Suður-Afríka: Uppspretta frelsis- og mannréttindabaráttu.

Andlát Nelsons Mandela minnir okkur á hve mikilvægur vettvangur Suður-Afríka hefur verið í meira en öld í baráttu gegn misrétti og kúgun.

Hinn 6. nóvember síðastliðinn voru rétt 100 ár síðan Mohandas Gandhi neitaði að borga sekt fyrir að hafa farið inn á svæði, sem hann samkvæmt þágildandi lögum mátti ekki vera á. Þetta markaði helsta atriðið í upphafi baráttunnar gegn ofríki hvítra Evrópumanna í landinu sem stóð út næstum alla öldina.

Gandhi, sem var í indverskum minnihluta í Suður-Afríku, fór nokkrum árum síðar til Indlands þar sem hann fínpússaði hina nýju andófsaðferð sína gegn misrétti og kúgun Breta þar, en hún fólst í því að andófið væri friðsamlegt án ofbeldis.

Gandhi sagði um baráttu í hans anda að henni mætti skipta í fjögur stig: 1. Fyrst láta þeir eins og þú skiptir engu máli. 2. Næsta stig er að bæta við háði og spotti til að gera sem minnst úr þér. 3. Síðan berjast þeir við þig. 4. Svo sigrar þú.

Gandhi vann sinn sigur með frelsi Indlands 1948 og Mandela með afléttingu aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afrík 1993.

Fleiri, eins og Biko, sem var drepinn, börðust vasklega í frelsisbaráttunni, en nöfnin Gandhi, Mandela og Martin Luther King koma helst í hugann þegar horft er til baka yfir 20. öldina og helstu frelsishetjur hennar.  

 


mbl.is Frelsishetja fallin frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Inngangur að grein um andlát Nelsons Mandela í NZZ, Zürich.

Þetta er vel orðað og þar sem fjöldinn allur af Íslendingum geta lesið þýsku, fylgir engin þýðing.

"Es gibt charismatische Staatsmänner und mutige Politiker, politische Anführer, die bescheiden bleiben, wenn sie eine historische Rolle ausfüllen, und solche, die vom Nimbus des Revolutionärs zehren. Aber nur Nelson Mandela, der erste schwarze Präsident Südafrikas, der am Donnerstag im hohen Alter von 95 Jahren gestorben ist, war dies zusammen."

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 5.12.2013 kl. 22:45

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hér nú margur hálfvitinn,
hatar innflytjendur,
svartur margur sauðurinn,
svartir menn hans fjendur.

Þorsteinn Briem, 5.12.2013 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband