Ný Eldvörp í pípunum?

Í flugi lágt yfir norðurjaðar Dyngjujökul nokkrum dögum fyrir uppgötvun, sem mælingatæki færði jarðvísindamönnum um kvikugang sem lengdist í norðausturátt undir jöklinum, sást lítil gígaröð og hrauntröð norðan við jökuljaðarinn, sem myndast hafði í eldgosi fyrir um tveimur öldum

Nafn hennar reyndist vera Holuhraun og sjá mátti sandi orpið hraun, sem komið hafði upp í gosinu forðum. 

Það var mikið að gera hjá jarðeðlisfræðinum dagana á undan í umbrotahrinunni í Bárðarbungu, og fram að henni höfðu vísindamenn talið svæðið milli Dyngjujökuls og Öskju frekar tilheyra áhrifasvæði Öskju en áhrifasvæði Bárðarbungu. 

Annað kom í ljós nokkrum dögum seinna og næstu mánuði rann margfalt stærra nýtt Holuhraun, það stærsta sem runnið hefur hér á landi eftir Skaftárelda 1983.Eldvörp. Reykjanes fjærst.  

Landrisið nú við Þorbjörn er undir hraunum sem runnu meðal annars úr gígarððinni Eldvörpum, sem nær langleiðina frá sjó í áttina að Svartsengi. 

Í Holuhrauni kom hraun upp að hluta til í nýjum gígum inni í þeim gömlu, en meiriparturinn kom upp úr nyjúm gígum utan gamla Holuhrausins. 

Íslenskar eldstöðvar eru til alls líklegar eins og sést viða á forsögunni, til dæmis í og við Heklu og í Ódáðahrauni. 

 

.  


mbl.is Ný gögn sýna glöggt það ris sem á sér stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur hafa sótt fram síðustu áratugina.

Sókn kvenna á menntasviðinu hefur verið í gangi í nokkra áratugi og birst á flestum sviðum, svo sem varðandi hlutfall þeirra í háskólanámi og árangur á prófum. 

Þetta skilaði sér ekki alveg strax í þáttöku þeirra í stjórnun fyrirtækja og stofnana, en hefur nú raungerst nema kannski í stððum æðstu stjórnenda fyrirtækja. 

En sóknin heldur áfram og bæði forsætisráðherra, biskup, vegamálastjóri, orkumálastjóri, stjórnunarforysta í skipulagsmálum og umhverfismálum og þátttaka í störfum Alþngis eru konur, og er það vel.  

Enn er þó launamunur, konum í óhag, og á móti mikill vandi varðandi læsi drengja. 


mbl.is Fékk tíu í öllum áföngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. maí 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband