Hvílíkar móttökur með hlýju og ljósasýningu á Akureyri!

Hvílíkar móttökur var að fá hér á Akureyri í kvöld þegar rennt var inn í bæinn undan sígandi miðnætursól!  DSC02711DSC02711

Frá hlíðum Súlnanna í vestri og í boga yfir þveran botn Eyjafjarðar var almættið búð að setja upp regnboga og regnbogaský, en að baki glóðu ský í norðri yfir firðinum. 

Hitinn verður líklega 13 til 14 stig hér í nótt, svo að gisting á tjaldstæðinu er hreint tilhlökkunarefni. 

Ég var sem strákur í sveit á Norðurlandi og sakna æ síðan þess hve "nóttlaus voraldarveröld" nýtur sín miklu lengur og betur en fyrir sunnan. DSC02713DSC02714

Ætla að setja lifandi mynd af regnboganum, sem tekin var þegar það var farið að halla i  ellefu. Afsakið að efsta myndin fór tvisvar inn á síðuna. 


mbl.is 25 stig í Reykjavík „ef allt gengur eftir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband