Hvert stefnir, - hverjir hagnast, - qui bono?

Nokkurra ára atburðarás í vopnakapphlaupi stórvelda heimsins leiddi til Fyrri heimsstyrjaldarinnar. 

Þegar öll þessi skref voru stigin var í hvert skipti tekin ákveðin áhætta, sem í orði kveðnu að minnsta kosti, var talin ásættanleg. 

Hverjir högnuðust? Vopnaframleiðendur og þeir sem græddu á hagvexti. 

Vopnaframleiðendur héldu áfram að hagnast í stríðinu sjálfu og stunduðu viðskipti yfir víglínurnar í báðum heimsstyrjöldunum. 

En það hafði verið reiknað skakkt út hvert stefndi og allir töpuðu á endanum. 

Nú eru þúsundfalt meiri váboðar á lofti þegar verið er að taka áhættu og spila með heimsfriðinn með auknum ýfingum og hervæðingu. 

Hverjir hagnast?  Jú, hergagnaiðnaðurinn. Hvert stefnir? Jú, í auknar ýfingar, illindi og átök og í þetta skipti er síst tekin minni áhætta en fyrir 1914. raunar margfalt meiri. 

Miklu veldur sá, sem upphafinu veldur, er stundum sagt. 


mbl.is Íranar hefja auðgun úrans að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumargjafir fyrir lífeyrisþega detta inn um blaðalúgurnar.

Nú fréttist af endurútreikningum á lífeyri aldraðra og öryrkja sem þeir fái senda bréflega og snúa að því að ríkið nái sem mestu til baka af þeirri hungurlús, sem þeim hefur verið skömmtuð. 

Fróðleg og athyglisverð var hin langa upptalning eins talsmanns lífeyrisþega um daginn á öllum þeim smásmugulegu atriðum, sem nýtt eru til þess að tryggt sé að sem flestir sitji fastir í fátæktargildru, sem á sér enga hliðstæðu í norðanverðri álfunni. 

Gildir þar enn máltækið, að það er lítið sem hundstungan finnur ekki. 


mbl.is Loforðin „innantómt blaður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. júní 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband