Flott nafn á nýja hverfið í anda frá Afríku og Amager.

Engin árstíð hentar ein vel fyrir drauma og útmánuðirnir, þegar sól hækkar og "andar suðrið sæla vindum þýðum" í huga landsmanna. 

Margt er líkt með Norðmönnum og Íslendingum og lengst norður í Finnmörku stendur ein eftirminnilegasta stytta sem ég hef séð á ferðum mínum víða um lönd:  Þar sem bílferja leggst að landi við fjörð einni fyrir norðan Tromsö heilsar ferðafólkinu "stærsti jólasveinn í heimi", ca tíu metra stytta á hafnarbakkanum. 

Ef Dagdraumarnir verða að veruleika hér heima hjá okkur um suðræn stórlistaverk í nýja Vogahverfinu gæti nýja hverfið fengið svipað heiti og Turnbærinn (Taarnbyen) á Amager í Kaupmannahöfn. 

Pálmatré í Perlunnni voru "rómantískt fíaskó" á sínum tíma að sögn innanhússmanna í þessu glæsilega mannvirki. 

En lengi lifi draumarnir um suðrænan blæ hér uppi á klakanum, sem erlendum ferðamönnum gæti orðið jafn eftirminnilegt fyrirbæri og stærsti jólasveinn í heimi er fyrir þá, sem líta hann augum í miðjum júlí norðan við Tromsö. 

Lag og ljóð í fyrir pálmatrén í nýja Vogahverfinu eru þegar tilbúin til að fanga Afríkuandann þar sem hans er mest þörf:  

 

Vígsludagur verði fagur

í Vogahverfinu

nettur þar sín nýtur Dagur

í nautabanagervinu . 

 

"Fíaskóin" enginn erfi. 

Andans bæta hag 

pálmatré í Pálmahverfi

á pálmasunnudag. 


mbl.is Pálmarnir sagðir rómantískt fíaskó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband