"Á háu levelli..."? Kennslubókarleikur á Old Trafford í dag.

Leikur Manchester United og Liverpool í dag var með lærdómsríkustu leikjum sem sjást um þessar mundir.  

Fyrirfram mátti ætla að þetta yrði jöfn viðureign ef notuð var sú aðferð að stilla leikmönnunum upp fyrirfram og leggja saman áætlað virði þeirra. 

En ef slíkt er gert er hætta á því að slíkt hrökkvi skammt og að sú hlið knattspyrnunnar að hún er flokkaíþrótt vegi þyngra. 

Nöfn eins og Ronaldo og Salah sýnast til dæmis vega svipað "á háu levelli" eins og lýsendum í knattspyrnu sýnist í snobbi sínu fyrir enskri tungu svo "kúl" að segja, - en í leiknum í dag kom í ljós að samlagning á eins og konar markaðsvirði leikmanna hafði enga þýðingu, - annað liðið valtaði yfir hitt á öllum sviðum knattspyrnunnar, bæði á grundvelli betri samstillingar og á því atriði, að leikmenn bættu hver annan upp oft á tíðum. 

Þessu fyrirbæri má líkja við sönghópa, þar sem útkoman á söngnum verður miklu stærri tala en sú, sem kemur út úr því að leggja hrátt virði söngvaranna saman. 

Eða öfugt, virði sönghópsins miklu minna en frægð söngvaranna geftur tilefni til að ætla. 

Íslenskt dæmi er svonefndur Einsöngvarakvartett, sem settur var saman fyrir tæpri hálfri öld og skartaði fremstu óperusöngvurum þess tíma. 

Útkoman varð sú, að þessir frábæru einsöngvarar voru raunar of góðir samtals fyrir verkefnið, því að með því að hlusta grannt á þá var auðvelt að greina hver var hvað og þar með skertist það helsta gildi hvers sönghóps, að samhljómurinn sé sem fallegastur.  


mbl.is United niðurlægðir af erkifjendunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yrði áframhaldandi stjórn nokkuð betri en sú, sem nú er?

Þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð þóttu það heldur betur tíðindi að svo ólíkir flokkar með jafn ólíkar stefnur, hagsmuni og áherslur gætu starfað saman í ríkisstjórn í heilt kjörtímabil.  

Svo fór að vísu, að stjórnin sat út kjörtímabilið, en spurningin er að hve miklu leyti það var því að þakka, að risavaxið mál í formi farsóttar riðlaði öllu jafnvægi í þeim tíma og starfsemi, sem önnur viðfangsefni fengu. 

Og þar að auki voru það ansi mörg grundvallarmál, sem strönduðu og hafa ekki verið leyst enn. 

Ef það verður engu að síður niðurstaðan að stjórnarsamstarfið verði endurnýjað er það stór spurning hvort áframhaldandi þrátefli á of mörgum sviðum muni geta orðið til þess að höggva í það mikla fylgi, sem stjórnin ein og sér hefur notið síðustu fjögur ár. 


mbl.is „Íslensk óþolinmæði“ eftir stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 24. október 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband