Gat verið að við sjálf værum svartasti sauðurinn?

Svo er að skilja á frétt frá Umhverfisstofnun, að íslensk skipaflotinn hafi undanþágu til að brenna svartolíu að vild við landið. 

Í frétt Umhverfisstofnunar kemur fram að líklega sé þessi brennsla miklu meiri en ósönnuð ólögleg brennsla erlendra skemmtiferðaskipa.  meiri samanlagða loftmengun en frá skemmtiferðaskipunum stóru. 

Sem sagt: Það skortir gögn og það ríkja óreiða og eftirlitsleysi hér á landi, og eins og svo oft virðast sérhagsmunagæsla og skammsýni ráða för.

 


mbl.is Mega ekki brenna svartolíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hérna eru til gögn sem að sýna að fiskveiðifloti íslands hafi  losað

456 þúsund tonn árið 2015-2016:

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2200145/

Jón Þórhallsson, 7.9.2017 kl. 11:08

2 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þarna átti reyndar að standa 456 tonn:

Jón Þórhallsson, 7.9.2017 kl. 11:10

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Hugsanlega eru erlend skemmtiferðaskip ekki inni í þessu.

Jón Þórhallsson, 7.9.2017 kl. 12:40

4 identicon

Ég veit ekki hvar í lögum og reglum má finna að:
Smk. greininni í mbl: "Skemmti­ferðaskip hafa ekki heim­ild sam­kvæmt lög­um til þess að brenna svartol­íu í kring­um landið eins og skilja hef­ur mátt í fjöl­miðlaviðtöl­um."

Þetta er það sem kemst næst því er:
"Brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti, þ.m.t. svartolíu sem er notuð eða er ætluð til nota í skipum eða bátum, sem notað er hér á landi og í mengunarlögsögu Íslands skal vera að hámarki 2,0% (m/m), að undanskildu eldsneyti til skipa sem nota viðurkenndar aðferðir til að draga úr losun í lokuðu kerfi. Frá og með 1. janúar 2020 má brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti sem notað er hér á landi og í mengunarlögsögu Íslands ekki vera meira 0,5% (m/m).

Brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti skipa sem fara um SOx-svæði, skal ekki fara yfir 0,1% (m/m).

Brennisteinsinnhald í skipaeldsneyti, sem notað er í farþegaskipum sem sigla áætlunarferðir til eða frá höfn á Evrópska efnahagssvæðinu, skal til og með 1. janúar 2020 ekki vera meira en 1,5% (m/m).

Ákvæði þessarar greinar gilda um öll skip án tillits til þess undir hvaða fána þau sigla, þar með talið skip sem hefja ferð sína utan Evrópska efnahagssvæðisins."

***Skilgreining SOx-svæða: Eystrasalt og Norðursjór, þar sem gilda takmarkanir á losun brennisteins skv. VI. viðauka MARPOL-samningsins.

Hvaða lög segja til um að ekki megi brenna svartolíu um borð í farþegaskipum við íslandsstrendur?

Einar Friðfinnsson (IP-tala skráð) 7.9.2017 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband