Fjallsárlón hefur verið í sókn.

Það er áberandi þegar horft er úr lofti yfir Breiðamerkurjökul hve ísjökum hefur fækkað mikið á Jökulsárlóni.

Þó sýnist enn ekki komið á það stig að lónið verði án þessa skraut, en þá má benda á, að vestar við jökulsporðinn er lón, sem fer stækkandi og er þegar með mergð fljótandi ísjaka. 

Athygli vekur síðari árin hve mjög lónið hefur stækkað og ísjökum fjölgað á því. 

Ef veðurfar kólnar verður þetta lón áfram í sókn, og má kannski segja að það verði í nokkurs konar viðbragðsstöðu til að taka við merkinu af Jökulsárlóni ef þurrð yrði þar á ísjökunum, sem heilla ferðamenn hvað mest. 

En af því að Breiðamerkurjökull er skriðjökull, skríður hann fram og brotnar við það að færast út í lónið, hvort sem hlýtt er eða kalt í ári.  


mbl.is Áfram gleðja ísjakar í Jökulsárlóni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennan vex. Viðreisn í oddaaðstöðu? Hafa veðrið og fjöldi framboða áhrif?

Í hverri skoðanakönnuninni af annarri undanfarna mánuði hefur ekki þurft að rýna lengi í niðurstöður til að sjá, að ekki mætti mikið út af bregða til að núverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur félli. 

Hrun Bjartrar framtíðar, sem hefur verið einn af meirihlutaflokkunum, hefur skilið eftir sig ákveðið tómarúm, sem fjöldi nýrra framboða sækir inn í.

Þessi mikli fjöldi framboða getur haft þau áhrif, að stór hluti atkvæða, sem annars hefði gagnast meginfylkingunum eins og þær hafa verið, fellur dauður niður og þá er spurningin hvaðan þessi framboð hefðu sótt fylgi sitt. 

Í nýrri skoðanakönnun virðist Viðreisn geta orðið í eins konar oddaaðtöðu í borgarstjórn 

Sjá má að mál eins og loftgæði hafa verið mikið nefnd í umræðunni, og á facebook hefur mátt sjá hvernig veðrið getur magnað upp miklar umræður um þau. 

Undanfarna daga hefur vindur staðið úr austri og loftið í Reykjavík hefur orðið þannig, að þeir sem búa við öndunarfærasjúkdóma eða viðkvæm öndunarfæri hafa kvartað sáran og tjáð þau vandræði sín á netmiðlum. 

Flestir nefna svifryksmökkinn sem orsök, og þar er á að líta, að spá um hret um daginn varð til þess að seinka því að margir tækju neglda hjólbarða undan bílum sínum. 

Á meðan heldur svifryk áfram að safnast upp, og göturnar eru ekki hreinsaðar nógu oft, heldur safnast rykið út í kanta, og þegar stórir flutningabílar fara um, þyrla þeir þessu ryki upp. 

Annað getur líka komið til; vaxandi mengun af völdum brennisteinsvetnis frá gufuaflsvirkjunum á Hellisheiði. 

Á dögunum var opnuð ný og kröftug borhola við Hverahlíð, "sem lofar góðu" eins og sagði í frétt þar um. Það þýðir að þessi nýja hola spýr brennisteinsvetnismenguðu lofti af miklum krafti út í loftið. 

Fyrir hefur verið minnkandi mengun, þökk sé viðleitni til að binda útblásturinn með athyglisverðri aðferð, en í frétt af nýju holunni segir, að því miður verði bið á því að hægt verði að binda óæskileg efni frá henni niður því að hún er fyrir utan það svæði, þar sem það hefur verið sæmilega handhægt. 

En hvers vegna er verið að opna nýjar holur?  Jú, fyrir ári lá fyrir að orka virkjunarinnar, sem byggist á rányrkju frá upphafi, hafi minnkað úr 300 megavöttum í 225. 

Það er ekkert smáræðis orkuminnkun og stefnir allt of glannalegum orkusölusamningum í voða. 

Þess vegna er svipað uppi á teningnum þarna og við Eldvörp hjá HS Orku. Í örvæntingarfullri eftirsókn eftir nýjum borholum, er verið að reyna að seinka óhjákvæmilegu orkufalli, sem að vísu dregst í bili, en verður síðar til þess að orkugeymirinn tæmist hraðar og hastarlega í lokin. 

Núverandi borgarmeirihluti geldur þess ef aðstæður í jafn einföldu máli og loftgæðum verða jafn slæmar og oft í vetur.

Gildir þá einu hvort minnihlutaflokkarnir myndu breyta miklu um þessi djúpstæðu vandamál.  

Vika er hins vegar langur tími í stjórnmálum og í hagstæðum vindum sem bera hreint loft yfir borgarbúa gleymast dagarnir yfir heilsuvernarmörkum kannski að einhverju leyti. 

Spennan mun vaxa um úrslit kosninganna og tilkoma nýrra framboða setur hugsanlega strik í reikninginn. 

 


mbl.is Meirihlutinn fallinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn aðili málsins virðist vera með hreinan skjöld.

Það er erfitt að vera áhorfandi að heimsmálunum á þessum síðustu tímum falskra frétta. 

Enginn aðili eiturefnamála síðustu daga er með hreinan skjöld frá fortíðinni. 

Sumir segja sem svo að Assad og Rússar hafi enga ástæðu til þess að vera að klúðra málstað sínum í unninni stöðu með því að láta efnavopnaárás viðgangast. 

Á móti kemur, að bæði Assad og Saddam Hussein á sínum tíma gerðu efnavopnaárásir á eigin þegna. 

Þegar Saddam Hussein sallaði Kúrda niður komst hann upp með það, því að þá var hann í náðinni hjá Bandaríkjamönnum, sem studdu hann með ráðum og dáð í gersamlega tilgangslausu stríði við Írani.

Þegar Saddam féll síðan í ónáð hjá Kananum með innrásinni í Kúveit, spann sami maður og nú eggjar Donald Trump til "dáða", það upp að Saddam Hússein byggi yfir "gereyðingarvopnum." 

Það reyndist tómt bull og Trump hefur ásakað George W. Bush og síðar Hillary Clinton og Barack Obama fyrir að bera ábyrgð á öllum hörmungunum í Írak og Sýrlandi. 

Samt ætlar hann hugsanlega fara að svipuðum ráðum hjá Bolt og voru hið mesta óráð 2003 og 2011. 

Og nú spyrja sumir: EF ásakanirnar um efnavopnaeign voru rangar 2003, af hverju skyldu þær vera réttar nú? 

Bretar tóku undir þær 2003, og skyldu Bretar vera á svipuðu róli nú varðandi árásina á Douma og árásina á Skripal?

Rússar hafa stutt harðstjórann Assad alla tíð og bera sífellt af honum blak. Hví skyldi þeim vera treystandi?  

Og í þessu andrúmslofti algers vantrausts á þjóðarleiðtogunum, sem standa fyrir hervirkjunum í Sýrlandi, þurfa þjóðir heims kannski að verða viðbúnar þvílíkum hernaði í Miðausturlöndum, að fyrra rugl, manndráp og eyðilegging, verði að hreinum smámunum í samanburðinum. 


mbl.is Íhuga hernaðaraðgerðir í Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. apríl 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband