Algengt og meinlaust vitleysisröfl í fylleríi?

Gagnsókn Klaustursmanna í málinu sem kennt er við barinn gegnt Dómkikjunni, er nú orðin að stórsókn á mörgum vígstöðvum fjölmiðla og samfélagsmiðla.

Sumir bloggarar skrifa jafnvel tvo pistla á dag um málið.

Sóknin byggist á tvennu:

1. Að gera sem minnst úr því sem sagt var á barnum og spurt:

"Hver er glæpurinn sem felst í því að drekka sig fullan og röfla einhverja vitleysu, sem engar afleiðingar hefur nema einhvern móral?"  

Sem sagt; það er engin ástæða til að gera neitt veður út af jafn algengu og sakleysislegu fýrirbæri og því sem uppvíst varð um á Klausturbarnum. .

2. Lögregla þarf að rannsaka hinn raunverulega "glæp", - samsæri vinstri manna og RÚV undir stjórn Helgu Völu Helgadóttur og síðar hins "hefndarþyrsta" Steingríms J. Sigfússonar. Yfirmenn RÚV eiga að segja af sér.   

 

 


mbl.is Segir viðbrögð Sigmundar barnaleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

3. ESB er á bak við þetta allt saman. Og einn var meira að segja búinn að komast að því um tíma í gær að Helga Vala hefði plottað klausturmálið þann fyrsta júní. 

Þorsteinn Siglaugsson, 26.1.2019 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband