Mikið um háskalegan framúrakstur. Öræfin notuð fyrir tónlistaræfingar.

Á árlegri ferð á Þjóðvegi 1 um síðustu helgi mátti of oft sjá háskalegan framúrakstur, sem skóp hættu á stórslysi.DSC00174

Í Þessum tilvikum var þetta gert á svo miklum hraða yfir heila línu og blindhæð að undravert var. 

Í fyrrnefndri ferð vegna árlegrar opnunar Sauðárflugvallar á Brúaröræfum varð öræfaferðin óvenjuleg að ýmsu leyti. 

Lægð skapaði afar hraðar sveiflur í veðri í þessari ferð, dýrlegt veður fyrsta daginn, en á öðrum degi var mikil úrkoma og kalt, svo að landið varð alhvítt á efri hluta Brúaröræfa, og stöng við vegamót ísuð, eins og sjá má á mynd. DSC00175

Þriðja daginn og fjórða daginn fór veðrið hratt batnandi og endaði með einstaklega fögru sólarlagi í Eeykjavík. 

Vestan við Hálslón virtist auðnin stefna í það að verða alveg mannlaust þessa daga, þar til allt í einu, þegar ekið var fram á einhvern furðulegasta einstæðing, sem sést hefur á ferð í óbyggðum Íslands. 

Maðurinn hafði stöðvað bíl sinn í auðninni, sem jafnframt var húsbill í þessu tilfelli, einn af mörgum slíkum´í bæði byggð og óbyggð hér á landi og sumrin. 

Þarna var maðurinn við furðulega iðju; að æfa sig á trommusett, sem var hans ferðalagi í þessari eins manns æfinga- og hljómleikaferð. DSC00182

Hann sagðist gera þetta til þess að slá margar flugur í einu höggi. 

Komast út úr skarkalanum eins fjarri honum og auðið var.

En njóta samt eigin tónlistar við miklu æskilegri og gjöfulli æfingaaðstæður í þögn og einsemd og hugsast gæri í stað streitu og áreitis í byggð. 

Hér gæti enginn truflað hann að öllum jafnaði, enda væri ég eina manneskjan, sem hann hefði enn hitt við þessar óskaaðstæður í Íslandsferðinni. 

Ljósmyndirnar tala sínu máli, en eitt lítið 24 sek myndskeið verður kannski sett á facebook í kvöld, sem sýnir aðstæður betur. DSC00184

Stansað var stutt hjá manninum, hann aðstoðaði við sár, sem ég hafði fengið á hendi og þurfti að sauma í byggð, en aðeins að dytta þarna að til bráðabirgða. 

Miðað við það, sem maðurinn sagði um nauðsyn þess fyrir sig að komast aleinn í takt við almættið með tónlist sína, var það kannski ekki víst að hann hefði brugðist svona við óvæntri truflun á þann hátt að taka smá sóló á trommusettið í lokin, ef ég hefði ekki verið með meidda hönd? 


mbl.is Ætlaði fram úr flutningabíl en endaði á vegriði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til mikils að vinna varðandi "hreina og endurnýjanlega orku."

Það framtak að vinna að eflingu dælingu óæskilegs útblásturs frá gufuaflsvirkjununum á Reykjanesskaga niður í jörðina hefur vakið athygli erlendis. 

Enn er þó mikið óunnið á meðan "óhagstæð vindátt" getur borið brennisteinsvetnismengun til þéttbýlis höfuðborgarsvæðisins, því að þessi sama vindátt er algengasta vindáttin. 

Þótt tölurnar um niðurdælinguna séu stórar, eru þær enn lítill hluti af öllum útblæstrinum. 

En þó stefnir þessi viðleitni í rétta átt, enda til mikils að vinna til að hægt sé að ná takmarkinu alveg, að orkan geti í raun verið "endurnýjanleg og hrein."


mbl.is Óhagstæð vindátt bar skýið frá Nesjavöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein skrautfjöður vorkvölds í Reykjavík.

Þegar ferð hringinn um landið lauk í kvöld eftir fjögurra daga span, blasti ofangreint við. DSC00191


Bloggfærslur 6. júlí 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband