Allt mun velta á réttri greiningu þess, sem hefur gerst 2015 til 2021.

Slakur árangur hinna fjölm0rgu ráðstefna um umhverfismál heimsins allt frá Ríó fyrir þremur áratugum sýnir, að lítið muni þokast framundan ef hvort tveggja fer saman, að undirstaða þess, sem ætlunin er að gera er stórgölluð og að þar með muni gilda lögmálið "garbage in - garbabe out " ef inn er sett ónýtt rusl, verður útkoman líka rusl. 

Vegna þess að hver þjóð um sig reynir að laga bókhaldið hjá sér í þá átt að sleppa sem billegast sjálf, er mikil hætta á því að í heildina verði bókhaldið og aðgerðir ómarkvisst klór. 

Vegna hinnar takmarkalitlu efstirsóknar eftir hagvexti, helst í veldisvexti, nun fyrirsjáanlega nást lítill árangur, nema grunnhugsuninni og gildunum sé gerbraytt og aðgerðunum beint að því sem raunverulega getur orðið grunnur að umskiptum í meðferð jarðarbúa á plánetu sinni. 


mbl.is Fyrsti uppgjörstími Parísarsamkomulagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðastliðin fjögur ár hefur verið hægt að bera við tímaskorti, en ekki lengur.

Fyrir fjórum árum lögðu núverandi stjórnarflokkar upp í pólitiskt ferðalag, sem átti sér aðeins eitt beint fordæmi varðandi það að öfl yst á jöðrum hins pólitíska litrófs tóku höndum saman um landstjórnina. 

Það var mögulegt á árunum 2944 til 1946 vegna þess að þjóðin hafði úr dæmalausum fúlgum erlends gjaldeyris að moða, svonefndum stríðsgróða. 

Stjórnin hélt velli í kosningum 2946, en þegar stríðsgróðinn tæmdist og utanríkismál urðu lang stærsti og erfiðasti málaflokkurinn, brustu forsendur stjórnarsamstarfsins strax eftir kosningarnar. 

Núverandi ríkisstjórn hefur borið við tímaskorti og heimsfaraldri í útskýringum á því, hve mikið standur út af í formi ókláraðra stefnuatriða frá 2017 í vinnunni við að framlengja stjórnarsáttmálann og endurnýja hann. 

Nú er hins vegar horft fram á að stjórnin geti fengið viðbótar fjögur ár til að ljúka verkinu sem hafið var 2017, og þar með verður varla aftur hægt að bera við tímaskorti eftir fjögur ár, ef þá verður ekki búið að klára málin. 


mbl.is Lokahnykkurinn skammt undan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. október 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband