Umræða á lágu plani.

Mitt Romney færir stjórnmálaumræðuna niður á lágt plan með því að láta að því liggja að Bandaríkjaforseti hafi í raun misnotað aðstöðu sína með því að láta konum og Bandaríkjamönnum af afrískum og latnesum uppruna í té ókeypis getnaðarvarnir og heilbrigðisþjónustu.

"Ókeypis" þýðir að ríkið borgar og þá liggur beint við að álykta í samræmi við hugsunarhátt Romney, að Obama hafi notað ríkisfé til þess að múta stórum þjóðfélagshópum.

Þessum þjóðfélagshópum fjölgar meira en öðrum í Bandaríkjunum og því er Obama í raun að hamla gegn þessari fjölgun með því að láta þeim í té getnaðarvarnir og ætti Romney að vera ánægður með það, þótt hann sé óánægður með það að hinir fátækari fái aðstoð í heilbrigðiskerfinu og stuðli þar með að því að lifa af í stað þess að drepast.

Romney hefur áður dottið í þann pytt að fara niður á þetta lága og ógeðfellda plan og að því leyti á ég erfitt með að skilja það hve langt þessi maður hefur náð.  


mbl.is Romney: Obama jós gjöfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gefum Sjálfstæðisflokknum smokka.

Þorsteinn Briem, 17.11.2012 kl. 03:14

2 identicon

Stórgóður útgangs púntur hjá þér Ómar....afhverju eru ekki fleiri eins og þú sem vekja athygli á (sem eru kölluð litlu auðveldu málin).....máli eins og þessu frá USA...er þetta ekki bara inn á okkar orði sem óafgreitt mál????  eins og annað sem er ekki hyrt um að skrifa um??

Þorgeir (IP-tala skráð) 17.11.2012 kl. 05:06

3 identicon

Trúarhópar vilja fá eins mikið af börnum og mögulegt er til að fá stóran sauðahóp

DoctorE (IP-tala skráð) 17.11.2012 kl. 10:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband