Svo mikið lítilræði að hægt verður að auglýsa áfram "lyfjalaust eldi"?

Í gær mátti heyra í útvarpi langan og nákvæman fréttaflutning af því hve mikill stormur í vatnsglasi lyfjagjöf gegn laxalús í Arnarirði væri. 

Meðal annars var því lýst, að þetta væri þvílíkt lítilræði, að laxeldisstöðin myndi hiklaust halda áfram að auglýsa út í frá að eldið hjá henni væri algerlega án lyfjagjafar. 

Ef lyfjagjöfin er svona mikið smámál, má hins vegar spyrja, af hverju það sé akkur í því að auglýsa að engin lyfjagjöf fari fram. 


mbl.is Lúsugur lax fer á lyf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allt þetta kjaftæði um lyfjalausan landbúnað, lyfjalaust fiskeldi hjá þjóð sem notar meira af lyfjum en nokkur önnur þjóð í heiminum finnst mér satt að segja vera frekar hjákátlegt.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 24.5.2017 kl. 08:43

2 identicon

Landbúnaður á Íslandi er reyndar sá lyfjalausasti í veröldinni. Þannig notum vi til dæmis einn sextugasta af því lyfjamagni sem Spánverjar nota á hverja lífeiningu.

Þorvaldur Sigurdsson (IP-tala skráð) 24.5.2017 kl. 09:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband