26.1.2019 | 18:07
Algengt og meinlaust vitleysisröfl í fylleríi?
Gagnsókn Klaustursmanna í málinu sem kennt er við barinn gegnt Dómkikjunni, er nú orðin að stórsókn á mörgum vígstöðvum fjölmiðla og samfélagsmiðla.
Sumir bloggarar skrifa jafnvel tvo pistla á dag um málið.
Sóknin byggist á tvennu:
1. Að gera sem minnst úr því sem sagt var á barnum og spurt:
"Hver er glæpurinn sem felst í því að drekka sig fullan og röfla einhverja vitleysu, sem engar afleiðingar hefur nema einhvern móral?"
Sem sagt; það er engin ástæða til að gera neitt veður út af jafn algengu og sakleysislegu fýrirbæri og því sem uppvíst varð um á Klausturbarnum. .
2. Lögregla þarf að rannsaka hinn raunverulega "glæp", - samsæri vinstri manna og RÚV undir stjórn Helgu Völu Helgadóttur og síðar hins "hefndarþyrsta" Steingríms J. Sigfússonar. Yfirmenn RÚV eiga að segja af sér.
Segir viðbrögð Sigmundar barnaleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.1.2019 | 12:50
"Virkja stanslaust! Annars verður kreppa og atvinnuleysi!"
Fróðlegt er að rifja upp 20 ára gamalt samtal síðuhafa við einn af helstu ráðamönnum landsins í tilefni af áframhaldi þeirrar stífu stórvirkjanastefnu sem boðuð er raforkustefnu sem kynnt er í Morgunblaðinu í dag.
Ofangreind orð sagði Finnur Ingólfsson við síðuhafa þegar hann réði miklu um orkumálin í embættum iðnaðarráðherra og Seðlabankastjóra og framundan voru virkjanir á næstu árum, sem þrefölduðu raforkuframleiðslu Íslands svo að hún yrði fimmfalt meiri en Íslendingar þyrftu sjálfir fyrir eigin heimili og fyrirtæki:
Finnur:
"Þú veist það, að við verðum að virkja stanslaust, því að annars verður hér kreppa og atvinnuleysi."
Síðuhafi:
"En hvað eigum við að gera þegar við erum búin að virkja allt semvirkjanlegt er og fórna fyrir það helstu náttúruperlum landsins?"
Finnur:
"Þá verðum við dauðir, svo að það verður bara viðfangsefni þeirra kynslóða sem þá verða í landinu."
Þörf fyrir tvær Búrfellsstöðvar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)