Enn koma orð Stalíns upp í hugann. Aðferðirnar gamalkunnar.

"Að drepa einn mann er morð, - að drepa milljón er tala" eru athyglisverð orð, höfð eftir Jósef Stalín, einhverjum afkastamesta fjöldamorðingja sögunnar.

Þau hafa áður sést á þessari bloggsíðu og þau gátu átt við þegar Stalín losaði sig við þekktasta og hættulegasta andstæðing sinn Leon Trotskí með því að láta útsendara sinn höggva Trotskí til bana með exi þar sem hann var í útlegð í Mexíkó.

Þá, eins og nú, féllu alls þrír fyrir hendi útsendaranna.  

Þetta morð vakti heimsathygli, margfalt meiri athygli en þær þúsundir og milljónir manna, sem féllu jafnt og þétt í valinn árin áður fyrir hinum vænisjúka einvaldi í hreinsunum í hernum og flokknum og þar áður í aðgerðum, sem ollu hungursneyð og skópu risavaxnar fangabúðir Gúlagsins. 

Svo lymskulega gekk Stalín til verks, að bláeygir aðdáendur hans bæði í Rússlandi og á Vesturlöndum mærðu hreinsanir hans og dauðadóma á síðustu árunum fyrir stríð og fordæmdu "svikarana" sem drepnir voru í útsmognum sýndarréttarhöldum.

Laxness, sem var viðstaddur réttarhöldin yfir Búkharín, skrifaði að í aðra röndina væri forherðing Búkharíns næstum því aðdáunarverð. Það hvarflaði þá ekki að honum að Búkharín gæti verið saklaus og að þess vegna væri hreinskiptni hans aðdáunarverð. 

Síðar kom hið sanna óhrekjanlega í ljós og Nóbelskáld og aðrir kváðust hafa verið illa blekktir, Stalín var "guðinn sem brást."  

Orðin, sem höfð eru eftir Stalín, lýsa vaxandi firringu manns, sem bregður á það ráð að drepa alla þá, sem honum finnst ógna völdum sínum og verður æ firrtari eftir því sem fleiri eru myrtir. 

Vladimir Pútín var eitt sinn yfirmaður KGB og talsmenn hans tala hátt um hve fjarstætt það sé að nokkurn gruni Pútín um græsku þegar andstæðingar hans falla með næsta reglulegu millibili í valinn ár eftir ár og morðin eru framkvæmd á svo lymskulegan hátt og háþróaðan hátt að engin sönnunargögn finnast. 

Það var athyglisvert að sjá í sjónvarpi löng viðtöl við Pútín, sem kemur afar vel fyrir í viðkynningu og hefur oft meira til síns máls en menn vilja viðurkenna, þegar hann lýsir málstað sínum og lands.

Um hann gilda fræg orð úr Íslandssögunni, að "enginn frýr honum vits en meira er hann grunaður um græsku."  

 

P.S. Í hádegisfréttum kom fram að nú ætluðu bresk yfirvöld að skoða að nýju sérkennileg dauðsföll Rússa í Bretlandi á þessari öld, sem skipta tugum. 

Ef ætlun Pútíns eða manna hans, - (því að það er allt eins líklegt að hann hafi falið öðrum heildaryfirumsjón yfir þessum drápum, svo að ekki sé hægt að rekja hvert morð til upptakanna) - er að hræða andstæðinga heima, getur aðferðin verið sú að halda fjölda drápanna í minnsta mögulega lágmarki, en senda samt með hverju þeirra skýr skilaboð til andófsfólks: haltu þig á mottunni, þú gætir orðið næstur.

Stalín fór hins vegar aðra leið, lét í öryggisskyni drepa miklu fleiri en þá sem hægt var að saka með réttu um landráð. Réttlæting svona valdhafa, lagalega, siðferðilega eða hvort tveggja, er að nauðsynlegt sé að tryggja öryggi ríkisins (les: valdhafans) gegn landráðum, sem voru refsiverð eins og reyndar í flestum ríkjum. Stalín lét þessvegna handlangara sína búa til eða skrapa saman sönnunargögn um illa fyrirætlan "svikara" og láta síðan dæma þá til dauða eða til flutnings í þrælkunarvinnu. Á fjórða áratugnum á tímum Hitlers, Mussolinis og Stalíns, varð þetta svo algengt að alþjóðasamfélagið kippti sér ekki lengur upp við það. 

 


mbl.is Þrjú í hættu eftir taugagasið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

חתולים ברגע הנכון

Húsari. (IP-tala skráð) 9.3.2018 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband