Jafnvel erfiðar vinnuferðir eru toppurinn, allur sólarhringurinn.

Í eins konar vinnuferð frá Reykjavík um Norðausturland til Brúaröræfa fyrir innan Kárahnjúka, reyndist hún nokkuð erfið vegna magakveisu í upphafi hennar. Staðarskáli 4.júlí 2020

En þrátt fyrir það og ýmsa smá örðugleika, eins og gengur, vaknaði enn einu sinni hin gamalkunna tilfinning um það, sem ferðalög innanlands hafa að bjóða íbúum þessa lands.

Strax í Staðarskála síðdegis var mun fleira um manninn en i ferð þar um fyrir þremur vikum, og miðnætursólarfegurðin á Akureyri sveik ekki; sjá mynd neðar á síðunni.  

Slitlag Kjalarnesi

Hugsanlega munu myndir úr þessu þriggja daga 1500 kílómetra langa landferðalagi því dreifast á pistla hér á síðunni. 

Búið var fyrir helgi að segja frá uppörvandi umferð á leiðinni norður, en um helgina og heim til baka í gær var margt enn meira uppörvandi að sjá, svo sem það að búið væri að panta öll gistipláss mánuð fram í tímann á einu þeirra. 

Athygli vöktu tugir vélhjóla í leiðinni og ýmislegt fréttnæmt. Nýlagt slitlag á Kjalarnesi vakti athygli fyrir það í gærkvöldi, hve spegilslátt það var, og vakti líka spurningu um það, hver hálkustuðullinn væri, ausandi rigningu gerði.  

Samkvæmt frétt í dag taldist þetta nýjasta slitlag og fleiri slík vera innan marka, en þær mælingar eru gerðar í þurru veðri.Akureyri, Pollurinn 4.júlí 2020

Myndin í gærkvöldi var tekin í rökkri og því nokkuð óskýr, en þó sjást framljós bílsins, sem kemur á mót, speglast í yfirborði malbiksins. 

Neðst er mynd, tekin fyrir neðan Kárhól í Reykjadal í Þingeyjarsveit hina hljóðu og kyrru júlínótt þar sem fuglinn vakir og speglar sig í tjörninni. Kárhóll,  tjörn miðsumars nótt


mbl.is Langar til Húsavíkur eftir að hafa séð Eurovision-kvikmyndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir borga hærri tolla? Almenningur. Allir tapa á tollastríði.

Á undan Seinni heimsstyrjöldinni hafði geysað tollastríð í heimsviðskiptum. Eftir að friður komst á 1945 tók við 10-15 ára tímabil þar sem niðurstaða þjóða heims var í megindráttum sú að aflétta tollum og viðskiptahindrunum. Reynslan af ófriðartímabilinu 1930-1945 hefði sýnt, að í heildina töpuðu allir á stórfelldum verndartollum og hindrunum, sem urðu til þess að vörurnar voru ekki framleiddar í þeim löndum þar sem það var hagkvæmast. 

Þegar litið er yfir listann af þeim vörum, sem við Íslendingar framleiddum hér í landi í skjóli tolla og hafta, vekur undrun, hvað þetta voru ótrúlega margar og ólíkar vörur, sem ekki væri viðlit að framleiða nú. 

Þeir, sem standa fyrir tollunum gorta sig af því að hafa með því að leggja þá á, mokað miklum tolltekjum inn í lönd sín.  

En hverjir borguðu fyrir þessar innfluttu vörur, sem hækkuðu svo mikið í verði? Það voru innlendir kaupendur, sem urðu fyrir auka útgjöldum við að hækka þessar erlendu vörur með hækkuðu söluverði vegna tolla, nema ef þeir sættu sig við að kaupa í staðinn lakari innlendar vörur. 

Nú virðist óðum að gleymast sá dýrkeypti lærdómur sem fékkst af ofurtollatímabilinu og viðskiptahindranatímabilinu 1930-1960. 

Þegar allt dæmið var reiknað, kom í ljós að þessi ofurtolla- og einangrunarstefna varð til þess að allur heimsbúskapurinn tapaði þegar upp var staðið. 


mbl.is Evrópusambandið varar Bandaríkin við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. júlí 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband