Egg, hafragrautur,1/2 banani, 1/2 epli, rúsínur, skinkusneið, volgt vatn.

Mataræði er eins misjafnt og fólk er margt. Morgunverðurinn er mikilvægastur og hér er mynd af einum slíkum. Hann byggist á þremur sjónarmiðum:  Hollustu, orku og smá sérvisku til að lífga upp dagsbyrjunina.Morgunmatur

Í skálinni er barna-hafragrautur hrærður með soðnu vatni og  með léttmjólkurslettu, en að baki pakki af barna-haframjölinu, sem hluti tekinn hluti af á diskinn.

Einnig sést þarna pakki af hafragraut, sem ég tek stundum smávegis úr til að blanda á diskinn. Hvort tveggja vítamínbætt, - "klikkar ekki" eins og Guðjón Valur segir. Léttir á Djúpavogi. Morgunmat

Fyrir framan er eitt egg, ristuð brauðsneið með skinku, helst kjúklingaskinku, hálfur banani, hálft epli, - síðan það sem gerir byrjun dagsins sálarlega bjarta; - hálft glas af Kók Zero í stað kaffisopa og nokkrar súkkulaðihúðaðar rúsínur sem "nammi" og til að mýkja hægðir við að vinna á móti harðlífi af völdum basatöflu, sem tekin er með volgu vatnsglasi eftir hverja máltíð svo spornað sé við magasýru upp í sárt vélinda vegna þindarslits og bakflæðis.

Í nýlegri magaspeglun sást á myndum, að neðsti hluti vélindans var "undir stjórn."  

Ég hef alltaf með mér smá fæði og vatn á ferðum mínum, hvar sem ég er, þ.e. barnamatarpakkann og vatn í lítilli 250 ml flösku.lettir_jokulsarlon_1290793

Þegar hringurinn var hjólaður í ágúst í fyrra voru meðferðis tveir pakkar af barna-hafragraut, en einn og hálfur pakki nægði, auk vatnspelans, til að gefa næga orku fyrir fullorðinn mann í rúman sólarhring.

Á myndinni sést hjólið "Léttir" þegar morgunverður er snæddur á Djúpavogi og á neðstu myndinni er síðar um morguninn stansað við Jökulsárlón.    


mbl.is Þetta borða heilbrigðustu þjóðir í heimi í morgunverð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Þetta er alveg ljómandi góður morgunmatur Ómar. laughing

Ragna Birgisdóttir, 6.2.2017 kl. 01:54

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ómar has a healthy snack,
Coke Zero and yakety yak,
for his soul,
under control,
he also has a dash of crack.

Þorsteinn Briem, 6.2.2017 kl. 04:10

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Coca-Cola Zero, or Coke Zero, is a product of The Coca-Cola Company.

It is a low-calorie (0.3 kcal per 100ml)[1] variation of Coca-Cola specifically marketed to men, who were shown to associate diet drinks with women.[2]"

"Despite their polar opposite advertising campaigns, the contents and nutritional information of the two sugar-free colas is nearly identical."

Þorsteinn Briem, 6.2.2017 kl. 04:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband