Hve langt fleyta heimavellirnir Rússum?

Saga HM í fótbolta geymir dæmi um það að lið gestgjafanna hafi komist langt á því að spila ævinlega á heimavöllum, svo sem silfurlið Svía 1958 og heimsmeistarar Vestur-Þjóðverja 1974. 

Það var í alvöru rætt um það fyrir mótið núna að Rússar verðskulduðu ekk að vera með á mótinu eingöngu út á það að vera gestgjafaþjóðin, vegna þess hve lélegt rússneska landsiðið væri. 

En liðið fékk óskabyrjun í fyrsta leik og er nú komið í átta liða úrslit, þvert á hrakspárnar fyrir mótið. 

Á HM 1958 sigldi lið Svía í svipuðun meðvindi en tapaði úrslitaleiknum illa fyrir Brasilíumönnum. 

Hollendingar voru með besta landslið heims 1974 og virtist stefna í sigur í úrslitaleiknum við Vestur-Þjóðverja eftir frábært gengi fram að því, sem var mun betra en hjá þeim þýsku. 

En þetta snerist við í úrslitaleiknum þar sem Hölsenbein "fiskaði" vítaspyrnu sem ekki hefði verið dæmd ef nútíma myndbandstækni hefði verið notuð. 

Þrátt fyrir svona dæmi virðist vera ólíklegt að Rússar kræki sér í gullið núna.  


mbl.is Rússland hafði betur í vítaspyrnukeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki ólíklegt að Svisslendingar verði heimsmeistarar.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 1.7.2018 kl. 22:42

2 identicon

Var að koma heim frá Rússlandi.Rússar voru og eru frábærir heim að sækja voru mjög vinsamlegir þeir flautuðu á bílum sínum og eða heilsuðu íslendingum  á götu úti með virtum hvar sem við HM fararnir komum við í íslensku landsliðsbúningunum í borgunum Moskvu,Volgograd og Rostov sem dæmi. Síðasta daginn sem ég var í Moskvu áður en haldið var til Volgograd var ég ekki í búninginum til að losna áreitið sem kom til vegna virðingu rússa og fleiri þjóða fyrir íslendingum sem við fundum fyrir sem voru á HM í þessu stóra landi Rússlandi

Takk Rússland og Áfram Rússland á HM:)

Baldvin Nielsen  

B.N. (IP-tala skráð) 4.7.2018 kl. 08:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband