Mikilvægum áfanga náð. Hjarta landsins! Koma svo!

Með stækkun friðlandsin í Þjórsárverum er náð merkum og mikilvægum áfanga í náttúruvernd sem ber að fagna og óska Björt Ólafsdóttur umhverfisráðherra til hamingju með þennan áfanga.

Þetta hefur verið draumur hennar eins og svo margra, sem hafa barist fyrir Þjórsárver í meira en hálfa öld.  

En ekki má gleyma framtíðarmarkmiðinu sem er stór alvöru friðlýsing og þjóðgarður á miðhálendi Íslands. 

Í tilefni dagsins set ég lagið Hjarta landsins inn á facebook. Hjarta landsins! Koma svo! 

 

P. S.  Af einhverjum ástæðum birtist þessi færsla ekki gær, þegar hún var skrifuð, en betra er seint en aldrei. 


mbl.is Auglýsing um friðlýsingu undirrituð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

18.3.2014:

"Skoðanakönnun Capacent Gallup hefur sýnt fram á  víðtækan stuðning við stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands.

Um 56% aðspurðra voru því hlynnt, einungis 17,8% andvíg og 26,2% tóku ekki afstöðu.

Hugmyndin átti vísan stuðning meðal kjósenda allra stjórnmálaflokka
, meðal allra aldurshópa og um allt land."

Þorsteinn Briem, 10.10.2017 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband