Arfur frá Afríku.

Hópur mannasálfræðinga og dýrasálfræðinga rannsakaði hegðun kynjanna varðandi makaval og komst hér um árið og komst að svo merkilegri niðurstöðu, að tímaritið Time gerði hana að "forsíðusögu" (Cover Story) blaðsins. 

Þeir töldu að í sögu mannsins væri svo skammur tími síðan aðstæður breyttust frá því í skógum og á sléttum Afríku, að erfðaeiginleikar formæðra og forfeðra okkar réði enn miklu um hegðun manna.

Ástæðan fyrir því að konur löðuðust oft að eldri mönnum og væru sérstaklega veikar fyrir mönnum í einkennisbúningum, svo sem hermönnum, væri sú að frumkonan (apakonan) leitaði að sterkum manni, sem gæti varið hana og börnin og "skaffað" til heimilisins og hefði afl og vald. 

Þá skipti aldurinn ekki máli. 

Byssa og einkennisbúningur hermanna væri tákn um afl og vald. Og frægir, valdamiklir og ríkir menn hefðu mikið aðdráttarafl. 

Karlmaðurinn sæktist hins vegar eftir konu sem væri ung og frísk, gæti alið af sér heilbrigð börn og annast þau vel . Það væri sennilega grunnskýringin á því fyrirbrigði meðal karlmanna, sem kallað væri "grái fiðringurinn".  

Þessi Time-grein birtist rétt eftir að ítalskt herskip hafði stoppað stutt í Reykjavíkurhöfn og upphófst eltingarleikur yngismeyja við ítölsku hermennina, sem stóðu vart út úr hnefa og hlaut eftirá heitið "Hljómskálagarðsfarganið" ef ég man rétt. 

Ég gerði að því grín á skemmtunum að meirihlutinn af sjö börnum okkar hefðu fæðst í september og októberbyrjun á þeim árum, þegar ég var í gervi og búningi jólasveins níu mánuðum fyrr.

Það sannaði að konur væru veikar fyrir einkenninsbúningum !  


mbl.is Af hverju eltast karlar við yngri konur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gráhærður karl frá Kentucky,
konurnar margar hann sökk í,
upp á dúddinn,
Alamuddin,
ofurgirinn svo hrökk í.

Þorsteinn Briem, 24.2.2015 kl. 23:08

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gráhærður karl frá Kentucky,
konurnar margar hann sökk í,
upp á dúddinn,
Alamuddin,
ofurgírinn svo hrökk í.

Þorsteinn Briem, 24.2.2015 kl. 23:10

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

.

.

Eitt sinn var Steini ungur og hreinn ...

og aldrei fór hann í herinn,

í lofnarmálum var svifaseinn

og sýnast vildi´ekki jólasveinn ...

"Hættu! þú kemst ekki hér inn!"

hrópaði því hver einasta snót,

"eigðu svo sjálfur þitt ónýta dót!"

.

Jón Valur Jensson, 25.2.2015 kl. 04:24

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Í Kristnum stjórnmálasamtökum eru 15 manns."

Jón Valur Jensson
, 9.8.2014

Þorsteinn Briem, 25.2.2015 kl. 04:36

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fýsnin drap þar fimmtán þá,
flokkinn kristilega,
allir teknir aftan frá,
og alla líka vega.

Þorsteinn Briem, 25.2.2015 kl. 04:38

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jón Valur er ferlegt frík,
að fýsnum djöfuls staðinn,
Satans er hann senditík,
syndum ljótum hlaðinn.

Þorsteinn Briem, 25.2.2015 kl. 04:52

7 Smámynd: Jón Valur Jensson


      • Tókst mér að kveikja í karli?

      • Klúrum orðum býr yfir.

      • Snjallari Snorra jarli?

      • Snautlegt níð ei lifir.

        • Vísuna seinni að vísu

        • vondum hann tók úr sarpi.

        • Alveg ég dregið gæti´ ýsu

        • yfir því gamla karpi.

          • Sparar ei orðin illu

          • auminginn, sæmd því rúinn.

          • Æran í ESB-villu

          • út um gluggann er flúin.

            • Satt er það hér, sem eg segi,

            • sjáið hann fnæsa og bölva!

            • Efaust af æstu því greyi

            • illa´ er hún farin hans tölva.

              • Ljót er sú ærulauss iðja

              ágæt samtök að lasta.

              reyndi þar úr sér að ryðja,

               

              rusli í saklausa´að kasta.

                • Dóminn ber sér með sjálfum,

                • sjúklegan ei ef má telja.

                • Þarf samt að anza hér álfum?

                • Orð skal ég honum velja:

                  • Þjóð sinni unnir ei þessi

                  • þess, að búi í friði.

                  • Ættarnafns undir dressi

                  • ætli menn honum tryði?

                    • Brussel í bræði hann þjónar,

                    • bregzt jafnan alþýðutrausti.

                    • Sannleika missti á sjónar

                    • sumri á, vetri sem hausti.

                     

                    Jón Valur Jensson, 25.2.2015 kl. 11:21

                    Bæta við athugasemd

                    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

                    Innskráning

                    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

                    Hafðu samband