Lífseigur misskilningur um þjóðgarða og virkjanir.

Fyrir tilviljun hlustaði síðuhafi á viðtal við Jónas Elíasson prófessor á Hringbraut í dag. 

Ég hef mikið dálæti á frískleika og opinni og frjórri hugsun þessa hressa manns, sem lætur háan aldur ekkert á sig frá. Hetch_Hetchy_Valley_From_Road,_Albert_Bierstadt

En í dag hélt hann fram misskilningi um virkjanamál, sem virðist ætla að verða lífseigur hér á landi og lita alla umræðu um þau. 

Jónas fullyrti að virkjanir og þjóðgarðar færu vel saman og hélt því sama fram við upphaf umræðu um Kárahnjúkavirkjun. 

Þá nefndi hann tvo staði i Bandaríkjunum sem dæmi og varð það til þess að ég lagði á mig mikla fyrirhöfn til þess að skoða þá. Valley_View_Yosemite_August_2013_002

Þetta voru meðal annars miðlunarlónið Hetch-Hetchy í Yosemite í Kaliforníu og Grand Lake virkjunin í Rocky Mountains þjóðgarðinum í Kolorado. 

Efri myndin er af þessum dal, sem sökkt var 1923, en neðri myndin er af hinum heimsfræga Yosemitedal. 

Í viðtalinu á Hringbraut í dag bætti hann við Mead og Powell miðlunarlónunum og Roosevelt lónunum og lét sig ekki muna um það að skilgreina Elliðavatn sem hreint miðlunarlón í leiðinni. 

Tökum þetta fyrir: Hetch-Hetchy var myndað með stíflu fyrir hundrað árum þegar viðhorf og reglur um þjóðgarða voru allt aðrar en nú eru. 

Í alvöru er nú deilt hart um þá hugmynd að hleypa vatninu úr þessum íðilfagra dal og endurheimta glæsileik hans. 

Grand Lake, þ.e. vatnið sjálft, er ekki miðlunarlón eins og Jónas hélt fram, heldur er miðlunarlón virkjunarinnar utan þjóðgarðsins, en lónið tengt við vatnið neðanjarðar svo hægt sé að viðhalda stöðugri vatnshæð í því. 

Á Hringbraut í dag hélt Jónas því fram að miðlunarlónin stóru vestra væru í friðlöndum. 

Það er alrangt. Þau eru á svonefndum útivistarsvæðum (Recreational areas) sem eru fjarri því að standast kröfur um þjóðgarða og svæði með sambærilegri friðun og þjóðgarðar. 

Hvað Elliðavatn áhrærir hafa virkjanafíklar þrástagast á því að það sé að öllu leyti tilbúið, manngert. 

En Elliðavatn hefur verið til í minnsta kosti ellefuþúsund ár, enda bera þúsund ára gömul örnefni þess vitni, Elliðavatn sjálft, bæirnir Elliðavatn og Vatnsendi, og hæðirnar Vatnsendahæð og Vatnsendahvarf. 

Þegar Elliðaárnar voru virkjaðar var vatnsborðið hækkað með stíflu og stækkaði vatnið nokkuð við það. 

En að Elliðavatn sé manngert að öllu leyti er alls ekki rétt. 

Í Morgunblaðinu í fyrr var því haldið fram að nokkuð ný virkjun með tilheyrandi mannvirkjum væri risin í miðjum þjóðgarði í Ástralíu. 

Þessi fullyrðing reyndist vera búmerang því að hið sanna var virkjunin var öll neðanjarðar á nokkurs rasks eða breytinga á yfirborðinu. 

Í lokin má svo geta þess að Jónas notaði kjörorð stefnu sinnar um hugsun sína fyrir tveimur áratugum: "Virkja fyrst og friða svo!"

Í samræmi við það var sett fram sú stefnumótun að austan Hálslóns skyldi vera þjóðgarður, sem næði nánast alveg fram á bakka þeirra miðlunarlóna, sem þar eru. 

Og með tilkomu Vatnajökulsþjóðgarðs hluti af honum. 

En þegar UNESCO samþykkti að Vatnajökulsþjóðgarður skyldi verða á heimsminjaskrá, vakti það athygli síðuhafa, að þessi fráleita hugsun ekki brautargengi hjá stofnuninni og að þetta svæði þeirra, sem telja að virkjanir á borð við Kárahnjúkavirkjun og þjóðgarðar, er ekki hluti af því svæði sem er á Heimsminjaskrá. 

 


mbl.is „Þarna hefur verið farið að öllum lögum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekar að miða við fullveldistímann en lýðveldistímann.

Að sönnu var það mikill áfangi í sjálfstæðisbaráttunni, ekki síst út á við, þegar Ísland varð lýðveldi 1944, en í raun hafði óskoruðu fullveldi verið náð með skipun ríkisstjóra þremur árum fyrr og landið verið frjálst og fullvalda ríki 1918 með ákvæði, sem tryggði rétt þjóðarinnar til þess að verða lýðveldi 25 árum siðar. 

Því er hollt þegar minnst hefur verið aldar afmæli fullveldisins að miða frekar við sögu þess áfanga, sem var í raun sá stærsti, en við lýðveldistímann. 

Á sínum tíma komu þeir Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson eins og ferskir, hvítir stormsveipir inn í íslensk stjórnmál til að verða meirihluti ráðherranna í "stjórn hinna vinnandi stétta" 1934 og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er enn einn glæsilegur fulltrúi íslenskra kvenna, sem nú sest í framvarðasveit íslenskra stjórnmála. 


mbl.is Næstyngsti ráðherra sögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. september 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband