16.4.2021 | 18:18
Minnir að vissu leyti á Boeing 787 Dreamliner.
Hér á síðunni hefur nýlega verið greint frá því að í upphafi ferils Boeing 727 þotunnar, sem reyndist bæði Íslendingum og öðrum þjóðum hinn besti gripur eftir að gerðar höfðu verið endurbætur á þjálfun flugmanna og fleira í sambandi við óvenju öflugnan flapabúnað á vængjum vélanna til þess að gera kleyft að lenda þeim á minni flugvöllum en ella.
Fjórar þotur fórust fyrst eftir að þær komu á markað, en Boeing tók af festu á vandamálinu og það var leyst farsællega.
Ekki gekk eins vel í upphafi ferils Boeing 787 Dreamliner þegar það dróst um ein þrjú ár að standa við loforð um afhendingu þessarar mikilvægu þotu.
Ástæðan var ekki ólík þeirri sem nú hefur fundist í 737 MAX og málið leystist.
Hins vegar kom fram gagnrýni á það að Boeing hefði með meiri lausatökumm á útboðum á einstökum hlutum vélanna og of mikilli pressu til að mæta vaxandi samkepnni, sem hefði bitnað á harðari forgangsröðun fyrri ára varðandi það að öryggi skyldi ævinlega hafa forgang yfir alla aðra þætti í framleiðslu og sölu vélanna.
Nýjustu úrbætur varðandi jarðtengingu í Boeing 737 MAX virðast þess eðlis að ekkert þurfi að óttast en auðvitað er það mikilsvert fyrir alla aðila að þessi þota komist jafnvel í gegnum sínar hremmingar og Boeing 727 og Boeing 787.
Bæta þarf jarðtengingu í MAX 737 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2021 | 11:48
Snöfurmannlegt hjá Davíð.
Eitt af eftirminnilegustu augnablikum frétta síðustu aldar var þegar Bobby Fisher lék slíkum leik í fyrri hluta einvígis hans og Spasskís, að allir skákskýrendurnir urðu kjaftstopp.
Fisher hafði sýnt slíka eindæma dynti í aðdraganda einvígisins og í því sjálfu, að mörgum datt helst í hug að nú væri hann alveg búinn að tapa sér endanlega.
Þegar búið var að leika skákina áfram kom skyndilega í ljós, að þessi leikur Fishers var eitthvað, sem engum hafði dottið í hug fyrr; eitt af hinum mörgu snilldarbrögðum sem setti hann skör hærra en alla þáverandi bestu skákmenn heims.
Ofarnefnd skák varð vendipunktur í einvíginu. Spasskí klappaði fyrir frammistöðunni. Öllum mátti vera ljóst að gáfnavísitala Fishers skipaði honum á bekk með mestu snillingum aldarinnar, eins ótrúlega sem það hljómaði miðað við það hve galinn hann gat verið þegar tilfinningarnar fóru með hann í gönur.
Þessir dyntir og hatursorðræða hans í garð gyðinga ollu því að þakkir Bandaríkjamanna til handa þessa landa þeirra, sem nær einn og óstuddur hafði af eigin rammleik ráðist inn í ein helgustu vé heimskommúnismans, skáklistina, og haft þar frækinn sigur; urðu þær að fara að hundelta hann fyrir vafasamar sakir í Júgóslavíu.
Páll Magnússon segir í viðtali að Davíð Oddssyni, þáverandi forsætisráðherra, sem á þessum tíma stóð á hátindi valdaferils síns, sé það að þakka, að Íslendingar veittu Fisher landvistarleyfi hér á landi.
Davíð lagði líka ákveðið lóð á vogarskálar í öðru máli, þegar hann sagði á þingi að Guðmundar- og Geirfinnsmálið hefði verið dómsmorð.
Það má vel orða það svo að í þessum tveimur málum hafi hann risið upp fyrir flatneskjuna og megi þetta í minnum hafa.
Hvað um það; útlendingum finnst það merkilegt þegar þeir koma að leiði Fishers og síðan að leiði Jóns Arasonar og sona hans í Skálholti, að sjá einhvern fræknasta Bandríkjamann síðustu aldar hafa fengið að leggjast til hvíldar í friði á Íslandi, og að í Skálholti sé yfirskrift grafar síðasta kaþólska biskupsins yfir þjóðkirkjunni að þar hvíli Jón Arason biskup og synir hans (!?!)
Neitaði að fljúga með konu við stýrið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)