Veik staða Pírata og Bjartrar Vg í borgarstjórn.

Í borgarstjórnarkosningunum 2014 fengu Samfylking og Björt framtíð, hér eftir skammstafað Sf og Bf, samtals sjö borgarfulltrúa og því skorti aðeins einn í viðbót til að mynda meirihluta.

Hefði slíkur meirihluti verið myndaður hefði slíkur fulltrúi, annað hvort Vg eða Pírata, haft oddaaðstöðu.

En Sf og Bf fóru útsmogna leið til þess að slá tvær flugur í einu höggi: Stækka meirihlutann upp í 9 gegn 6 og lama í leiðinni möguleika Vg og Pírata til að setja skilyrði fyrir þátttöku sinni í meirihlutasamstarfinu.

Píratar eru í afar veikri stöðu varðandi það að setja skilyrði fyrir þátttöku sinni í stjórn borgarinnar, því að Sf/Bf geta alltaf sagt þeim að þeir hafi ekkert úrslitavald, meirihlutinn Sf/Bf/Vg komist vel af án þátttöku Pírata.

Vg er líka á álíka veikri stöðu varðandi sín mál, - hægt að segja við þá: Meirihlutinn Sf/Bf/Píratar kemst vel af án þátttöku Vg.  

Hvorki Vg né Píratar eru í oddaaðstöðu, - á því byggðist hin snjalla flétta Sf/Bf að stækka meirihlutann þannig hann stæði ekki og félli með oddaaðstöðu eins fulltrúa.

Píratar og Björt framtíð nýttu úrslit byggðakosninganna 2014 til þess að komast í meirihlutasamstarf sem víðast til að öðlast stjórnunar- og stjórnmálareynslu.

Meira en 90% viðfangsefna stjórna sveitarfélaga eru ópólitísk og það auðveldar samstarf.


mbl.is Halda upplýsingum frá borgarbúum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hvaða skilyrði hefðu Píratar og Vinstri grænir átt að setja fyrir meirihlutasamstarfi með Samfylkingunni og Bjartri framtíð í Reykjavík eftir síðustu borgarstjórnarkosningar, Ómar Ragnarsson?!

Í hvaða málum í Reykjavík ættu Píratar og Vinstri grænir að vera á móti Samfylkingunni og Vinstri grænum í Reykjavík?

Það er nú ekki beinlínis líklegt að Píratar eða Vinstri grænir hefðu frekar viljað vera í meirihluta með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum í Reykjavík eftir síðustu borgarstjórnarkosningar eða vilji mynda með þeim ríkisstjórn eftir næstu alþingiskosningar.

Eins og staðan er núna er líklegast að Píratar vinni stórsigur í næstu sveitarstjórnarkosningum og alþingiskosningum og Björt framtíð hverfi þá af sjónarsviðinu.

Og Píratar eru jafnaðarmannafokkur eins og vel sést á stefnu flokksins.

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 21:41

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Í hvaða málum í Reykjavík ættu Píratar og Vinstri grænir að vera á móti Samfylkingunni og Bjartri framtíð í Reykjavík?, átti þetta nú að vera.

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 21:44

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Fylgi flokka í Reykjavík - Skoðanakönnun Gallup 8.10.2015:

Píratar 28%,

Samfylking 25%,

Björt framtíð 8%,

Vinstri grænir 11%.

Samtals 72% og þessir flokkar mynda nú meirihluta borgarstjórnar.

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur 27% og þar af Framsóknarflokkur 4%.

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:01

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

8.10.2015:

"Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og flug­vall­ar­vin­ir fengju 4,4% at­kvæða sam­kvæmt könn­un­inni sem unn­in er af Gallup fyr­ir Viðskipta­blaðið en fengu 10,7% í kosn­ing­un­um í fyrra."

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:02

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Samfylkingin, Björt framtíð og Vinstri grænir fengu meirihluta borgarfulltrúa í síðustu borgarstjórnarkosningum.

Samfylkingin bætti við sig tveimur mönnum og minna en 1% munaði á sjötta manni Samfylkingarinnar og öðrum manni Framsóknar og flugvallarvina.

Og næstu borgarstjórnarkosningar verða árið 2018.

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:03

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

20.3.2001:

kosningunni, sem var rafræn, var hægt að kjósa á milli þriggja kosta.

Í fyrsta lagi að flugvöllur yrði áfram í Vatnsmýri eftir 2016.

Í öðru lagi að flugvöllur færi úr Vatnsmýri eftir árið 2016 og í þriðja lagi var hægt að skila auðu."

Meirihlutinn vill flugvöllinn burt í kosningum um framtíð Vatnsmýrarsvæðisins og staðsetningu flugvallarins

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:06

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Kosning um Reykjavíkurflugvöll fór fram og spurt var hvort flugvöllurinn ætti að fara af Vatnsmýrarsvæðinu eftir árið 2016 og eftir því hefur verið unnið og samningar gerðir á milli Reykjavíkurborgar og ríkisins.

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:07

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024 var samþykkt í borgarstjórn Reykjavíkur 18. apríl 2002, afgreitt af Skipulagsstofnun til staðfestingar umhverfisráðherra 19. desember 2002 og staðfest af umhverfisráðherra 20. desember 2002.

Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:08

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Valsmenn eiga landið á Hlíðarendasvæðinu.

"Hlíðarendi er erfðafestuland sem Knattspyrnufélagið Valur hefur átt frá árinu 1939."

Sagan - Hlíðarendi byggist

Og meirihluti Vatnsmýrarsvæðisins er í eigu Reykjavíkurborgar og einkaaðila, sem er stjórnarskrárvarinn eignarréttur.

Kosningar hafa farið fram um Reykjavíkurflugvöll sem eru enn í gildi, borgarstjórnir hafa framfylgt þeim kosningum og ríkið og Reykjavíkurborg hafa gert samninga á grundvelli þessara kosninga.

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:10

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

Dagur B. Eggertsson 4.9.2015:

"Við fengum kynningu á öryggisúttekt Isavia um lokun þriðju brautar Reykjavíkurflugvallar en í niðurstöðum segir að óhætt sé að loka henni þegar horft er til viðmiða Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO).

Fleira fróðlegt kom fram, meðal annars það að brautin hefur verið lokuð á löngum köflum í sumar því hún hefur verið notuð sem flugvélastæði fyrir einkaþotur.

Notkunarstuðull á vellinum án þriðju brautar reiknast 97% en alþjóðlegt viðmið er að hann eigi ekki að fara niður fyrir 95%.

Þegar metnar eru raunverulegar aðstæður, byggt á nákvæmum vindmælingum, ástandi flugbrautar, skyggni og skýjahæð og raunverulegri notkun í innanlandsflugi og sjúkraflugi er nýting vallarins miðað við að þriðju brautinni sé lokað enn betri, eða vel yfir 98%.

Lækkun nýtingar vegna lokunar þriðju brautarinnar reiknast um 0,6%.

Öryggisúttektin sýnir þannig að með mildunarráðstöfunum er ásættanlegt að loka þriðju brautinni.

Mikilvægt er að það gangi eftir, í samræmi við samninga ríkis og borgar þar um á undanförnum árum, nú síðast samning Reykjavíkurborgar og ríkisins sem samþykktur var einróma í borgarráði þann 31. október 2013."

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:15

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

Samkomulagið sem hin svokallaða Rögnunefnd byggist á:

25.10.2013:

"Í framhaldi af undirritun meðfylgjandi samkomulags milli ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group munu ríki og Reykjavíkurborg vinna í samræmi við áður undirritaða samninga.

Undirbúningur eftirfarandi verkefna mun þegar hefjast:"

"... ii) Aðilar ljúki vinnu við endurskoðun á deiliskipulagi fyrir flugvallarsvæðið og tilkynnt verði um lokun NA/SV-brautarinnar samhliða auglýsingu þess, síðar á þessu ári [2013]. ..."

"iii) ... Óháð öðrum verkþáttum sem í samkomulaginu felast munu innanríkisráðuneytið og Isavia hafa forgöngu um að kennslu- og einkaflugi verði fundinn nýr staður í nágrenni borgarinnar í samræmi við áður gefin fyrirheit vegna endurbyggingar vallarins um síðustu aldamót og skal stefnt að því að framkvæmdir verði hafnar eins fljótt og verða má."

Samkomulag ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group um sameiginlega athugun á flugvallarkostum (svokölluð Rögnunefnd)

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:16

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

"SKULDBINDINGARGILDI SAMNINGA

Frá fornu fari hefur það verið viðurkennd meginregla í rétti flestra þjóða,samninga eða aðra löggerninga skuli halda eða efna.

Þessi regla, sem allt traust og tiltrú í viðskiptalífinu byggist á, var m.a. orðuð skýrlega í hinum forna Rómarrétti: "Pacta sunt servanda".

Ekki er fjarri lagi að fullyrða, að kenningin um skuldbindingargildi samninga sé hinn raunverulegi kjarni samningaréttarins, sem allar aðrar reglur hans séu byggðar á, beint eða óbeint ..."

Páll Sigurðsson lagaprófessor, Samningaréttur - Yfirlit um meginreglur íslensks samningaréttar, útg. 2004, bls. 23-24.

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:18

13 Smámynd: Þorsteinn Briem

Meirihluti Vatnsmýrarsvæðisins, 58%, er í eigu Reykjavíkurborgar og einkaaðila.

Í ársbyrjun 2006 var markaðsvirði byggingaréttar á 123 hekturum á Vatnsmýrarsvæðinu 74,5 milljarðar króna án gatnagerðargjalda, rúmlega 600 milljónir króna á hektara, og um 37 þúsund krónum hærra á fermetra en í útjaðri borgarinnar.

Og frá þeim tíma hefur verið 70% verðbólga hér á Íslandi.

Úttekt á framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar, bls. 64-65

"78. gr. ... Tekjustofnar sveitarfélaga skulu ákveðnir með lögum, svo og réttur þeirra til að ákveða hvort og hvernig þeir eru nýttir."

Stjórnarskrá Íslands

Það kemur undirrituðum hins vegar ekki á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn virði hvorki samninga sem ríkið hefur gert né stjórnarskrána.

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:19

14 Smámynd: Þorsteinn Briem

Reykjavíkurborg og einkaaðilar eiga meirihlutann af Vatnsmýrarsvæðinu - Stjórnarskrárvarinn eignarréttur

"Eignarréttur er réttur einstaklings, fyrirtækis eða annars lögaðila til að nota hlut, selja eða ráðstafa á annan hátt og meina öðrum að nota hann."

Og harla einkennilegt að vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um hvað eigi að vera á landi Reykjavíkurborgar.

Undirskriftir á öllu landinu árið 2013 um Reykjavíkurflugvöll voru um 29% af þeim sem voru á kjörskrá í síðustu alþingiskosningum.

20.9.2013:

"Rétt rúmlega 20 þúsund Reykvíkingar skrifuðu undir á síðuna lending.is.

Að sögn Njáls Trausta Friðbertssonar, formanns undirskriftarsöfnunarinnar höfðu 20.626 Reykvíkingar skrifað undir en um tvö prósent þeirra eru yngri en 18 ára og hafa því ekki náð löglegum kosningaaldri.

Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands voru tæplega 88 þúsund manns á kjörskrá í Reykjavík árið 2009, engar nýrri tölur er að finna á síðunni.

En ef miðað er við þær tölur má ætla að tæplega 23% kosningabærra Reykvíkinga hafi skrifað undir til þess að mótmæla flutningi flugvallarins."

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:27

15 Smámynd: Þorsteinn Briem

Meirihluti Vatnsmýrarsvæðisins, 58%, er í eigu Reykjavíkurborgar og einkaaðila.

Eignarrétturinn er friðhelgur samkvæmt stjórnarskránni og Reykjavíkurborg getur því krafist þess að ríkið afhendi henni það land sem borgin á núna á Vatnsmýrarsvæðinu.

Og ein flugbraut hefur ekki verið talin nægjanleg á Vatnsmýrarsvæðinu.

Reykjavíkurborg ræður því einnig hvort fyrirferðarmikil aðflugsljós á stálbitum fyrir austur-vestur braut Reykjavíkurflugvallar yrðu reist á útivistarsvæði Reykvíkinga vestan Suðurgötu.

Einnig hvort skógur yrði felldur vegna flugbrautarinnar við austurenda hennar í Öskjuhlíð, sem einnig er útivistarsvæði Reykvíkinga.

Þar að auki er svæðið við suðurenda norður-suður brautar flugvallarins einnig útivistarsvæði Reykvíkinga.

Reykjavíkurborg og einkaaðilar eiga meirihlutann af Vatnsmýrarsvæðinu, merkt hér með gulum strikum:

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:29

16 Smámynd: Þorsteinn Briem

Og ekkert í stefnuskrá Pírata fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar segir að Píratar vilji nýja kosningu Reykvíkinga um flugvallarmálið.

Einungis að "nauðsynlegt [sé] að ákveða framtíðarstaðsetningu flugvallarins í eins víðtækri sátt höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar og kostur er á."

Samþykkt stefnumál Pírata í Reykjavík í borgarmálum vorið 2014

Þorsteinn Briem, 16.2.2016 kl. 22:33

17 identicon

scroll....scroll

Það hefur svosem blasað við allan tímann hvers vegna björt samfylking tók þau bæði með; til að hvorugt gæti verið með derring og ætlað að hafa einhver ágrif af viti.

Klækjastjórnmál?

ls (IP-tala skráð) 17.2.2016 kl. 11:04

18 identicon

Hvað er hann sloppinn út af  h.....

BMX (IP-tala skráð) 18.2.2016 kl. 06:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband