"Svaka jeppi"?

Á síðustu árum hefur orðið og hugtakið "jeppi" verið skipulega eyðilagt í viðleitni bílafraleiðenda til þess að selja sem mest af bílum, sem hægt væri að kenna við þetta tískuorð. Mitsubishi Outlander PHEF

Bílar eins og Renault Captur og Opel Crossland eru meðal fjölmargra jeppa sem ekki er einu sinni hægt að fá með fjórhjóladrifi og margir aðrar gerðir, sem fást bæði með framdrifi og aldrifi, eru að miklum minnihluta aðeins með framdrif. 

Ástæða þess að fólk kaupir slíka bíla frekar án fjórhjóladrifs er tvíþætt. Annars vegar halda kaupendurnir að um aldrifsíla sé að ræða, af því að þeir eru kallaðir jeppar eða sportjeppar eða þá að aðalatriðið er að þeir sýnist vera á "svaka jeppa" vegna þess að útlitslega er ekki hægt að sjá munin á aldrifsbílum af gerðinni og framdrifsgerðinni. 

Yfirleitt er veghæð þessara "jeppa" aðeins 17 til 20 sentimetrar án ökumanns, en um leið og kominn er farangur í bílinn eða farþegar síga þeir niður í 10-13 sentimetra hæð fjaðra þar að auki enn meira niður á við á ójöfnum vegi. 

Bíllinn á myndinni hér fyrir ofan er vel heppnaður tengiltvinnbíll, sem hefur ásamt nokkkrum öðrum þá sérstöðu meðal tvinnbíla að vera fjórhjóladrifinn. 

Uppgefin veghæð er 18,5 sm, en þegar fjöðrunin fer að bælast við notkun og ekki síður þegar farið er að hlaða hann með farangri og farþegum, minnkar veghæfðin mjög. 

Mér er kunnugt um tvo tengiltvinnbíla af þessari gerð sem ökumenn ráku niður á fjallaslóðum af því að þeir ofmátu torfærigetu þessara "svaka jeppa." 

Í báðum tilfellum skemmtust rafhlöður bílanna og þar með flókinn tölvubúnaður tengdur þeim, svo að viðgerð fór langt í tvær milljónir á hvorum bíl. 

Þess má geta að fyrir fjórum árum gerði ég fræðslukvikmyndina "Akstur í óbyggðum" sem var gerð með þeirri kröfu að hún sýndi vel dýrð íslenska hálendisins en ekki síður hvernig væri hægt að auka öryggi á slíkum ferðum með fræðslu um það sem varast bæri. 

Fyrirfram bjóst ég við að meira en 200 bílaleigur landsins eða samtök þeirra myndu hafa áhuga á slíkri mynd, en hið þveröfuga kom í ljós. 

Enginn þorði að setja ljósið á köttinn. 


mbl.is Verstu dæmin á Dómadalsleið og við Ljótapoll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í upphafi skyldi endinn skoða.

Saga HM geymir ýmis dæmi varðandi það sem Wayne Rooney segir og má orða með íslenska máltækinu að í upphafi skyldi endinn skoða. 

Nokkur af bestu knattspyrnulandsliðum heims hafa farið flatt á því í gegnum tíðina að hafa ekki getað haldið sinni miklu getu út alla leiðina til enda móts. 

Líklega hefur ekkert knattspyrnulandslið borið jafn mikinn ægishjálm yfir önnur og lið Ungverja milli 1950 og 1956. 

En það munaði einum leik að þetta afburðalið yrði heimsmeistari 1954. 

Svipað gilti um lið Brasilíu 1982 og lið Hollendinga 1974. 

Lið Rússa var æðislegt 2006 ef ég man rétt, en sprakk á limminu, þoldi ekki eigin ofurhraða til lengdar. 

Lið Brasilíu lofar góðu núna og skipuleggur leiki sína vel með hliðsjón af því að ofkeyra sig ekki. 

Svo vitnað sé í hnefaleika var það einn af lyklum Muhammands Ali að skipuleggja bardaga sína þannig að hann sprengdi sjálfan sig ekki á ofurhraðanum. 

Hann "gaf" lotur með hliðsjón af framhaldinu. 

George Foreman tapaði bardögum á fyrri hluta ferils síns vegna æsings og fór í sjálfskipað frí í tíu ár. 

Eftir hléð kom gerbreyttur Foreman til leiks og sýndi með útsjónarsemi sinni þá, hvers hann hefði verið megnugur á árunum 1973-77. 


mbl.is Englendingar eru of heiðarlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband