Klósettið dugar vel fyrir fólk í ruslflokki, sbr. kviðling um það.

Það er líkast því sem í gangi sé einskonar ígildi exel-skjals í þjóðfélagakerfi nútímans og gerir fólk að afgangsstærð við 75 ára aldur. 

Hver sá, sem orðinn er 75 ára er í tryggingarétti skilgreindur þannig að hann sé í "hrakvirðisflokki." Sem er nærgætnislegt orð yfir ruslflokk. 

Skilgreiningin er til dæmis þannig varðandi ótímabært dauðsfall að það miðist við 75 ára aldur. 

Gerist dauðsfallið daginn fyrir 75 ára afmælið, telst það ótímabært, en hins vegar tímabært daginn eftir! Jafnvel vel tímabært!  

Það ætti því varla að koma á óvart að 92ja ára gömul manneskja sé lögð inn til legu á salerni á spítala. 

 

Meira en níræð, þrekið þver, 

því er ver og því er miður. 

Í ruslflokk skilgreind hún er hér

og hennar alveg úti friður.

Í klósettlegu konan fer,   

kerfið henni þangað ryður. 

Það eina, sem að eftir er 

er að sturta henni niður? 


mbl.is Gisting á salerni „óyndisúrræði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kílóin, sem skipta svo miklu máli fyrir okkur, hvert og eitt.

Kílóið, þessi mikilsverða þyngdareining, leikur stórt hlutverk í lífi okkar allra.

Hér er smá hugleiðing um gildi hvers kílós í grunnfarartæki hverrar manneskju í anda viðleitni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar til að glíma við aukakílóin:  

Eitt mikilvægasta atriðið í lífi hverrar manneskju er getan til þess að geta fært líkamann, bústað hverrar sálar, úr stað til þess að gefa færi á eftirsóknarverðri eða nauðsynlegri upplifun eða staðsetningu í gegnum skynfærin. 

Síðuhafi hefur allt frá átta ára aldri skráð niður tölur varðandi möguleikann á hraða líkamans fyrir eigin afli, síðustu 30 árin af nördalegri nákvæmni.  

Fyrsta talan var tekin á skeiðklukku skammt frá bernskuheimilinu, 17 sekúndur að hlaupa 60 metra. 

Síðar komu betri tímar á næstu árum í sveitinni, 17 sekúndur 100 metrarnir og 1 mínúta og 44 sek 400 metrarnir. 

Notuð var þríhyrnd stika sem frændinn í sveitinni hafði smíðað og var með einn metra á milli tveggja arma, hugvitsamleg smíð hjá Runólfi Aðalbjörnssyni í Hvammi í Langadal. 

9,5 sek á 80 metrum komu á drengjanámskeiði á Melavellinum 1954 og 11,6 á 100 metrum á drengjameistaramóti 1958. Fór niður í 11,2 1964. 

Ári síðar tók það tæpar sekúndur að hlaupa frá 1.hæð upp á 12. hæð í Austurbrún 2, jafnhratt og hraðari lyftan. Þetta eru 1l hæðir nettó. Líkamsþyngdin var innan við 70 kíló á þessum árum og þetta var leikandi létt.

Um 1990 var þráðurinn varðandi samfelldar mælingar tekinn upp og hefur verið fylgst með stigahlaupsgetunni síðan og haldið bókhald til þessa dags um tímann og líkamsþyngdina. 

Þá tók það 55 sek að hlaupa frá 1. hæð upp á 14. hæð í blokkinni á Sólheimum 23. 13 hæðir nettó. 

Aldurinn hafði sín áhrif, kominn á sextugsaldur, en líkamskílóin, nú orðin tæplega 80, ekki síður. 

Senn liggur fyrir bókhald í 30 ár varðandi þverrandi getu í viðureigninni við Elli kerlingu, skráð tvisvar í viku.  

Síðasta hundrað metra hlaupin með tímatöku á skeiðklukku var nálægt 65 ára afmælinu, 15 til 16 sekúndur. 

Þá voru hnén orðin uppslitin, aðgerð á hné í þriðja sinng, og í gildi fór bann við hlaupum að læknisráði. 

En hann bannaði ekki að læðast hratt, og hlaup upp stiga slítur ekki hnjánum, heldur styrkir þau. 

Síðan 2013 hefur talan í stigahlaupinu verið innan við 30 sekúndur frá kjallara upp á fjórðu hæð í blokk við Spöngina. 4 hæðir nettó.

Þetta er sami tíminn og 11 hæðir nettó 1960.  

Þegar litið er á bókhaldið er áberandi, að þverrandi geta fer ekki alltaf línulega niður í beinni línu, heldur koma skeið með svipuðum tímum, eins konar láréttar tröppur, en síðan lítilsháttar hnignunartímabil í þrepum. 

Nú er hafið áhugavert tímabil, að skoða betur áhrif þyngdar á tímana. Nú er það hvert kíló, sem telur. 

Það sem skekkir oft heildarmyndina yfir löng tímabil er, hve mörg sekúndubrot eða sekúndur "aukakílóin" kosta. 

Nú er kominn einn mánuður af skipulagðri grenningu, þar sem í stað óreglulegrar vigtunar, er vigtað tvisvar á hverjum sólarhring, á morgnana og á kvöldin. 

Reynslan er nefnilega sú, að í svona langhlaupi er helst hætta á bakslögum og truflunum, ef þyngdarmælingarnar eru of strjálar. 

Þegar maður horfir á vigtina tvisvar á dag verður engin leið að plata sjálfan sig á forsendum ónákvæmrar vigtunar. 

Lyftingamenn persónugera stöngina með lóðunum. Í þessari nýju tilraun reynist það síðuhafa vel að persónugera vigtina og hafa hana þannig staðsetta, að hún sjáist úr sætinu við matarborðið eins og eftirlitsmaður, sem fylgist með innbyrtum hitaeiningum. 

Hún fyrirskipar hóf og nákvæmi í mataræðinu með ströngu augnaráði, lengingu á þeim tíma sem notaður er í ferðalögum á rafreiðhjólinu Náttfara til að nota fótaaflið og að svíkjast ekki um í tíðni stigahlaupa inni í 50 mínútna hraðgönguu. 

Hún áminnir um mælingar í stigahlaupinu tvisvar í viku og að viðhalda getu uppslitinna hnjáa. 

Hún samþykkir skipulagningu og sjálfseftirlit með því að ofgera ekki samföllnu baki og að það sé ekki vænlegt að fara of geyst í grenningunni, heldur að sjá svo um að líkaminn fái ekki tækifæri til að bregðast við léttingu og "sulti" með því að auka hæfnina til efnaskipta. 

Kíló á hverjum tveimur vikum, tvö kíló í hverjum mánuði, er feykinóg. Það þýðir tólf kíló á hálfu ári og 24 á einu ári.

Nú eru kílóin orðin þrjú á einum mánuði og fjögurra hæða hlauptíminn er í fyrsta sinn í fjögur ár alltaf undir 30 sekúndum. 

Of hröð létting er bæði óeðlileg og varasöm. Síðuhafi hefur slæma reynslu af því.

Hann léttist um 16 kíló á þremur mánuðum 2008 af völdum lifrarbrests. 

Þegar því ömurlega tímabili lauk var óskaplega gaman fyrstu dagana á eftir að geta notið þess að éta það sem mann lysti hömlulaust, en lúmsk hætta lá í leyni.

Ef stanslaus vigtun hefði verið viðhöfð hefði verið hægt að grípa í taumana því að það kom í ljós, að líkaminn virtist hafa breytt efnaskiptunum til þess að lifa sultinn af og að 16 kílóin komu til baka á undraskömmum tíma.

Að gera léttingu að samfelldu langhlaupi er skemmtilegt viðfangsefni og gefandi, litar hversdaginn. Að gleðjast þeim mun meira yfir hverjum smábita sem þeir verða færri og smærri. 

Maður hefur sætt sig við að rogast um með 16 aukakíló síðustu tíu árin. Það samsvarar tveimur Bónuspokum með alls átta 2ja lítra flöskum. Þetta gengur ekki. 

Of mikil fórn fyrir breyskleikann og ístöðuleysið.  

Líkami hverrar manneskju okkar eru einu farartækin, sem telja má grunnfarartæki í þessu jarðlífi frá fæðingu til dauða. Heftist geta þessa farartækis þýðir það frelsisskerðingu fyrir andann og sálina, sem eru svo háð stað og stund bústaðarins, sem okkur var gefinn til notkunar í jarðlífinu. 

 

 

 


mbl.is Að vera eða vera ekki kíló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eflist við hverja raun.

Það þarf ansi mikið til að vera valinn maður leiks og fá einkunnina 9 í leik í Úrvalsdeild ensku knattspyrnunnar. 

En þetta afrekaði Gylfi Þór Sigurðsson í leik Everton við Cardiff í gær. 

Hann meiddist á ökkla í síðasta leik í tæklingu sem allir gátu séð að var mjög ruddaleg og því eðlilegt að hann væri ekki að harka meiðslin af sér út leikinn. 

Eins og sannur meistari eflist hann við mótlætið og er maður, sem leggur einstaklega hart að sér í hvívetna fyrir lið sitt. 

"Cryoff-markið" sem hann skoraði um daginn var eitthvað fallegasta snilldarmark sem hægt er að státa af, og það er svo sannarlega hægt að vera stoltur af þessum geðþekka og snjalla fulltrúar þjóðar okkar, sem hann er. 


mbl.is Þjálfari Everton lofsyngur Gylfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. nóvember 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband