"Þingmenn inni una sér..." Er Klausturbarinn líka opinn?

Það var skondið, svo ekki sé meira sagt, ástandið á Alþingi nú rétt áðan um fjögurleytið.

Búið að loka búðum í kringum þinghúsið, loka þjóðveginum um Kjalarnes og setja þar upp fjöldahjálparstöð. 

Einnig verið að skella í lás á leiðunum austur fyrir Fjall. 

Þar með var í raun verið í óða önn að tryggja Alþingishúsviðveru þingmanna, sem eiga heima utan Reykjavíkur.  

Á Kjalarnesi sló vindmælirinn í 40 m/sek í hviðum, sem er langt yfir fárviðrismörkum á sama tíma og umræðan um Þjóðkirkjuna var í fullum gangi og stefnt að því að taka fyrir næsta mál á dagskrá. 

Þetta var yndislega absúrt.  

Kom þá Halldóra Mogensen í ræðustól og greindi frá ástandinu utan þinghússins með þeirri ósk, að forseti byrjaði að kynna sér aðstæður.   

Hún sagði meðal annars frá lokun fyrirtækja og verslana í grenndi við þinghúsið, og fannst þeim, sem horfði á beina útsendingu í sjónvarpi frá þessum ósköpum að það vantaði bara að upplýsa, hvort Klausturbarinn gæti kannski verið opinn sem fjöldahjálparstöð fyrir Alþingismenn. 

 

Þingmenn inni una sér

og ekki fær þeim haggað hér

hve illa veðrið lætur..

Sama´er hvað að höndum ber

ef Klausturbarinn opinn er 

alla daga og nætur.


mbl.is „Veðurhlé!“ — Margar verslanir skella í lás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo eru aðrir sem nærast á því að segja: "Við og þau."

Mikil speki og lífsreynsla drýpur af vörum ungs Nóbelsverðlaunahafa þegar hann tekur við friðarverðlaununum: "Það er ekkert við og þau" segir hann og tekur sem dæmi langvarandi styrjöld og styrjaldarástand á milli Eþíópíu og Eritreu og reynslu sína af því að hafa þjónað þar í fremstu víglínu og upplifa strádráp vina sinna og félaga. 

Í ferðum úm Eþíópíu 2003 og 2006 blasti við böl stefnunnar "við og þau". 

Þótt ekki ríkti styrjöld þá milli ríkjanna var enn í gildi yfirlýst hernaðarástand, sem gaf valdasjúkum leiðtogum færi á að viðhalda einræðisstjórn og tækjum til að halda þjóðlífinu í heljargreipum.   

Víða um landið blöstu við ónotuð eða ónýt mannvirki frá tímum fyrri einræðistímum hjá Haile Selassie keisara, Mussolini, keisarans á ný, Mengistu eftir kommúnistabyltingu og þá harðstjóra, sem komu á eftir. 

2003 og 2006 voru íbúar Eþíópíu rúmlega 80 milljónir en í landinu öllu voru aðeins tíu litlar flugvélar í einkaeigu og við borgina Arba Minch var stærðar flugvöllur með bruðlkenndri flugstöð mað marmaragólfum, en í mesta lagi umferð upp á eina flugvél á dag. 

Þvert yfir landið sunnarlega liggur þráðbeinn upphækkaður vegur frá tímum Mussolinis, löngu gerónýtur vegna viðhaldsleysis, og svo illfær fyrir öfluga jeppa, að mestalla þessa þjóðleið er ekið meðfram veginum sitt á hvað. 

Þjóðartekjurnar og hagkerfið voru þá álíka stór og á Íslandi, þannig að fjárhagsleg kjör íbúa landsins eru að meðaltali 300 sinnum lakari en hjá okkur, eða, með öðrum orðum, að árstekjur meðalmanns í Eþíópíu eru álíka miklar og tekjur eins dags hjá okkur. 

Nú reyna ráðamenn að græða sárin eftir "við og þau" stefnuna sem hefur valdið ómældum þjáningum og tjóni og Eþíópíumenn eru að byrja að rétta úr kútnum. 

Orð hins unga, en lífsreynda forsætisráðherra í dag, leiða hugann að vaxandi fylgi stjórmálahreyfinga í vestrænum lýðræðisríkjum þar sem stefnan byggist á því að skipta fólki í gagnstæða hópa með óvild í garð hvers annars og kalla á átök, aðskilnað, hindranir, múra og óvild. 


mbl.is Þar er ekkert „við og þau“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullt tungl næsta fimmtudag.

Myndin af tunglinu, sem tekin var í gær við Minni-Borg í Grímsnesi, sýnir athyglisvert fyrirbæri: Sólheimaferð des 2019 (2)

Sem er það, sem stendur í almanakinu; að það verður fullt tungl eftir tvo daga og því fyrir hendi eitt af því sem er nefnt, þegar verið er að spá fyrir um sjávarhæð þar sem brimalda skellur að landi. 

Særokið og öldurótið á Kollafirði inniheldur ótrúlega mikið magn af salti og skít, sem sest á bíla og annað, sem utan dyra er. 

Jafnvel þótt vindáttin á morgun verði þannig að Esjan skýli strandlengjunni að einhverju leyti í austanverðri borginni, er oft mikil skán á öllu í veðri eins og kann að verða á morgun. 

Innst í Kollafirðinum í nánd við Mógilsá þyrlast oft upp mikið særok sem getur borist furðu langar vegalengdir með vindinum.  


mbl.is Aldan mun skella á Sæbrautinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. desember 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband