NATO var stofnað til að verjast árásum á aðildarþjóðirnar.

Grunnstefna NATO við stofnun hernaðarbandalagsins var að verja aðildarþjóðirnar gegn árásum, og yrði árás á eitt þeirra skilgreind sem árás á þau öll. 

Árás NATOþjóðarinnar Tyrkja á hérað innan annars ríkis getur varla fallið undir þessa skilgreiningu. 

NATO þjóðin Bandaríkin er að vísu flækt í hernaðaraðgerðir í Sýrlandi, að ekki sé talað um Rússa, sem eru utan bandalagsins. 

En árás Tyrkja lítur langverst út. 


mbl.is Mótmæla þögn íslenskra stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gervijepparnir mokseljast hjá öllum. Hvenær kemur Opel Karl?

Bilasalan í heiminum hefur lengi þrifist á því að búa til ímyndir með tískubrögðum.Cadillac 59 

Á árunum 1956-1961 voru það aftursveigðar framrúður og gríðarlegir uggar og stél sem voru aðal sölutrixin. 

Svo aftursveigðar voru sumar framrúðurnar, að fólk rak hnén í gluggahornin, sem sköguðu inn í dyrarýmið að framan og það var erfitt að setjast inn eða fara út um dyrnar. 

Sumir uggarnir og stélin voru allt að 2,5 metrar að lengd og næstum jafnhá og þök bílanna. Toyota C-HR

Síðustu árin að undanförnu byggist salan mjög á því að hafa útsýni sem verst úr bílunum, enn verra en var á amerískum bílum frá 1935-1948.

En eftir 1948 fóru gluggarnir að stækka og bílaframleiðendurnir kepptust við að auglýsa sem hæsta útsýnistölu í prósentum (panorama) og stærst flatarmál glugga. 

Núna verða húddin verða að vera svo há að vart sé hægt að sjá yfir þau, og gluggarnir að aftanverðu á bílunum verða helst að vera mjóar rifur eða borur. 

Nú heita allir bílar, sem eiga að trekkja, "jeppar" ef þeir eru meira en 1,55 á hæð. 

Þeir þykja þeim mun "verklegri" og "jeppalegri" sem neðsti hluti framendans er síðari og skagar lengra fram. Sem er ávísun á það að "jeppinn" lendir í mestu vandræðum á ójöfnum vegum. 

Æ fleiri "jeppar" eru ekki fáanlegir með fjórhjóladrifi og slíkum bílum moka bílaframleiðendur nú út og rokselja, því að það er jeppa"lúkkið" sem telur, ekki jeppaeiginleikarnir.

Allra nýjustu dæmin eru sport"jepparnir" eru Citroen Aircross, Renault Captur og nú síðast Opel Crossland. 

Heitið jeppi eða "jeep"  var hér á landi haft um bíla með góða torfærueiginleika, fjórhjóladrif, örugga veghæð, bæði hlaðnir og óhlaðnir, og hátt og lágt drif. 

Engu af þessu er til að dreifa í æ fleiri af "jeppunum" sem hér mokseljast, en þessir bílar falla erlendis undir skilgreininguna SUV, Sport utility vehicle, og má sem fyrstu SUV bílana nefna Dodge Caravan í Bandaríkjunum og Renault Espace í Frakklandi, sem eru fjarri því að vera jeppar þótt þakið sé hátt. 

Mikil samræming á sér stað hjá flestum bílaframleiðendum.

Hinn "nýi" Opel Mokka er nokkurn veginn sami bíllinn og Chevrolet Trax var, en hann kom á markað hér fyrir nokkrum árum. 

Mokka er þýskur Trax. 

Chevrolet Spark seldist vel hér fyrir nokkrum árum og hefur reynst vel og er með drjúga notkunarmöguleika. 

Í hitteðfyrra kom Opel Karl á markað, nokkurn veginn sami bíll en líklega enn betri, og einnig mun fallegri að mínum dómi. 

Þýskur Spark. Opel_Karl_1.0_ecoFLEX_Exklusiv_–_Heckansicht,_28._Oktober_2015,_Düsseldorf

Ekki bólar á honum enn, enda gefur sala ódýrustu bílana lítið af sér á sama tíma sem blöðin eru full af auglýsingum um "sportjeppa" sem miðað er á mun tekjuhærra fólk, að ekki sé nú talað um að opna sérstaka söluskála fyrir lúxusbílana, sem seljast svo vel, að það er skortur á þeim hjá umboðunum. 

Suzuki fór að framleiða Celerio í staðinn fyrir Alto 2014 og hefur Celerio fengið mjög góða dóma, enda rúmbetri en Alto en þó ekki þyngri. Suzuki_Celerio_1.0_Club_–_Frontansicht,_26._Juli_2015,_Düsseldorf[1]

En vinsældir næsta bíls fyrir ofan, Suzuki Swift, eru það miklar, að ekki borgar sig að flytja Celerio inn fyrir pupulinn.  

 


mbl.is Opel Mokka X frumsýndur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sterkir leiðtogar" hagnast oftast á utanaðkomandi óvini.

Sagan geymir ógrynni dæma um það hvernig svokallaðir "sterkir leiðtogar" hagnast á því að það dúkkar upp utanaðkomandi óvinur. 

Winston Churchill var utangarðsmaður í breskri pólitík en tókst að "vígvæða" enska tungu í frægum ræðum sínum til þjóðarinnar og fylkja henni á bak við sig það sem eftir var stríðsins. 

En síðan komu fráhvarfseinkenni í stríðslok og þá sneri þjóðin við honum baki. 

Þegar Hitler útrýmdi hugsanlegri andstöðu við sig með því að láta strádrepa forystumenn SA sveitanna á hrottalegan hátt og fylgi þýsku þjóðarinnar var aldrei meira við hann en þegar hann hafði farið hamförum um Evrópu sumarið 1940, allt frá vesturströnd Frakklands norður á Nordkap og austur að Vislu í Póllandi. 

Dýrkun Rússa og kommúnista um allan heim á Stalín varð því meiri sem hann drap fleiri andstæðinga sína í her og flokki og hvar sem sjúkleg vænisýki hans heltók hann, og notaði meira harðræði við misskunnnarlausa iðnvæðingu og samyrkjubúavæðingu landbúnaðarins.

Talið er að Pútín muni hagnast á árásum hans á andstæðinga hans, sem eru einkum ætlaðar til þess að skjóta andstæðingum hans skelk í bringu, - til "skræk og advarsel" eins og Danskurinn segir, - og það að Skripal var ekki lengur bein ógn við Pútín gerir aðvörun hans til mótstöðumanna jafnvel beittari, - hver þeirra um sig getur hugsað: Úr því að Skripal var afgreiddur getur röðin alveg eins komið næst að mér. 

Um sinn kann staða Theresu May að styrkjast, því að það höfðar alltaf til Breta að styðja þá sem standa uppi í hárinu á utanaðkomandi ógn. 

Falklandseyjastríðið kom eins og himnasending til Margrétar Thatcher, tiltölulega auðunnið stríð fyrir breska flotann til að hrekja óvinaþjóð í burtu frá hinum smáu Falklandseyjum, sem Argentínumenn höfðu tekið af Bretum með hervaldi.  


mbl.is Breytir engu um staðreyndir málsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar skór og taska réðu úrslitum.

Ef skór og taska gátu ráðið úrslitum í keppni bestu frjálsíþróttamanna Evrópu 1950 má nærri geta hvað sé í gildi okkar tímum sérhæfingar, einbeitingar og algerrar afneitunar, sem besta íþróttafólk heims verður að tileinka sér til þess að komast í fremstu röð. 

Í aðdraganda EM í frjálsum 1950 var svo hörð skömmtunarstefna rekin á Íslandi vegna hruns gjaldeyrisforðans í lok stríðsins, að það náði niður í einstök pör af skóm. 

Nýir og betri hlaupaskór voru komnir á markaðinn erlendis en þeir skór sem íslenskir afreksmenn notuðu hér heima. Svonefnt Fjárhagsráð, sem skipað var til að afa alræðisvald um leyfi til innflutnings, gaf KR leyfi til að flytja inn eitt par af stökkskóm. 

Í liði Íslands í Brussel voru fjórir KR-ingar og var ákveðið að hlutkesti milli tveggja manna skyldi ráða, hvor þeirra fengju skóna. 

Torfi Bryngeirsson vann hlutkestið og sagði síðar að það hefði ráðið úrslitum um að hann varð Evrópumeistari í langstökki. 

Hlaðmenn Flugfélags Íslands notuðu tösku Arnar Clausens til að skorða af dyr við útburð á farangri Íslendinganna á Reykjavíkurflugvelli, og varð taskan þar eftir fyrir misgáning. 

Nærri má geta hvað það þýddi fyrir Örn sem einn af þremur bestu tugþrautarmönnum í Evrópu að koma skólaus til keppni. 

Hann varð að fá lánaða skó hjá tvíburabróður sínum til keppni í hlaupum og allt of stóra skó hjá Jóel Sigurðssyni fyrir keppni í spjótkasti, kringlukasti og kúluvarpi. 

Samt munaði örfáum stigum að hann yrði Evrópumeistari og samkvæmt nýrri stigatöflu Alþjóðasambandsins hefði hann orðið Evrópumeistari. 

En Frakkar fengu því ráðið að gamla stigataflan var notuð. Fyrir bragðið var Örn skráður þetta ár sem annar besti tugþrautarmaður heims, næst á eftir bandaríska heimsmethafanum! 

Ef valið stendur á milli trompetleiks og þess að komast í allra fremstu röð í 100 metra hlaupi á okkar dögum er úr vöndu að ráða fyrir fljótasta Íslendinginn. Hann býr að einbeitingu að trompetleiknum alla ævi, en spretthlauparaferill er aðeins nokkur ár. 

Ég hef fengið nasasjón af svona vali. Eftir drengjameistaramót í frjálsum íþróttum sumarið 1958 var sagt í einu blaðinu að ég væri mesta hlauparaefni, sem komið hefði fram síðari árin. 

Viku síðar sleit ég svo illilega liðbönd í vanhugsuðu "víðavangsþrístökki" að sumarið og veturinn fuku út úm gluggann. 

Á meðan ég lá rúmfastur fann ég ekkert skárra mér til dundurs en að byrja að semja fyrstu heilu skemmtidagskrána mína. 

Þar með var stefnan mörkuð í það að semja skemmtidagskrár, uppistönd, lög og texta og verða síðan skemmtikrafur að atvinnu nokkrum mánuðum seinna. Nýttist ævina alla, nú síðast á facebook síðu minni. 

Ákvörðunin var í raun tekin fyrir mig 1958, fyrir réttum 60 árum, þrátt fyrir fjögurra vikna gutl í hlaupum 1964 og sex vikna gutl 1965 en 1960 hafði ég byrjað í nokkrar vikur, en var með rangan þjálfara, þótt frábær væri fyrir aðra; hann var af austur-evrópska skólanum og vildi láta mig hlaupa staðlaðan eðlisfræðilegan "réttan" stíl sem var mér ekki eðlilegur. 

Og þá er bara að segja eins og Edith Piaf söng: "Ég sé ekki eftir neinu." 


mbl.is Get farið miklu hærra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar ákvörðun um nýrnagjöf bjargaði tveimur mannslífum.

Vinur minn einn úti á landi býr yfir óvenjulegri sögu varðandi nýrnagjöf. Bróðir hans þurfti á nýra að halda, og vinur minn ákvað að gefa honum nýra úr sér. 

Fór hann í nákvæma nýrnaskoðun áður en farið væri út í það að taka gjafanýrað úr honum, en við nákvæma skoðun á því kom í ljós, að í því mátti greina örlítið krabbamein á byrjunarstigi, en illkynja þó. 

Vinur minn hafði ekki kennt sér neins meins og því kom þetta honum mjög á óvart. 

Við þetta breyttist eðli málsins, og í stað þess að taka nýrað úr honum og græða það í bróður hans, eins og ætlunin hafði verið, var hætt við nýrnaflutninginn, en nýrað hins vegar numið burtu og honum þar með bjargað frá því að verða nýrnakrabbameini að bráð. 

Bróðir hans fékk hins vegar annað nýra, og má segja að upphaflega hugmyndin um að gefa nýra hafi bjargað tveimur mannslífum. 


mbl.is Lífið sjálft er fram undan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. mars 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband