Spurningin um endurvakinn frumleika.

Í þessari kreppu eins og kreppunni miklu á fjórða áratug síðustu aldar má búast við að margar góðar og frumlegar bílategundir líði undir lok. 

Það var enginn smálisti af bílategundum sem hurfu milli 30 og 40, Auburn, Franklin, Noble, Cord, Duesenberg o. s. frv., -  margir þeirra afburðabílar sem eftirsjá var að.

Nú er spurningin hvort bílaframleiðandi, sem vakti athygli um miðja síðustu öld fyrir afar frumlegan bíl, fari sömu leið eða nái að krafla sig upp úr djúpu feni. Þessi fyrsta bílasmíð sænska flugvélaframleiðandans Saab, sem efsta myndin hér er af, var stórkostlegt hönnunarafrek sem fæddi af sér fyrsta fjöldaframleidda bíl verksmiðjanna. ursaab_963848.jpg

Síðustu árin hafa gömul og gróin merki verið að hverfa, svo sem Oldsmobile, Pontiac og Plymouth og aðrar bíltegundir, sem áður buðu upp á frumlega og framsækna hönnun, hafa orðið skugginn af sjálfum sér.

Mest hefur það gerst vegna samvinnu, sem hefur leitt af sér að tveir eða fleiri bílaframleiðendur hafa haft samvinnu um sameiginlega undirvagna eða heilu "boddýin" svo og sameiginlegar vélar og 220px-saab93f_gt750.jpgdrifbúnað.

Saab 92 var hreinræktaður gæðingur í upphafi, og má segja að hann hafi verið fyrsti fjöldaframleiddi smábíllinn sem var almennilega straumlínulagaður því að þótt Volkswagen-bjallan hafi sýnst vera þannig með sínum mjúku og bogadregnu línur, var loftmótstöðustuðull  tiltölulega hár, cx-48.  

Stuðull "Ursaab", sem fyrst var sýndur á bílasýningu, var aðeins CX 30, sem var minnsta loftmótstaða á nokkrum bíl í heiminum næstu hálfa öld!  79saab96_963851.jpg

Vélin var að vísu kópía af þýskuDKW tvígengisvélinni en bíllinn allur var einstakur, sterkur og furðu þægilegur og hentaði auk þess vel fyrir slæma vegi.

Eini gallinn á grófum vegum var púströrið, sem var lægsti punktur, því að gólf bílsins var algerlega slétt, sem var kostur út af fyrir sig.

Aksturseiginleikarnir og getan í rallkeppni voru einstök af svona gamalli hönnun að vera. Þegar ég og Jón bróðir kepptum í heimsmeistarakeppninni 1981 komust nokkrir bílar af þessari gerð á blað, - hétu þá reyndar Saab 96.

Svíinn Eric Carlsson var fyrsta alþjóðlega rallakstursstjarnan upp úr 1960 og gerði Saab 93 frægan. Var með ólíkindum hvað hann gat náð miklu út úr aðeins um 800cc þriggja strokka tvígengis-smávélinni.  

Síðar á sjöunda áratugnum var hann kominn með vatnskælda V-4 fjórgengisvél frá Ford í Þýskalandi og búið að lengja á honum nefið.

Skutbíllinn hét Saab 95 þrátt fyrir það að þetta væri bíll, sem var aðeins um fjórir metrar á lengd, tók hann sjö fullorðna í sæti á þann frumlega hátt, að öftustu tvö sætin sneru öfugt.

800px-1969-saab99.jpgSjá má afturenda á brúnum bíl af þessari gerð á bak við mynd af Saab 99 neðar á síðunni. 

1971, þegar fjölskyldan okkar var orðin sjö manns, neyddist ég til að selja litla Fiat 850 bílinn góða og fá mér stærri.

Þetta hefði verið hentugasti bíllinn en ég féll gersamlega í reynsluakstri fyrir Fiat 128 skutbíl, sem var besti smábíll heims þá með aksturs- og stýriseiginleika og flest annað í sérflokki.

Þá kom í ljós að Saabinn gamli var orðinn úreltur á of mörgum sviðum. 

En í staðinn var kominn Saab 99, sem var mjög vel heppnuð hönnun, frábærlega rúmgóður þótt hann væri aðeins 4,35 metrar að lengd og hjólhafið aðeins 2,35 eða svipað og á Toyota Aygo. 

Seinna var hann lengdur og fékk heiti Saab 900 og var einn af allra fyrstu, ef ekki fyrsti fjöldaframleiddi bíll heims með forþjöppu, sem færði Stig Blomkvist, Per Eklund og fleiri sænskum röllurum marga meistaratitla. 

Hnignun Saab hófst þegar ákveðið var að undirvagn arftaka 900 bílsins yrði með sama undirvagn og Lancia Thema og Fiat Croma. Þá var þetta ekki lengur "ekta" Saab.

Þessi þróun hélt áfram þangað til Saab er orðinn að bíl sem gæti allt eins verið afrbrigðu af Opel eða Chevrolet.

Þótt segja megi svipað um Volva hvað snertir óhjákvæmilegan skyldleika við hina erlendu frændur sína, hefur Volvo þó tekist að verða frumlegri en Saab og snúa því gamla dæmi við að Saab væri framúrstefnubíll en Volvo hversdagslegur, litlaus og ófrumlegur bíll.

Þótt nú sé því fagnað að Saab hafi verið tekinn af gjörgæsludeild verður framtíð þessa fræga merkis erfið. 79saab96_963850.jpg

Það þarf að endurvekja hinn fræga frumleika og nýsköpun sem var aðalsmerki hinna frábæru vagna frá Trollhattan og það er ekki auðvelt á þessari öld ofurveldis tölvuvæddra stórfyrirtækja með herskara færustu sérfræðinga á sínum snærum.  


mbl.is Kaupin á Saab frágengin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Saga Saab er stórmerkileg og vonandi gengur þeim vel í framtíðinni með hinum Hollensku eigendum, það gæti raunar orðið góð blanda, því Spyker hafa verið með ágætis hönnun.

En Pontiac er enn við lýði, þó að vörumerkið hafi í aðra tíð ef til vill staðið betur.  Sjálfur ek ég nokkurra ára gömlum Pontiac, en eins og sjá má á www.pontiac.com er enn hægt að kaupa sér Pontiac þó að ekkert sé að finna í líkingu við Trans Am eða GTO.

G. Tómas Gunnarsson, 24.2.2010 kl. 00:49

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Pontiac er jafn dauður og Edsel var 1960 eða De Soto 1961. Búið er að ákveða að 2010 verði síðasta árið og aðeins verið að selja birgðir, því miður.

Ómar Ragnarsson, 24.2.2010 kl. 01:31

3 identicon

SAAB stendur fyrir Svensk Aero Aksje Bolag, og var stofnað á þriðja áratugnum af þjóðverja að nafni Carl Bücker. Hann rak fyrirtækið í nokkur ár, fór síðan til Þýskalands þegar Hitler komst til valda og stofnaði flugvélaverksmiðju. Með honum fór sænskur hönnuður að nafni Anders Andersson. Úr þeirra smiðju komu m.a. meistarastykkin "Bü-131 Jungmann", tveggja sæta þjálfunarflugvél. Einnig "Bü-133 Jungmeister" eins sætis listflugvél. Afköst og flugeiginleikar þessara véla þóttu einstakir á þeim tíma, og hefur Jungmeister stundum verið nefnd "Stradivari of Aviation".

Enn í dag eru þær í hávegum hafðar meðal flugmanna, og verðið eftir því.

Bücker flugvélarnar eru því nokkurs konar afleggjari af SAAB.

SBB (IP-tala skráð) 24.2.2010 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband