Einn af veikleikum landsins, þar sem engar "skítaholur" er að finna?

Hið fullkomna mannlega þjóðfélag verður seint til.  Bandaríkin eru stórbrotnasta þjóðfélag veraldar að mörgu leyti, forysturíki á mörgum sviðum og deigla margra mikilvægustu strauma nútímans. En lokun bandaríkis alríkisins á nokkurra ára fresti vegna skuldsetningar ríkissjóðs er fyrirbæri, sem er óþekkt í flestum öðrum vestrænum lýðræðisríkjum og jafnvel í ríkjum Afríku, sem höfð hafa verið ummæli um sem "skítaholuríki." 

Lokun alríkisins leiðir umræðuna að því, á hve sterkum fótum heimsveldi stendur, sem byggir stærð sína, mátt og tilveru á það miklum þjóðarskuldum að orðið geti efnahagshrun í líkingu við það sem varð 2008 en jafnvel enn stærra hrun. 

Og Bandaríkin eru ekki eina ríkið, sem er háð því að undirstöður hins alþjóðlega fjármálakerfis og auðræðisins í heiminum bresti ekki. 

Í kröfunni um hinn ómissandi hagvöxt felst dulin ógn þeirrar þurrðar á auðlindum jarðar sem stefnir í að óbreyttu.


mbl.is Bandaríska alríkinu lokað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Þetta sýnir einnig hversu veik staða launafólks er í þessu ríki. Þegar starfsfólk lendir í því fyrirvararlaust að vera sent heim launalaust. Enginn formlegur uppsagnarfrestur. Þetta gæti aldrei gerst á Íslandi og eða á öðrum Norðurlöndum.

Kristbjörn Árnason, 20.1.2018 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband