Benz-BMW-Audi vígið stendur enn.

Áratugum saman hefur Þjóðverjum tekist að verja vígi Benz-BMW-Audi þótt gerð hafi verið áhlaup á það úr mörgum áttum. Nánar tiltekið er um að ræða Benz S, BMW 7 og Audi 8.

Að vísu eru stærðar- og verðflokkarnir margir hjá þessum verksmiðjum en minni bílar og ódýrari njóta þess að baða sig í ljóma flaggskipanna.

Fram til 1990 stóðst þetta vígi áhlaupin nokkuð afgerandi en þegar Lexus 400 kom á markaðinn löngu eftir að Cadillac hafði verið hrundið af toppnum 1990, sentust hönnuðir dýrasta Benzins að teikniborðunum, felmtri slegnir.

Þjóðarstolt stórþjóða á oft erfitt uppdráttar þegar um bíla þjóðhöfðingja og heldri manna er að ræða, og voru Rolls Royce og Citroen DS dæmi um það, eins og sást í mynd í afmælisþætti Sjónvarpsins af því þegar Pompidou Frakklandsforsetinn kom til Íslands.

Renault, Citroen og Peugeot hefur kitlað í það að sækja fram í þeim flokki bíla þar sem gróðinn er mestu af hverju eintaki, en hefur ekki tekist það fram að þessu, þrátt fyrir hverja tilraunina af annarri síðasta fjórðung 20. aldarinnar.

Benz-BMW-Audi hafa orðið fyrir ýmsum áföllum síðustu ár varðandi bilanatíðni, endingu og fleira, en ljóminn yfir þessum þýsku "eðalbílum" er svo rótgróinn og og mikill, að enn eru ekki í augsýn bílar í "eðalflokknum" sem geti gert þeim skráveifu.  


mbl.is Fallegasti bíll heims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

 Ég tékkaði á þessu: Benz, BMW & Audi seldu allir ~1.8 milljón bíla hver AD 2015.

Á sama tíma seldi Lexus 652K eintök.

Hér þarf samt að hafa í huga að Benz hefur trukkadeild, og þeir framleiða alvöru jeppa og smábíla, en ekki bara lúxusbíla.

BMW & Audi selja allt frá smábílum uppí slyddujeppa - minna úrval, þrengri kaupendahópur, sem þýður að þeir eru að höfða betur til sísn þrengri kaupendahóps.

Lexus er *eingöngu* í lúxusbílaflokknum.

Svo; skoðum BMW 7 series vs Bens S class, vs Lexus:

AD 2014 seldust 48,480 BMW 7, vs 101,428 S Class.  Aftur: 652K Lexus seldust.

Bara lúxus-týpurnar, manstu?  Ekkert C class rugl, eða einhverjir MW 318.

Lýtur öðruvísi út, þannig séð.

Ásgrímur Hartmannsson, 20.2.2016 kl. 19:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband