir eiga sér engan talsmann eða umboðsmann.
Er fjöldi skjólstæðinga slíks umboðsmanns komandi kynslóða þó margfalt meiri en þeirra 330 þúsund sálna, sem nú byggja Ísland.
Sama gildir raunar um mannkyn allt í meira en tvö þúsund sinnum stærri skala.
Vísa til myndbanda á facebook síðu minni í dag, annars vegar "Only One Earth", sem er komið inn á síðuna, og "Aðeins ein jörð" sem ég stefni að að setja inn eftir klukkan sex í dag.
Af tæknilegum ástæðum eru myndgæðin léleg á facebook, en miklu betri á YouTube.
![]() |
Barnalánið loks greitt eftir 35 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
30.1.2016 | 11:01
Enn óathuguð einkavæðingin fyrir 15 árum, eyður í gögn frá 2009?
Á þessu ári verða liðin þrjú ár síðan sérstök nefnd átti að rannsaka og gefa skýrslu um einkavæðingu bankanna frá því fyrir um 15 árum, og ekkert hefur gerst í því máli.
Vont er, ef það er rétt, að eyður séu í fundargerðum vegna endurreisnar bankakerfisins eftir Hrunið.
Það er rétt, sem Þorvaldur Gylfason endar grein sína á, að ef menn vilja ekki rannsaka hvað fór úrskeiðis og læra af því, er það vísasti vegurinn til þess að mistökin verði endurtekin.
Og það er þegar byrjað að gera slikt.
![]() |
Mikilvægar fundargerðir eru týndar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.1.2016 | 09:41
Verður þarna bara ekki sautjánda hringtorgið á svæðinu?
Það yrði sennilega bæði talið of dýrt og úr stíl við gatnakerfið nálægt mótum Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar ef farið yrði að gera mislæg gatnamót á þessum vegamótum.
Í Vallahverfinu í Hafnarfirði skammt frá vandræðagatnamótunum við Hellnahraun eru nefnilega ein sextán hringtorgi, - já, segi og skrifa 16 hringtorg!
Það ætti því ekki að muna mikið um að gera 17. hringtorgi, eða hvað?
![]() |
Gatnamótin þykja stórhættuleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.1.2016 | 00:55
Þorgerður Katrín bjargaði Hótel Akureyri. Illugi, yfir til þín!
Það er merkilegt hve vel mörgum gengur að komast lygilega langt áfram við að eyðileggja verðmætar menningarminjar og það jafnvel friðaðar menningarminjar með því að ota sinum tota í kerfinu, nýta sér veilur í því og finna þar skammsýna menn til að vinna með sér.
Mig minnir að það hafi verið árið 2008 sem allt í einu blasti við að hið fallega hús Hótel Akureyri yrði rifið.
Aðferðin var gamalkunn: Húsið látið drabbast niður þar til að svo var komið að með slæmu ástandi þess voru fengin rök til að fullkomna eyðilegginguna og leyfa peningamönnum og verktökum að reisa glerkassa í staðinn.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þáverandi menntamálaráðherra tók þá til sinna ráða og fékk því framgengt að húsið var tryggilega friðað og gert upp.
Ég hygg að í dag dytti fáum eða engum í hug að láta rífa þetta fallega hús sem fellur svo vel inn í vinalega húsaröðina við Hafnarstræti.
Nú þarf Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra að fylgja fordæmi Þorgerðar Katrínar og ef KFUM húsið / Casa Cristi er þegar friðað á vegum stofnunar, sem heyrir undir forsætisráðuneytið, er það einkennilegt, ef þetta merka hús við Antmannsstíg verði samt rifið.
Illugi er frá Siglufirði og þekkir gildi gamalla húsa.
Yfir til þín, Illugi!
![]() |
Sigmundur svarar Degi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)