28.1.2019 | 20:18
Bára grunsamlega útbúin á Austurvelli?
Frettin um konu sem lægi í annarlegu ástandi i tengdri frétt á mbl.is er ekki sú eina af því tagi þassa dagana.
Krafan um lögreglurannsókn á hinum raunverulegum afbrotamönnum i Klausturmálinu, sem rekin hefur verið daglega á samfélgasmiðlum síðustu vikur tekur nefnilega á sig æ athyglisverðari mynd.
Hið nýjasta er að benda á grunsamlegan mun á þvi hvernig Bára Halldórsdóttir hefði verið útbúin og klædd, annars vegar á Austurvelli i gær, dúðuð, sitjandi í hjólastól, en hins vegar allt öðruvísi útbúin á Klausturbarnum 20. nóvember sl.
Það er verulega áhugavert að taka þátt í þessari rannsókn, því að sakbendararnir hafa ekki fyrir því að afla augljóslegra gagna í málinu með því að leita til upplýsinga Veðurstofunnar um aðstöðuna á þessum tveimur stöðum og leita skýringa á því af hverju Bára sat í hjólastóli á Austurvelli, því að verulega grunsamlegt sé hve miklu meiri tíma hun var á basrnum en á vellinum.
Þessi gögn eru fljótfundin:
Klausturbarinn 20. nov:
Vindur: Logn.
Hiti ca 23 stig.
Hiti, ef vindndkæling er tekin með: Sami, vindkæling engin, nema hugsanlega ?örlítill gustur þegar dyrnar voru opnaðar augnablik og ískur i hemlum reiðhjóls heyrðist í þann mund sem rætt var um hljóðin sem fylgdu persónu sem rætt var um.
Austurvöllur 27. jan:
Vindur: Norðan 5 - 7 m/sek, ( 10 - 15 hnútar)
Hiti: Frost 3,5 stig.
Hiti, ef vindkæling er tekin með: Meira en 10 stiga frost.
Snjóþekja á jörð.
Nú er hægt að bera þessi skilyrði saman með því að hafa þessi gögn í höndum.
Bára sat í stól á báðum stöðunum.
Grunsamlegt þykir að hún skyldi sitja i hjólastól á Austurvelli. Það þarf að komast til botns í því, - ekki satt?
Ef hún sat við stól við borð inni á veitingastofunni, - af hverju sat hún ekki við borð á Austurvelli?
Og síðan er það sem þykir ekki standast: Að hún hafi haldist við í heilar 3,5 klukkustundir á barnum, úr því að hún þurfti að eigin sögn að sitja kappklædd í hjólastól á vellinum í aðeins rúman hálftíma.
Tölur, sem gætu hjálpað;
Austurvöllur í 0,5 klst í ca 30 stiga minni raunhita en á 3,5 klst fundi á Klausturbarnum.
Frekari ábendingar og gögn eru vel þegin í athugasemdum við bloggpistilinn.
Var að njóta snjókomunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.1.2019 | 17:02
Sólinni fagnað líka heima hjá síðuhafa.
Þannig háttar til þar sem síðuhafi býr, að ákveðinn dag seint í janúar kemst sólin upp fyrir þakbrún á álmunni beint á móti í um það bil hálftima.
Hins vegar verður enn ansi löng bið á því að versta skammdeginu ljúki.
Það verður nefnilega ekki morgunbjart á vökutima fyrr en eftir þrjár vikur, af því að klukkan okkar er er hátt i tvær klukkustundir of fljót, miðað við raunveruglegt hádegi og miðnætti.
Sólinni fagnað á Siglufirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2019 | 08:43
Sagan, sem ekki má gleymast.
Saga uppgangs, sigurg0ngu, einstæðra illvirkja og síðar hrikalegs falls og hruns nasismans, mestu villimennsku í sögu mannkynsins, má aldrei gleymast sem víti til varnaðar og sígildur lærdómur.
Þegar fullyrt er að þetta hafi verið hámark villimennsku byggist slíkt mat á því hvernig einstaklega háþróuð tækni mikilla kunnáttumanna og stórbrotið útrýmingarkerfi var notað til að murka lífið úr milljónum fórnarlamba Adolfs Hitlers og glæpagengis hans.
Var ókunnugt um sögu nasista | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)